2. FUNDUR
þriðjudaginn 3. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur, aðrir en þingflokkur forsætisráðherra, til umráða 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver.
Röð flokkanna í öllum umferðum var þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, Katrín Fjeldsted, 14. þm. Reykv., í annarri umferð og Björn Bjarnason menntmrh. í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv., Svanfríður Jónasdóttir, 4. þm. Norðurl. e, í annarri og Einar Már Sigurðarson, 4. þm. Austurl., í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Páll Pétursson félmrh. í fyrstu umferð, í annarri Ólafur Örn Haraldsson, 12. þm. Reykv., og í þriðju umferð Jón Kristjánsson, 3. þm. Austurl.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. e., í fyrstu umferð, í annarri Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., og í þriðju umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., og Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri og þriðju umferð.
Fundi slitið kl. 22:03.
---------------