Vinnumarkaðsaðgerðir

Fimmtudaginn 21. nóvember 1996, kl. 15:35:49 (1546)

1996-11-21 15:35:49# 121. lþ. 30.3 fundur 172. mál: #A vinnumarkaðsaðgerðir# frv., ÁÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur

[15:35]

Ásta B. Þorsteinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Það komu engin svör við spurningum mínum frekar en endranær. En ég spyr hæstv. félmrh. enn á ný hvort einhverjar vonir séu til þess að hann hafi í hyggju að gera eitthvað með þær tillögur nefndar, sem vann að úrbótum á atvinnuþátttöku fatlaðra, og hafa ekki ratað inn í þetta frv. til hagsbóta fyrir hina fötluðu atvinnulausu í landinu.