Forseti (Birgir Ármannsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður Framsfl. í Reykv. n., Guðjón Ólafur Jónsson héraðsdómslögmaður, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Halldór Ásgrímsson, 7. þm. Reykv. n.``
Kjörbréf Guðjóns Ólafs Jónssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.