Staða óhefðbundinna lækninga

Þriðjudaginn 11. mars 2003, kl. 11:17:46 (4716)

2003-03-11 11:17:46# 128. lþ. 95.4 fundur 592. mál: #A staða óhefðbundinna lækninga# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 128. lþ.

[11:17]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég endurtek að ég tel áríðandi að nefndin vinni störf sín samkvæmt þessum dagsetningum og ég efast ekki um að það er í henni ágætisfólk. Ég efast ekki um að það vinnur vel og ég mun að sjálfsögðu fylgjast með því. Ég mun fylgjast með því ef ég verð í aðstöðu til þess 1. október 2003 en það eru náttúrlega óvissutímar fram undan eins og hv. þm. veit. Við vitum ekki hvar við dönsum næstu jól, eins og þar stendur. Ég endurtek að ég hef áhuga á að þetta mál verði unnið.