Framhald þingfundar

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 15:45:52 (7760)

2000-05-13 15:45:52# 125. lþ. 118.97 fundur 552#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 125. lþ.

[15:45]

Forseti (Halldór Blöndal):

Forseti vill lýsa því yfir að umræður eru að hefjast um vegáætlun og jarðgangaáætlun. Eins og hv. þm. er ljóst og kunnugt var það löngu ákveðið að umræður um þessi mál yrðu í dag. Ég veit ekki betur en ýmsir hv. þm. hafi fundið að því við forseta að hann skuli stundum víkja frá því sem hann hefur áður sagt og ég hyggst taka það til greina.