Dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum

Mánudaginn 11. október 1999, kl. 18:09:12 (358)

1999-10-11 18:09:12# 125. lþ. 6.4 fundur 6. mál: #A dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum# (breyting ýmissa laga) frv., LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 125. lþ.

[18:09]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki frá því að hæstv. forsrh. hafi bæði spurt og svarað. Það liggur fyrir að Kaupþing er í eigu sparisjóðanna svo það þarf ekki að koma neinum á óvart þó að sparisjóðirnir hafi verið mjög ráðandi í þessum efnum. Ég held, virðulegi forseti, að við þetta sé litlu að bæta.