Afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps

Miðvikudaginn 12. maí 2004, kl. 11:00:43 (7977)

2004-05-12 11:00:43# 130. lþ. 113.92 fundur 552#B afgreiðsla fjölmiðlafrumvarps# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 130. lþ.

[11:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Hv. þm. hafði eftir mér áðan að ég hefði sagt að einn maður gæti tekið mál út úr nefnd gegn meiri hluta nefndarinnar. Þetta sagði ég ekki. Ég sagði að það væri skýlaus réttur þingmanns að gefa út nefndarálit hvenær sem hann teldi það rétt og hann teldi athugun máls lokið í nefndinni. Það var það sem ég sagði og ég vil biðja hv. þingmann ef hann vill efna til umræðu um þingsköp að hafa rétt eftir það sem ég sagði, a.m.k. merkinguna.