Pétur Bjarnason:
Virðulegi forseti. Mér finnst að Framsfl. hafi um margt ekki haft gott af sambúðinni við Sjálfstfl. Ég vil aðeins rifja upp að einn ágætur vinur minn í Framsfl., þá óbreyttur þingmaður, hafði sem fast orðtæki ,,allt er betra en íhaldið`` og kvað þó mun sterkar að orði.
Virðulegi forseti. Það má ekki skilja það svo að ég sé að sneiða að hæstv. félmrh. með þessu en hann hefur ekki svarað því hvort hann hyggist styðja þessar álögur áfram eða hvort hann muni beita sér fyrir ráðstöfunum gegn því að þessi ósköp haldi áfram.