Álverksmiðja í Reyðarfirði

Þriðjudaginn 28. janúar 2003, kl. 22:29:28 (3135)

2003-01-28 22:29:28# 128. lþ. 66.10 fundur 509. mál: #A álverksmiðja í Reyðarfirði# frv., GuðjG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 128. lþ.

[22:29]

Guðjón Guðmundsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. hóf þetta svar sitt ágætlega. Mér fannst hann ætla að fara að taka það til baka að nota orðið ,,fjárglæfra`` en síðan herti hann á og kallaði ýmsa aðila fjárglæframenn, þar á meðal ríkisstjórnina. Ég verð bara að segja það alveg hreint út að ég hef samúð með hv. þingmanni að missa svona lagað út úr sér í hita leiksins. Ég held að það sé betra að æsa sig aðeins minna í ræðustól og vita hvað maður er að segja.