Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa

Fimmtudaginn 01. október 1998, kl. 14:15:39 (4)

1998-10-01 14:15:39# 123. lþ. 0.5 fundur 5#B kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa#, Aldursforseti RA
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 123. lþ.

[14:15]

Aldursforseti (Ragnar Arnalds):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Ég óska eftir tilnefningu.

Forseta hefur borist tilnefning um 1. þm. Reykn., Ólaf G. Einarsson. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Ólafur G. Einarsson er því einn í kjöri.

Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu eins og á undangengnum þingum. Ef ekki eru gerðar athugasemdir við þennan hátt á atkvæðagreiðslunni þá hefst atkvæðagreiðslan. Þeir sem kjósa Ólaf G. Einarsson ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði.