Þingfrestun

Föstudaginn 28. maí 2004, kl. 20:36:32 (9471)

2004-05-28 20:36:32# 130. lþ. 132.94 fundur 622#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur, 130. lþ.

[20:36]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 130. löggjafarþings, frá 27. maí 2004 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.

Gjört að Bessastöðum, 25. maí 2004.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 130. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.