Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég lagði fyrirspurn fyrir hæstv. ráðherra sem hann svaraði ekki og ég vil gjarnan ítreka. Hún var um þátttökuleysi Íslands á áðurnefndri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi. Er honum kunnugt um hvers vegna Íslendingar tóku ekki þátt í ráðstefnunni?