Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Hér er lagt til að gildistaka þessa frv. verði 1. janúar nk., þ.e. eftir 21 dag. Það er ljóst að stofnfjáreigendur og aðrir aðilar sem gert hafa samninga á grundvelli gildandi laga þurfa að hafa hraðar hendur til að bjarga eignum sínum undan þeirri skerðingu á eignarrétti sem þetta frv. hefur í för með sér. Þetta undirstrikar enn frekar þann tilskipunarblæ sem er á þessu frv.
Þar sem ég má ekki fallast á skerðingu eignarréttar sem í frv. felst en styð þó frv. að öðru leyti sit ég hjá.