Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 01. nóvember 2002, kl. 15:38:05 (967)

2002-11-01 15:38:05# 128. lþ. 20.6 fundur 244. mál: #A stjórn fiskveiða# (flutningur aflaheimilda milli ára) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 128. lþ.

[15:38]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði áðan er þetta allt saman álitamál. Í vinnu okkar núna tökum við mið af fleiri þáttum en við gerðum varðandi krókaaflamarkið. Ég legg áherslu á að menn horfi á þetta þegar upp er staðið og við erum komin með heildarmyndina en dæmi þetta ekki fyrir fram út frá einstökum stöðum eða einstökum dæmum. Við munum verða tiltölulega sáttari við þetta þegar þessu er öllu lokið.