Almannatryggingar og félagsleg aðstoð

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 14:48:19 (8336)

2001-05-19 14:48:19# 126. lþ. 129.38 fundur 732. mál: #A almannatryggingar og félagsleg aðstoð# (grunnlífeyrir, tekjutryggingarauki, frítekjumark o.fl.) frv. 93/2001, ÁJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[14:48]

Árni Johnsen (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil sérstaklega taka undir orð hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, að taka hér á dagskrá sem fyrst áframhaldandi umræður um sölu Landssímans, sérstaklega í ljósi orða hv. þm. um að hann hefur lofað að flytja fína ræðu. Það eru slík tímamót að ég tel að ekki megi bíða með að það gangi fram.