Afgreiðsla iðnaðarnefndar á virkjanafrumvarpi

Þriðjudaginn 19. mars 2002, kl. 13:55:32 (6228)

2002-03-19 13:55:32# 127. lþ. 99.91 fundur 412#B afgreiðsla iðnaðarnefndar á virkjanafrumvarpi# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur, 127. lþ.

[13:55]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill að lyktum þessarar umræðu um störf þingsins árétta það sem hann sagði fyrr að þetta mál og önnur þau mál sem fá hina formlegu réttu afgreiðslu í þingnefndum munu auðvitað fá hér eðlilega og þinglega umfjöllun á réttum tíma. Forseti tekur ekki efnislega afstöðu til þessa frv. né heldur annarra.