Jón Bjarnason:
Herra forseti. Ef hæstv. fjmrh. hrapar ekki að þessu máli meira en ég þá verður þetta leiðrétt. Samkvæmt upplýsingum sem fulltrúar samgrn. gáfu á fundi hjá samgn. þá er það þeirra skoðun að þarna sé um mistök að ræða. Ég skil hæstv. ráðherra fjármála þannig að hann fari varlega í yfirlýsingar þangað til komið er til botns. En ég vona að þær leiði til farsællar niðurstöðu.