Forseti (Halldór Blöndal):
Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, tíu mínútur í fyrstu umferð og sex mínútur í annarri og síðustu umferð.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn. Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkingu tala í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv., í annarri umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., en í þriðju umferð talar Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl.
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Geir H. Haarde fjmrh., í annarri Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Reykn., en í þeirri þriðju Hjálmar Jónsson, 1. þm. Norðurl. v.
Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs verða í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e., í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv., en Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e. í hinni þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk tala Halldór Ásgrímsson utanrrh. í fyrstu umferð, í annarri Jónína Bjartmarz, 16. þm. Reykv., en í hinni þriðju Valgerður Sverrisdóttir, iðn.- og viðskrh.
Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri umferð, og í hinni þriðju Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv.