Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 696, 122. löggjafarþing 304. mál: aukatekjur ríkissjóðs (dómsmálagjöld o.fl.).
Lög nr. 143 23. desember 1997.

Lög um breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88 31. desember 1991, sbr. lög nr. 1/1992, lög nr. 50/1994 og lög nr. 140/1995.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „1.000 kr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 1.200 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 2. og 3. tölul. 1. mgr. kemur: 3.500 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 1., 2., 3. og 5. tölul. 2. mgr. kemur: 11.500 kr.
  4. Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 4. tölul. 2. mgr. kemur: 3.500 kr.
  5. Í stað fjárhæðarinnar „5.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 5.700 kr.


2. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: 3.500 kr.

3. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: 3.500 kr.

4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 3.500 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 11.500 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „5.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 5.700 kr.


5. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „9.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 10.300 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „30.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 35.000 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 3.500 kr.
  4. Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 11.500 kr.
  5. Í stað fjárhæðarinnar „15.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 17.200 kr.
  6. Í stað fjárhæðarinnar „5.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 5.700 kr.


6. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „5.000 kr.“ í 6. gr. laganna kemur: 5.700 kr.

7. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „1.000 kr.“ í 8. gr. laganna kemur: 1.200 kr.

8. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „1.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 1.200 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „2.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 2.300 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „3.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 3.500 kr.


9. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna, sbr. lög nr. 140/1995:
  1. 6. tölul. orðast svo: Leyfisbréf fyrir verðbréfafyrirtæki,
    sbr. 8. gr. laga nr. 13/1996 100.000 kr.
  2. 7. tölul. orðast svo: Leyfisbréf fyrir verðbréfafyrirtæki,
    sbr. 9. gr. laga nr. 13/1996 50.000 kr.
  3. 8. tölul. orðast svo: Leyfisbréf fyrir erlent fyrirtæki í verðbréfaþjónustu með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. 46. gr. laga nr. 13/1996,
    1. sem starfar skv. 8. gr. laganna 100.000 kr.
    2. sem starfar skv. 9. gr. laganna 50.000 kr.
  4. Í stað orðanna „10. tölul.“ í 13. tölul. kemur: 12. tölul., og í stað orðanna „13.–15. tölul.“ í 18. tölul. kemur: 15.–17. tölul.


10. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „4.000 kr.“ í 1. og 3. tölul. kemur: 4.600 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „1.500 kr.“ í 2. tölul. kemur: 1.700 kr.
  3. Í stað fjárhæðarinnar „2.500 kr.“ í 4. tölul. kemur: 2.800 kr.
  4. Í stað fjárhæðarinnar „2.000 kr.“ í 5. og 6. tölul. kemur: 2.300 kr.
  5. Í stað fjárhæðarinnar „1.000 kr.“ í 7., 8., 9. og 11. tölul. kemur: 1.200 kr.
  6. Í stað fjárhæðarinnar „800 kr.“ í 10. tölul. kemur: 900 kr.
  7. Í stað fjárhæðarinnar „300 kr.“ í 12. tölul. kemur: 500 kr.
  8. Við bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
    1. Leyfi til nafnbreytinga, þó ekki nafnbreytinga skv. 2. málsl.
      1. mgr. 11. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn 4.000 kr.
    2. Fyrir vottorð um íslenskan ríkisborgararétt 1.200 kr.


11. gr.

     Á eftir X. kafla laganna, sbr. lög nr. 1/1992, kemur nýr kafli, XI. kafli, Gjöld fyrir staðfestingu skipulagsskráa og birtingu reglugerða lífeyrissjóða, með einni grein, 17. gr., og breytast tölur kafla og greina í samræmi við það. Hin nýja grein verður svohljóðandi:
     Fyrir staðfestingu á skipulagsskrá samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, skal greiða 5.000 kr. Þeir sem fara fram á staðfestingu dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá skulu endurgreiða ráðuneytinu kostnað við birtingu skipulagsskráar í B-deild Stjórnartíðinda.
     Lífeyrissjóðir, sem senda reglugerðir sínar til fjármálaráðuneytis til staðfestingar samkvæmt lögum nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, skulu endurgreiða ráðuneytinu kostnað af birtingu reglugerða í B-deild Stjórnartíðinda.

12. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1998.
     Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu er heimilt að fella meginmál þeirra inn í lög nr. 88 31. desember 1991, um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. lög nr. 1/1992, lög nr. 50/1994 og lög nr. 140/1995, og gefa þau út svo breytt.

Samþykkt á Alþingi 20. desember 1997.