Forseti (Halldór Blöndal):
Áður en gengið er til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um Vatneyrardóminn og viðbrögð stjórnvalda. Málshefjandi er hv. 4. þm. Norðurl. e., Svanfríður Jónasdóttir, en til andsvara verður hæstv. sjútvrh., Árni M. Mathiesen. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.