Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 10:26:21 (8276)

2001-05-19 10:26:21# 126. lþ. 129.48 fundur 735. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (gjald á aflaheimildir) frv., sjútvrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[10:26]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92 24. maí 1994, með síðari breytingum.

Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem innheimtar eru við úthlutun aflaheimilda og renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Fram að því hafði fjárhæðinni verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma, enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.230 kr. í 1.321 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs sjávarútvegsins af gjaldi á aflaheimildir um 537,7 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum og úthlutun þorskígilda söm og á síðasta fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar hækki um 40 millj. kr. og verði um 580 millj. kr. árið 2001.

Að lokinni 1. umr., herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til hv. sjútvn.