Árni R. Árnason:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir þau sjónarmið sem hún lét uppi um áhyggjur Suðurnesjamanna af öryggi vegfarenda á Reykjanesbrautinni. Ég tel það meginefni þessa máls og þær umræður voru mest áberandi á borgarafundi í Stapa í sl. viku, þ.e. um öryggi vegfarenda á brautinni. Það skiptir mestu að bæta úr í þessu efni og það sem hæstv. samgrh. hefur sagt um það, bæði á þeim fundi og hér í dag segir mér að hann hefur einbeittan vilja til að flýta þeim framkvæmdum.