Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Hér er verið að afnema skattlagningu á húsaleigubætur og er þá orðin að veruleika margra ára barátta Leigjendasamtakanna, verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka sem lagst hafa á eitt um að hnekkja því ranglæti að leigjendur búi við annan og mun verri kost en þeir sem eiga sínar íbúðir og hús.
Ég fagna þessari skattbreytingu. Hún er í samræmi við stefnu Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs.