Forseti (Halldór Blöndal):
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Hefur hver þingflokkur, aðrir en þingflokkur forsrh., til umráða 12 mínútur í fyrstu umferð, en í annarri og þriðju umferð sex mínútur hver flokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Sjálfstfl., Samfylkingin, Framsfl., Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn verða fyrir Sjálfstfl.: Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, Drífa Hjartardóttir, 4. þm. Suðurl., í annarri umferð og Árni M. Mathiesen sjútvrh. í þriðju umferð. Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Margrét Frímannsdóttir, 3. þm. Suðurl., Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv., í annarri og Sighvatur Björgvinsson, 2. þm. Vestf., í þriðju umferð. Fyrir Framsfl. tala Finnur Ingólfsson viðskrh. í fyrstu umferð, í annarri Ingibjörg Pálmadóttir heilbrrh. og í þriðju umferð Hjálmar Árnason, 10. þm. Reykn. Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð verða Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í fyrstu umferð, í annarri Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v. Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., og Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri og þriðju umferð.
Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls hæstv. forsrh., Davíð Oddsson.