Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ræða þingmannsins var rétt svo langt sem hún náði, þ.e. þangað til hann kom að síðustu setningunni. Það er rétt að þær tölur sem þingmaðurinn fór með standa út af í þessu máli. Við erum að fjalla um það milli fjmrn. og samgrn. einmitt þessa dagana. Við munum fara nánar yfir þetta í þessari viku og komast til botns í því máli. Þetta hygg ég að þingmanninum sé kunnugt úr starfi í fjárln. Alþingis. En þannig er þetta mál í pottinn búið.