Þuríður Backman:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir skýr svör og vona að hann muni standa við þá yfirlýsingu sem hann gaf og taki undir niðurstöðu og ákvörðun kúabænda þar sem samanburðartilrauninni var hafnað og að yfirlýsingin verði alfarið yfirfærð á allan innflutning á norskum fósturvísum. Eins og ég sagði, herra forseti, þakka ég landbrh. fyrir skýr svör.