Fundargerð 122. þingi, 0. fundi, boðaður 1997-10-01 13:30, stóð 13:59:42 til 14:34:03 gert 1 14:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

miðvikudaginn 1. okt.


Þingsetning.

Árið 1997, miðvikudaginn 1. október, var hundrað tuttugasta og annað löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta aðalþing í röðinni en hundrað þrítugasta og sjöunda samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Sigurður Jónsson í Odda steig í stólinn og lagði út af Mark. 12:28--34.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Arnbjörg Sveinsdóttir, 5. þm. Austurl.
  2. Ágúst Einarsson, 11. þm. Reykn.
  3. Árni R. Árnason, 6. þm. Reykn.
  4. Árni Johnsen, 3. þm. Suðurl.
  5. Árni M. Mathiesen, 2. þm. Reykn.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 18. þm. Reykv.
  7. Björn Bjarnason, 3. þm. Reykv.
  8. Bryndís Hlöðversdóttir, 12. þm. Reykv.
  9. Davíð Oddsson, 1. þm. Reykv.
  10. Egill Jónsson, 3. þm. Austurl.
  11. Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.
  12. Einar Oddur Kristjánsson, 3. þm. Vestf.
  13. Finnur Ingólfsson, 7. þm. Reykv.
  14. Friðrik Sophusson, 2. þm. Reykv.
  15. Geir H. Haarde, 4. þm. Reykv.
  16. Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl.
  17. Guðjón Guðmundsson, 4. þm. Vesturl.
  18. Guðmundur Bjarnason, 1. þm. Norðurl. e.
  19. Guðmundur Hallvarðsson, 10. þm. Reykv.
  20. Guðmundur Árni Stefánsson, 9. þm. Reykn.
  21. Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl.
  22. Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv.
  23. Gunnlaugur M. Sigmundsson, 2. þm. Vestf.
  24. Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.
  25. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e.
  26. Hjálmar Árnason, 7. þm. Reykn.
  27. Hjálmar Jónsson, 2. þm. Norðurl. v.
  28. Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.
  29. Ingibjörg Pálmadóttir, 1. þm. Vesturl.
  30. Ísólfur Gylfi Pálmason, 4. þm. Suðurl.
  31. Jóhanna Sigurðardóttir, 13. þm. Reykv.
  32. Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.
  33. Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl.
  34. Kristinn H. Gunnarsson, 5. þm. Vestf.
  35. Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv.
  36. Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn.
  37. Kristján Pálsson, 10. þm. Reykn.
  38. Lára Margrét Ragnarsdóttir, 6. þm. Reykv.
  39. Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl.
  40. Magnús Stefánsson, 3. þm. Vesturl.
  41. Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl.
  42. Ólafur G. Einarsson, 1. þm. Reykn.
  43. Ólafur Örn Haraldsson, 11. þm. Reykv.
  44. Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v.
  45. Pétur H. Blöndal, 16. þm. Reykv.
  46. Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurl. v.
  47. Rannveig Guðmundsdóttir, 5. þm. Reykn.
  48. Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf.
  49. Sigríður Jóhannesdóttir, 8. þm. Reykn.
  50. Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn.
  51. Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn.
  52. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv.
  53. Stefán Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. v.
  54. Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e.
  55. Sturla Böðvarsson, 2. þm. Vesturl.
  56. Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e.
  57. Svavar Gestsson, 8. þm. Reykv.
  58. Tómas Ingi Olrich, 5. þm. Norðurl. e.
  59. Valgerður Sverrisdóttir, 3. þm. Norðurl. e.
  60. Vilhjálmur Egilsson, 5. þm. Norðurl. v.
  61. Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl.
  62. Ögmundur Jónasson, 17. þm. Reykv.
  63. Össur Skarphéðinsson, 15. þm. Reykv.


Forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis kom forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.

[14:13]

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman miðvikudaginn 1. október 1997.

Um leið og ég birti þetta er öllum er setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 12. september 1997.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman miðvikudaginn 1. október 1997.``

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ræddi um kristnitökuafmælið og menningartengsl Íslendinga við brottflutta landa sína, einkum í Vesturheimi.

Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:13]

Aldursforseti Ragnar Arnalds þakkaði forseta Íslands vinsamleg orð í garð Alþingis og alþingismanna. Hann sendi forestafrú kveðju alþingismanna og bauð alþingismenn og starfsfólk velkomið til starfa.


Minning Guðmundar J. Guðmundssonar.

[14:14]

Aldursforseti minntist Guðmundar J. Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 12. júní sl.


Varamenn taka þingsæti.

[14:20]

Aldursforseti las bréf þess efnis að Guðrún Helgadóttir tæki sæti Bryndísar Hlöðversdóttur, 12. þm. Reykv., og Kristjana Bergsdóttir tæki sæti Halldórs Ásgrímssonar, 1. þm. Austurl.


Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[14:22]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingmenn. Undir ræðu forseta reis þingheimur á fætur til þess að votta Landsbergis, forseta litháíska þingsins, sem var viðstaddur þingsetningu, sendinefnd, sem með honum var, og litháísku þjóðinni virðingu sína.

Fundi frestað kl. 14:34.

---------------