Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Nefndin fór ekki sérstaklega ofan í þessi mál. Hins vegar voru þessi mál rædd við 1. umr. í þinginu. En það tengdist ekki þessu frv. Því væri kannski frekar um að ræða alveg sérstakt mál því þá var m.a. verið að ræða um gripi sem eru í Danmörku.