Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla ekki í efnisumræðu við þennan hv. þm. Ástæðan er einföld, hann hefur prívathagsmuna að gæta. Hann ætti sóma síns vegna ekki að taka þátt í efnisumræðu um þetta mál. Ég vissi ekki til þess að þingmenn hefðu gjaldskrár úti á vettvangi fjármálanna þegar þeir ættu að vera að sinna kjósendum sínum á sumrin.