Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 308. máls.

Þskj. 390  —  308. mál.



Skýrsla

samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2006
(flugmálaáætlun) .

(Lögð fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




2. FLUGMÁLAÁÆTLUN
2.1     Fjármál.
    Endurskoðað bókhald Flugmálastjórnar fyrir árið 2006, ásamt reikningsuppgjöri ársins, liggur nú fyrir og eru því allar fjármunahreyfingar sem fram koma í skýrslunni byggðar á rauntölum.

Tekjur og framlög.
Markaðar tekjur.

     Flugvallagjöld. Eftirfarandi tafla og mynd sýna þróun tekna af flugvallagjöldum árin 1997–2006:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og taflan og myndin sýna hafa tekjur af flugvallagjöldum ekki verið jafnháar frá árinu 1997 og er það vegna fjölgunar farþega í utanlandsflugi. Gjaldskránni var breytt frá og með 1. október 2004. Þá var tekinn upp flugvallaskattur annars vegar sem allir farþegar greiða og varaflugvallagjald hins vegar sem einungis farþegar í millilandaflugi greiða. Tekjur af varaflugvallagjaldinu námu 516 millj. kr. árið 2006. Varaflugvallagjaldið er ætlað að standa undir þeim viðbótarkostnaði sem af því hlýst að Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvellir sinni varaflugvallahlutverki sínu.
    Afgreiðslugjald. Tekjur af afgreiðslugjöldum vegna útgáfu flugskírteina, vottunar- og staðfestingargjalda voru á árinu 2006, 15,3 millj. kr.

Framlög úr ríkissjóði.
    Á árinu 2006 var framlag ríkissjóðs til Flugmálastjórnar 1007 millj. kr. Framlag af flugmálaáætlun vegna varaflugvallagjalds til reksturs Flugmálastjórnar nam á árinu 214,6 millj. kr.

Ríkistekjur
    Eftirfarandi tafla sýnir sundurliðun ríkistekna:

Tafla 2 Sundurliðun ríkistekna árið 2006 (þús. kr.).  
Lendingargjöld 103.001
Prófgjöld vegna þjónustu flugöryggissviðs 10.649
Skoðunar- og eftirlitsgjöld 111.998
Vopnaleitargjald 19.378
Samtals: 245.026

Sértekjur.
     Tekjur vegna Alþjóðaflugþjónustunnar. Þessar tekjur eru vegna reksturs á B-hluta Flugmálastjórnar, Veðurstofunnar og Flugfjarskipta ehf. en tekjurnar eru yfirflugsgjöld sem námu árið 2006, 1.884 millj. kr.
     Aðrar sértekjur. Eftirfarandi tafla sýnir sundurliðun annarra sértekna:

Tafla 3 Sundurliðun annarra sértekna árið 2006 (þús. kr.).
ATS-skólagjöld 76.500
Seld vinna v/alþjóðaflugþjónustunnar 138.000
Seld önnur vinna, flugmálaáætlun o.fl. 29.901
Stjórnunarkostnaður, 12% 126.200
Verksala og önnur þjónusta 156.807
Leigutekjur og afnotagjöld 97.017
Sala eigna og tilfærslur 8.121
Kosovo-verkefni árið 2006 348.121
  Samtals: 980.667  

Gjöld.
Rekstur og þjónusta.

     Yfirstjórn. Rekstrarútgjöld yfirstjórnar hækka um 13% milli áranna 2005 og 2006. Launagjöld hækka um 14,6%, en önnur rekstrarútgjöld hækka um 11,4%.
Tafla 4 Rekstur yfirstjórnar 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld 2005   2006   Breyting
Laun og launatengd gjöld 196.480 225.159 14,6%
Önnur rekstrargjöld 194.807 216.956 11,4%
Samtals 391.287   442.115   13,0%
Tekjur 305.078 535.650 75,6%
Gjöld umfram tekjur 86.209   -93.535   -208,5%

    Eins og sést á töflunni hafa tekjur hækkað um 75,6% milli ára sem skýrist af því að á árinu 2006 var stoðþjónusta, svo sem færsla bókhalds, fjármálaþjónusta, starfsmanna- og kerfisþjónusta, færð sem kostnaður á rekstrarsviðin, en tekjur á yfirstjórn. Þetta hefur einnig í för með sér að samanburður milli áranna 2005 og 2006 í töflunum hér á eftir verður ekki alveg raunhæfur. Vegna þessa verða tekjur umfram gjöld hjá yfirstjórn 93,5 millj. kr. á árinu 2006.
     Flugumferðarþjónusta innan lands. Útgjöld flugumferðarsviðs hækkuðu um 7,7% á milli ára. Bæði laun og önnur rekstrargjöld hækkuðu um 7,7%, en á móti lækkuðu tekjur þjónustunnar um 5,1% frá fyrra ári.

Tafla 5 Rekstur flugumferðarsviðs 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld 2005   2006   Breyting
Laun og launatengd gjöld 437.307 470.959 7,7%
Önnur rekstrargjöld 94.145 101.355 7,7%
Samtals 531.452   572.314   7,7%
Tekjur 405.079 384.400 -5,1%
Gjöld umfram tekjur 126.373   187.914   48,7%

    Eins og taflan sýnir, hafa gjöld umfram tekjur hækkað um 48,7% milli áranna 2005 og 2006, sem skýrist af lækkun tekna frá árinu áður.
     Eftirlit og öryggismál. Á undanförnum árum hafa umsvif flugöryggissviðsins aukist jafnt og þétt vegna krafna um aukið eftirlit ásamt meiri gæðakröfum og nýrra alþjóðlegra reglna. Laun og launatengd gjöld hækka um 14,2% og önnur rekstrargjöld hækka verulega á milli ára, eða um 22,3%.

Tafla 6 Rekstur flugöryggissviðs 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld 2005   2006   Breyting
Laun og launatengd gjöld 137.770 157.285 14,2%
Önnur rekstrargjöld 95.101 116.323 22,3%
Samtals 232.871   273.608   17,5%
Tekjur 163.307 161.062 -1,4%
Gjöld umfram tekjur 69.564   112.546   61,8%

    Eins og taflan sýnir hafa rekstrarútgjöld hækkað á milli áranna 2005 og 2006 um 17,5%, en tekjur hafa lækkað aðeins, eða um 1,4%. Þannig hafa gjöld umfram tekjur hækkað verulega milli ára, eða um 61,8% sem skýrist af auknu mannahaldi og lægri tekjum á árinu 2006.
     Flugvalla- og flugleiðsöguþjónusta. Á undanförnum árum hefur áætlunarflugvöllum fækkað verulega. Engu að síður þarf að viðhalda mannvirkjum á þeim flugvöllum þar sem áætlunarflug hefur lagst af. Þannig hafa önnur rekstrargjöld ekki lækkað í takt við þróunina. Á árinu 2006 hækkuðu önnur rekstrargjöld um 21,9% frá árinu áður, en laun og launatengd gjöld hækkuðu um 9,4%.

Tafla 7 Rekstur flugvalla- og leiðsögusviðs 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld 2005   2006   Breyting
Laun og launatengd gjöld 410.170 448.930 9,4%
Önnur rekstrargjöld 618.649 753.881 21,9%
Samtals 1.028.819   1.202.811   16,9%
Tekjur 295.634 296.979 0,5%
Gjöld umfram tekjur 733.185   905.832   23,5%

    Eins og sést á töflunni hafa tekjur aðeins hækkað á milli ára, eða um 0,5%. Gjöld umfram tekjur hafa því hækkað um 23,5% milli áranna 2005 og 2006.
    Í eftirfarandi töflum er gerð grein fyrir rekstrarafkomu fimm stærstu áætlunarflugvallanna, þ.e. Reykjavíkur-, Akureyrar-, Vestmannaeyja-, Egilsstaða- og Ísafjarðarflugvalla. Aðrir minni áætlunar- og þjónustuflugvellir verða teknir saman í einni niðurstöðutölu í töflum 18 og 19 .
     Reykjavíkurflugvöllur. Rekstrarkostnaður Reykjavíkurflugvallar hækkaði um 18,6% milli áranna 2005 og 2006, eða um 53,5 millj. kr. Heildarútgjöldin urðu 12,2 millj. kr. yfir áætlun, eða sem nemur 3,6%. Þetta skýrist meðal annars vegna nýs kjarasamnings við Landsamband slökkviliðsmanna. Tekjur flugvallarins hækkuðu um 10,5% frá árinu áður.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld eftir stjórnunarsviðum og samanburð við áætlun ársins 2006:

Tafla 8 Rekstrarútgjöld Reykjavíkurflugvallar árið 2006 (þús. kr.).
Rekstrarsvið Útgjöld   Áætlun   Mismunur   %
Flugvalla- og flugleiðsögusvið 208.101 195.880 12.221 5,9%
Flugumferðarsvið 133.516 133.516 0 0,0%
Samtals 341.617   329.396   12.221   3,6%

    Rekstrarkostnaður flugvalla- og flugleiðsögusviðs varð 3,6% hærri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir. Rekstur aðflugsþjónustu flugumferðarsviðs var samkvæmt áætlun.
    Í næstu töflu er sýndur samanburður á rekstrarútgjöldum og tekjum hinna ýmsu verkefna í starfsemi flugvallarins árin 2005 og 2006. Taflan sýnir að gjöld umfram tekjur urðu 250,6 millj. kr. sem er verulega hærra en á fyrra ári, eða sem nemur 44,8 millj. kr. Hlutfall tekna af gjöldum er 26,6%, sem er nokkur lækkun frá árinu áður. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 2006 er 597 kr. á móti 539 kr. árið á undan og er það 10,8% hækkun, en farþegum sem fóru um flugvöllinn fjölgaði um 5% milli ára.
    Þegar á heildina er litið verður að telja að rekstur Reykjavíkurflugvallar á árinu 2006 hafi gengið þokkalega vel fjárhagslega séð.
Tafla 9 Útgjöld og tekjur Reykjavíkurflugvallar árið 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld              
Verkefni 2005   2006  
Mismunur
  %
Rekstur flugvallar 56.165 85.818 29.653 52,8%
Snjómokstur 13.011 12.003 -1.008 -7,7%
Slökkviþjónusta 73.431 91.360 17.929 24,4%
Vélaverkstæði 20.253 16.962 -3.291 -16,2%
Umsjón húseigna 3.655 1.958 -1.697 -46,4%
Flugturn 121.625 133.516 11.891 9,8%
Samtals 288.140   341.617   53.477   18,6%
Tekjur
Lendingargjöld 52.271 68.643 16.372 31,3%
Leigutekjur 16.267 15.802 -465 -2,9%
Verksala og þjónusta 13.795 6.555 -7.240 -52,5%
Samtals 82.333   91.000   8.667   10,5%
Gjöld umfram tekjur 205.807 250.617 44.810 21,8%
Hlutfall tekna af gjöldum 28,6% 26,6%
Framlag á hvern farþega kr. 539   597   58   10,8%

     Akureyrarflugvöllur. Rekstrarniðurstaða Akureyrarflugvallar fyrir árið 2006 er sú að flugvöllurinn fór 7,5 millj. kr. fram úr rekstraráætlun ársins, eða 4,1%.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöldin árið 2006 eftir stjórnunarsviðum og samanburð við rekstraráætlun ársins:

Tafla 10 Rekstrarútgjöld Akureyrarflugvallar árið 2006 (þús. kr.).
Rekstrarsvið Útgjöld Áætlun  
Mismunur
  %
Flugvalla- og flugleiðsögusvið 131.445 123.950 7.495 5,7%
Flugumferðarsvið 53.168 53.168 0 0,0%
Samtals 184.613   177.118   7.495   4,1%

    Eins og taflan sýnir kostaði rekstur Akureyrarflugvallar rúmar 184,6 millj. kr. á árinu 2006 án fjármagns- og stofnkostnaðar. Heildarútgjöld flugvallarins á árinu 2006 var 28,4 millj. kr. hærri en árið á undan, eða 18,2%.
    Næsta tafla sýnir samanburð á rekstrarútgjöldum og tekjum milli áranna 2005 og 2006, ásamt hlutfalli tekna af gjöldum og framlag á hvern farþega sem um flugvöllinn fór árið 2006:

Tafla 11 Útgjöld og tekjur Akureyrarflugvallar árið 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld              
Verkefni 2005   2006  
Mismunur
  %
Rekstur flugvallar 109.991 131.445 21.454 19,5%
Rekstur flugturns 46.254 53.168 6.914 14,9%
Samtals 156.245   184.613   28.368   18,2%
Tekjur
Lendingargjöld 15.312 21.879 6.567 42,9%
Leigutekjur 2.292 2.318 26 1,1%
Verksala og þjónusta 3.126 3.018 -108 -3,5%
Samtals 20.730   27.215   6.485   31,3%
Gjöld umfram tekjur 135.515 157.398 21.883 16,1%
Hlutfall tekna af gjöldum 13,3% 14,7%
Framlag á hvern farþega kr. 753   779   26   3,5%

    Í töflunni kemur fram að gjöld umfram tekjur urðu 157,4 millj. kr. á árinu 2006, samanborið við 135,5 millj. kr. árið 2005 og er hækkunin 16,1%. Tekjur hækkuðu um 31,3% milli ára. Hlutfall tekna af gjöldum var á árinu 2006 14,7% samanborið við 13,3% á árinu 2005. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu var 779 kr. sem er hækkun frá árinu áður um 3,5%.
     Egilsstaðaflugvöllur. Heildarrekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar á árinu 2006 urðu 15,8 millj. kr. hærri en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir, eða 13,5% sem skýrist af auknum umsvifum í rekstri flugvallarins, aðallega vegna millilandaflugs, en farþegar sem fóru um flugvöllinn á árinu 2006 voru 18,8% fleiri en árið áður. Rekstur flugvallarins kostaði á árinu rúmar 116,8 millj. kr. og hefur kostnaður því hækkað um 30,2 millj. kr. frá árinu 2005, eða um 34,9%. Tekjur flugvallarins hækkuðu verulega, eða um 55,8% vegna fjölgunar farþega.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar fyrir árið 2006 og samanburð við rekstraráætlanir ársins:

Tafla 12 Rekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar árið 2006 (þús. kr.).
Rekstrarsvið Útgjöld  
Áætlun
 
Mismunur
  %
Rekstur flugvallar 92.182 76.785 15.397 16,7%
Rekstur flugturns 24.608 24.212 396 1,6%
Samtals 116.790   100.997   15.793   13,5%

    Í næstu töflu er sýndur samanburður á gjöldum og tekjum áranna 2005 og 2006, ásamt framlagi á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu.

Tafla 13 Útgjöld og tekjur Egilsstaðaflugvallar árið 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld              
Verkefni 2005   2006   Mismunur   %
Rekstur flugvallar 64.257 92.182 27.925 43,5%
Rekstur flugturns 22.350 24.608 2.258 10,1%
Samtals 86.607   116.790   30.183   34,9%
Tekjur
Lendingargjöld 12.125 18.528 6.403 52,8%
Leigutekjur 1.297 1.366 69 5,3%
Verksala og þjónusta 442 1.700 1.258 284,6%
Samtals 13.864   21.594   7.730   55,8%
Gjöld umfram tekjur 72.743 95.196 22.453 30,9%
Hlutfall tekna af gjöldum 16,0% 18,5%
Framlag á hvern farþega kr. 573   630   57   10,0%

    Í töflunni kemur fram að rekstrarútgjöld hækkuðu milli ára um rúmar 30,2 millj. kr., eða 34,9%. Einnig sýnir taflan að gjöld umfram tekjur hafa hækkað um 30,9% frá árinu 2005, en hlutfall tekna af gjöldum er 18,5% árið 2006 á móti 16% á árinu 2005. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu hækkar nokkuð, eða úr 573 kr. á árinu 2005 í 630 kr. árið 2006, eða um 10%. Þetta skýrist af verulega auknum umsvifum í rekstri flugvallarins á árinu 2006 frá fyrri árum.
     Vestmannaeyjaflugvöllur. Rekstrarútgjöld Vestmannaeyjaflugvallar á árinu 2006 urðu 4,7% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða tæpar 3,5 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöldin á árinu 2006 ásamt samanburði við áætlanir:

Tafla 14 Rekstrarútgjöld Vestmannaeyjaflugvallar árið 2006 (þús.kr.).
Rekstrarsvið
Útgjöld
 
Áætlun
Mismunur
 
%
Flugvalla- og flugleiðsögusvið 41.908 38.442 3.466 8,3%
Flugumferðarsvið 31.876 31.876 0 0,0%
Samtals 73.784   70.318   3.466   4,7%

    Eins og taflan sýnir urðu heildarútgjöld Vestmannaeyjaflugvallar á árinu 2006 tæpar 73,8 millj. kr.
    Tekjur flugvallarins á árinu 2006 hækkuðu hins vegar verulega, eða um 63,8% frá árinu áður eða um tæpar 3,4 millj. kr., sem skýrist af stærri flugvélum sem nú eru notaðar í áætlunarfluginu og þar af leiðandi hærri lendingargjöldum. Farþegum sem fóru um flugvöllinn fækkaði hins vegar um 5,9% frá árinu áður.
    Í næstu töflu er sýndur samanburður á gjöldum og tekjum áranna 2005 og 2006 ásamt ýmsum öðrum upplýsingum:

Tafla 15 Útgjöld og tekjur Vestmannaeyjaflugvallar árið 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld              
Verkefni 2005   2006  
Mismunur
  %
Rekstur flugvallar 36.553 41.908 5.355 14,6%
Rekstur flugturns 28.259 31.876 3.617 12,8%
Samtals 64.812   73.784   8.972   13,8%
Tekjur
Lendingargjöld 2.750 4.530 1.780 64,7%
Leigutekjur 1.577 2.038 461 29,2%
Verksala og þjónusta 968 2.104 1.136 117,3%
Samtals 5.295   8.672   3.377   63,8%
Gjöld umfram tekjur 59.517 65.112 5.595 9,4%
Hlutfall tekna af gjöldum 8,2% 11,8%
Framlag á hvern farþega kr. 1.167   1.370   203   17,4%

    Eins og taflan sýnir hafa heildarrekstrarútgjöld á árinu 2006 hækkað frá fyrra ári um 13,8%. Taflan sýnir einnig að hlutfall tekna af gjöldum hefur hækkað úr 8,2% árið áður í 11,8% á árinu 2006 og að framlag á hvern farþega er 1.370 kr. á móti 1.167 kr. árið 2005, sem er 17,4% hækkun sem skýrist af fækkun farþega milli ára.
     Ísafjarðarflugvöllur. Rekstur Ísafjarðarflugvallar á árinu 2006 gekk fjárhagslega mjög vel. Eins og sjá má á töflunni hér að neðan fóru heildarútgjöld flugvallarins 1,3% umfram rekstraráætlun, eða um 0,7 millj. kr.

Tafla 16 Rekstrarútgjöld Ísafjarðarflugvallar árið 2006 (þús. kr.).
Rekstrarsvið Útgjöld   Áætlun   Mismunur   %
Rekstur flugvallar 43.881 42.667 1.214 2,8%
Rekstur flugturns 10.124 10.624 -500 -4,9%
Samtals 54.005   53.291   714   1,3%

    Heildarrekstrarkostnaður flugvallarins á árinu 2006 varð 54 millj. kr. á móti 48,3 millj. kr. árið 2005 og hefur því hækkað um tæpar 5,8 millj. kr., eða 11,9%. Tekjur flugvallarins lækkuðu aðeins, eða um 0,6% á milli ára. Hlutfall tekna af gjöldum lækkaði því úr 13,7% frá árinu 2005 í 12,2% árið 2006. Framlag á hvern farþega hækkaði þannig um 15% á milli ára, eða úr 925 kr. árið 2005 í 1.064 kr. árið 2006 eins og eftirfarandi tafla sýnir:

Tafla 17 Útgjöld og tekjur Ísafjarðarflugvallar árið 2005 og 2006 (þús. kr.).
Gjöld              
Verkefni 2005   2006  
Mismunur
  %
Rekstur flugvallar 38.588 43.881 5.293 13,7%
Rekstur flugturns 9.662 10.124 462 4,8%
Samtals 48.250   54.005   5.755   11,9%
Tekjur
Lendingargjöld 3.460 3.522 62 1,8%
Leigutekjur 2.219 2.332 113 5,1%
Verksala og þjónusta 927 711 -216 -23,3%
Samtals 6.606   6.565   -41   -0,6%
Gjöld umfram tekjur 41.644 47.440 5.796 13,9%
Hlutfall tekna af gjöldum 13,7% 12,2%
Framlag á hvern farþega kr. 925   1.064   139   15,0%

     Aðrir áætlunarflugvellir í grunnneti. Rekstrarútgjöld annarra áætlunarflugvalla í grunnneti urðu 9,2% hærri en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir á árinu 2006. Um er að ræða sjö flugvelli og urðu heildarrekstrarútgjöld þeirra 93 millj. kr., en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir útgjöldum að upphæð 85,1 millj. kr.
    Tekjur þessara flugvalla eru mjög litlar og urðu 7,7 millj. kr. á árinu 2006. Því var hlutfall tekna af gjöldum ekki nema 8,3% og framlag á hvern farþega sem um flugvellina fór var að jafnaði 1.657 kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á heildarútgjöldum flugvallanna og áætlun ásamt tekjum og öðrum upplýsingum á árinu 2006:

Tafla 18 Aðrir áætlunarflugvellir í grunnneti, ýmsar rekstrarupplýsingar árið 2006.
(Þús. kr.) Gjöld Áætlun Tekjur Gjöld um- Hlutfall tekna Framlag
Flugvellir árið 2006 árið 2006 árið 2006 fram tekjur af gjöldum á farþega
Hornafjörður 24.428 20.348 1.809 22.619 7,4% 2.549
Sauðárkrókur 14.066 13.500 1.282 12.784 9,1% 2.265
Bíldudalur 14.716 11.753 562 14.154 3,8% 4.141
Grímsey 7.620 8.312 1.373 6.247 18,0% 1.845
Þórshöfn 8.764 7.944 401 8.363 4,6% 7.772
Þingeyri 6.988 5.019 461 6.527 6,6% 7.845
Bakki 16.390 18.273 1.808 14.582 11,0% 517
Samtals 92.972 85.149 7.696 85.276 8,3% 1.657
     Aðrir áætlunarflugvellir utan grunnnets. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarafkomu þeirra tveggja áætlunarflugvalla sem eru utan grunnnets:

Tafla 19 Aðrir áætlunarflugvellir utan grunnnets, ýmsar rekstraruppýsingar árið 2006.
(Þús. kr.) Gjöld Áætlun Tekjur Gjöld um- Hlutfall tekna Framlag
Flugvellir árið 2006 árið 2006 árið 2006 fram tekjur af gjöldum á farþega
Vopnafjörður 9.344 9.131 637 8.707 6,8% 4.656
Gjögur 6.044 5.515 165 5.879 2,7% 14.997
Samtals 15.388 14.646 802 14.586 5,2% 6.448

    Eins og taflan sýnir er framlag með hverjum farþega mjög hátt, en flugvellirnir hafa mjög litla flutninga og eru í fullum rekstri.
     Aðrir flugvellir og lendingarstaðir. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld ársins 2006 borin saman við rekstraráætlanir sama árs:

Tafla 20 Aðrir flugvellir og lendingarstaðir, rekstur 2006 (þús. kr.).
Gjöld 2006 Áætlun Mismunur
Aðrir flugvellir 25.361 23.790 6,6%
Lendingarstaðir 11.033 10.188 8,3%
Samtals 36.394 33.978 7,1%

    Eins og taflan sýnir urðu rekstrarútgjöldin 7,1% hærri en áætlun gerði ráð fyrir.
     Alþjóðaflugþjónusta. Kostnaður vegna Alþjóðaflugþjónustunnar á árinu 2006 nam 1.074 m.kr., en var 982,5 m.kr. árið 2004 og hækkaði milli ára um 9,3%. Framlag Íslands til þjónustunnar nam á árinu 2006 rúmlega 98 m.kr. Eftirfarandi tafla sýnir greiðsluyfirlit vegna Alþjóðaflugþjónustunnar árið 2006. Heildartekjur af yfirflugsgjöldum á árinu 2006 urðu 1.884 millj. kr og höfðu hækkað um 9,7% frá árinu áður.

Tafla 21 Greiðsluyfirlit vegna Alþjóðaflugþjónustunnar árið 2006 (þús. kr.).
  Flugmála- stjórn Flug- fjarskipti Veður- stofan Alþjóðaflug- þjónustan Samtals
Tekjur
Yfirflugsgjöld 1.390.000 440.000 145.640 -91.356 1.884.284
Tekjur alls 1.390.000 440.000 145.640 -91.356 1.884.284
Gjöld
Launagjöld 565.719 246.161 133.673 0 945.553
Vörukaup 31.441 19.188 3.082 0 53.711
Þjónusta 468.482 133.327 27.652 43.473 672.935
Fjármagnskostnaður 50.963 6.685 631 63.983 122.262
Gjaldfærð eignakaup 13.751 0 0 0 13.751
Fyrningar 0 8.978 1.568 150.957 161.503
Kostnaðarhlutdeild -56.518 -20.717 -8.330 -12.921 -98.486
Gjöld alls 1.073.839 393.623 158.276 245.492 1.871.229
Viðskiptaf. á ICAO 316.161 46.377 -12.636 -336.848 13.055

    Önnur gjöld. Á árinu 2006 var varið tæpum 340 millj. kr. vegna samningsins um Kosovoverkefnið, en það skilaði rúmum 348 millj. kr. í tekjur eins og fram kemur í töflu 3. Kosovoverkefninu er ekki lokið.
     Viðhald og stofnkostnaður. Eftirfarandi tafla sýnir stofnkostað, viðhald og annan kostnað árin 2005 og 2006:

Tafla 22 Stofnkostnaður, viðhald og annar kostnaður árin 2005 og 2006.
  Verkefnaflokkur (millj. kr.) 2005   2006
Stofnkostnaður, flugvellir í grunneti 401,9 246,9
Stofnkostnaður, aðrir flugvellir 1,3 24,9
Stofnkostnaður, búnaður og verkefni 93,4 104,6
Viðhald 114,6 145,3
Alþjóðaflugþjónustan 15,0 15,0
Vaxtagjöld 3,3 2,3
Afskrifaðar aðrar kröfur 0,0 0,0
Samtals   629,5   539,0


2.2 Sundurliðun einstakra gjaldaliða.
2.2.1. Viðhald.

Tafla 23 Sundurliðun viðhalds borin saman við áætlun 2006.
  Staður/verkefnaflokkur (millj.kr.) Ráðstöfunarfé
2006      
Bókfærður kostnaður 2006
Yfirborð brauta og hlaða 96,2 48,3
Byggingar og búnaður 55,6 33,2
Ýmis verk v/flugleiðsögu og tæknibúnaðar 3,3 0,0
Tækjasjóður 92,9 63,8
Samtals   248,0 145,3

     Yfirborð brauta og hlaða. Undir þennan lið fellur allt yfirborðsviðhald flugbrauta og flughlaða sem hefur bundið slitlag, þ.e. malbik, klæðing og yfirborðsmerkingar. Helstu verkefni vegna malbiks voru viðgerðir í Reykjavík á flughlöðum við skýli 1 og 4 og á Akureyri voru viðgerðir á flugbraut. Til stóð að fara í verulegar viðgerðir á flughlaði á Akureyri en það var stöðvað vegna tímabundinnar frestunar á verkefnum á vegum ríkisins. Þegar henni var aflétt var of seint að bjóða verkið út á árinu. Flugbrautirnar á Akureyri og Egilsstöðum voru yfirsprautaðar með þeytibiki (Nyseal).
    Helstu verkefni vegna klæðingar voru vegna viðgerða á hluta flugbrautarinnar á Þórshöfn og yfirlagning á flugbraut og flughlað á Hornafirði með þeytibiki (Ralumac).
    Málaðar voru miðlínur á flugbrautunum í Reykjavík og allar yfirborðsmerkingar á flugbrautunum á Akureyri, Egilsstöðum, Þingeyri, Hornafirði og Stóra-Kroppi.
    Alls voru fjárveitingar samkvæmt áætlun ársins 2006 96,2 millj. kr., en bókfærður kostnaður á árinu nam 48,3 millj. kr.
     Byggingar og búnaður. Undir þennan lið fellur allt meiri háttar viðhald bygginga sem gert er sjaldnar en árlega. Fjárveitingar ársins voru 55,6 millj. kr., en framkvæmt var fyrir 33,2 millj. kr. Til stóð að framkvæma verulegt viðhald á skýli 3 á Reykjavíkurflugvelli, en vegna óvissu um skipulag flugvallarins var ekki ráðist í það á árinu en ráðgert á næsta ári.
     Ýmis verk vegna flugleiðsögu og tæknibúnaðar. Alls voru fjárveitingar samkvæmt áætlun ársins 2006, 3,3 millj. kr., en enginn bókfærður kostnaður var á árinu.
     Tækjasjóður. Ráðstöfunarfé tækjasjóðs á árinu 2006 voru 92,9 millj. kr., en keypt voru ýmis tæki og búnaður fyrir 63,8 millj. kr. á árinu 2006 eins og sést á eftirfarandi töflu:

Tafla 24 Sundurliðun tækjasjóðs (þús. kr.).      
Reykjavík, bifreið fyrir radíódeild 2.746
Reykjavík, pallur á vörubifreið 769
Akureyri, bifreið 4.446
Egilsstaðir, slökkvibifreið 50% 17.555
Egilsstaðir, vörubifreið 446
Egilsstaðir, snjótennur 1.063
Egilsstaðir, hjólaskófla 10.681
Egilsstaðir, notaður snjósópur 7.104
Þingeyri, slökkvibifreið frá Egilsstöðum 6.857
Bíldudalur, bátur og skýli 64
Ísafjörður, sanddreifari 3.925
Ísafjörður, vörubifreið með snjótönn 102
Viðgerðir og endurbygging tækja 1.208
Ýmis búnaður 3.617
Tækjasjóður, umsjón og ófyrirséð 3.256
Samtals       63.839

2.2.2 Stofnkostnaður.
2.2.2.1 Grunnnet.


Reykjavíkurflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Á árinu 2006 var fjárveiting til nefndar sem fjallar um athuganir vegna framtíðarstöðu Reykjavíkurflugvallar 13 millj. kr. Í árslok hafði verið bókaður kostnaður vegna starfa nefndarinnar 2,5 millj. kr.
     Byggingar. Hér er að mestu um að ræða tækja- og sandgeymslu. Lokið er við hönnun ásamt skipulagi og útboðsgögn liggja fyrir. Vegna óvissu um framtíðarskipulag á svæðinu hefur þetta verkefni ekki verið sett af stað. Til að leysa úr bráðri þörf á sandgeymslu var skýli 10 keypt árið 2005 og verður það nýtt sem sandgeymsla til bráðabirgða. Framlag til undirbúnings samgöngumiðstöðvar hefur verið fjármagnað af flugmálaáætlun og á árinu var kostnaður við verkefnið 0,8 millj. kr.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Í þennan verkefnalið voru til ráðstöfunnar á árinu 2006, 20,6 millj. kr. Þar af fóru 12,4 millj. kr. í uppsetningu nýrra aðflugsljósa við flugbraut 19.

Akureyrarflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var frágangsverkum við akbrautir og hlöð og varð kostnaður á árinu 1,8 millj. kr. Flugminjasafni var úthlutuð ný lóð og því varð að gera tengiveg að lóðinni. Þar sem aðrir lóðahafar sunnan við nýju sandgeymsluna gengu frá sínum lóðum og malbikuðu þótti ekki annað fært en að gera tengingu að þjóðvegi og inn á nýju hlöðin og var því sameinast um eitt verk og varð hluti Flugmálastjórnar 6,3 millj. kr. Til stóð að lagfæra bílastæðin við flugstöðina á árinu 2006 fyrir 11 millj. kr. en það var stöðvað vegna tímabundinnar frestunar á verkefnum á vegum ríkisins. Þegar henni var aflétt var of seint að bjóða verkið út á árinu. Framkvæmdum við endaöryggissvæði (RESA) var frestað til næsta árs þar sem áfangaskipting á því er ekki möguleg eins og áætlað var.
     Byggingar. Lokið var við nýja sandgeymslu ásamt rými fyrir brautarregla, vararafstöð og spennistöð. Ráðstöfunarfé var 0,4 millj. kr. Framkvæmdum er lokið og kostnaður stefnir í að vera á áætlun.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Á árinu 2006 var hafist handa við þéttingu aðflugsljósa en til ráðstöfunar voru 34,6 millj. kr. og er búið að framkvæma fyrir 23,8 millj. kr. Ljósabúnaður var keyptur og framkvæmdir voru vel á veg komnar í lok árs en verkið mun klárast 2007. Á árinu 2006 var settur upp nýr stefnusendir við flugbrautina. Heildarkostnaður vegna þeirrar framkvæmdar varð 24,9 millj. kr. og er verkinu lokið. Á árinu voru 12,8 millj. kr. til ráðstöfunar vegna aðflugsathugana, þar sem markmiðið var að lækka aðflugslágmörk og bæta öryggi. Vegna þessa var keypt vinna frá erlendum ráðgjafafyrirtækjum fyrir 5,9 millj. kr. Annar kostnaður á árinu nam 5,5 millj. kr. Til að lækka aðflugslágmörk var keyptur nýr radíóviti á Oddeyrina og hafist handa við uppsetningu. Einnig var ráðist í aðflugsathuganir þar sem nýr stefnusendir var settur á norðurenda flugbrautarinnar.

Egilsstaðaflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Unnið var við að setja upp tveggja metra háa girðingu út frá flugstöð og flugskýlum til að uppfylla kröfur vegna flugverndar. Þetta verk hefur tafist af ýmsum orsökum og er það nú langt komið, en lýkur ekki fyrr en næsta vor. Fjárveiting árið 2006 var 2,6 millj. kr., en framkvæmt var fyrir 1,6 millj. kr. á árinu.
     Byggingar. Staðið hefur til að setja útsog fyrir slökkvibifreið, en ekki hefur verið hægt að ljúka verkinu fyrr en nýja slökkvibifreiðin verður komin á staðinn, sem er áætlað í mars 2007. Fjárveiting ársins 2006 var 1,5 millj. kr.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Á árinu 2006 var settur upp nýr fjarlægðarmælir (DME) á Egilsstöðum. Reyndar var ætlunin að setja hann upp í Vestmannaeyjum, en þar sem fjarlægðarmælirinn á Egilsstöðum var orðinn mjög bilanagjarn og erfitt orðið að halda honum gangandi var ákveðið að setja hann upp á Egilsstöðum. Til þessa verks voru 12,5 millj. kr. og var framkvæmt fyrir 11,6 millj. kr. Fjarlægðarmælirinn er kominn upp og í notkun, einungis frágangsvinna er eftir. Á árinu 2006 voru 19,1 millj. kr. til ráðstöfunar vegna aðflugsljósa. Búið er að kaupa ljósabúnaðinn, en kostaðurinn nam 15,9 millj. kr. Vegna flutnings á radíóvitanum á Breiðavaði til Mýness var ráðstafað og framkvæmt fyrir 2,8 millj. kr. Sett var upp nýtt tækjahús, loftnet og rafmagn tengt inn og er verkinu lokið, fyrir utan að eftir er að flugprófa vitann.

Vestmannaeyjaflugvöllur/Bakki.
     Flugbrautir og hlöð. 1. áfangi við endurbætur á öryggissvæðum var boðinn út, en tilboðin voru svo óraunhæf og langt yfir kostnaðaráætun að þeim var öllum hafnað og ákveðið að bjóða út að nýju þegar spennan á markaðnum hefur minnkað. Því flyst fjármagnið til ársins 2007. Lokið var við stækkun á flughlaði á Bakkaflugvelli, nema ráðgert er að yfirleggja það með þeytibiki „Ralumac“ næsta sumar.
     Byggingar. Ekki var lokið við breytingar á sandgeymslunni vegna þess að húsið var tekið í notkun sem skýli fyrir sjúkraflugvél á meðan núverandi samningur um sjúkraflugið stendur. Lokið var innréttingum í flugturni, en þær hafa beðið síðan turninn var endurbyggður árið 2000. Kostnaður við innréttingarnar varð 10,4 millj. kr.


Tafla 25 Sundurliðun stofnkostnaður í grunnneti borinn saman við áætlun 2006.
Flokkur Staður/verkefnaflokkur (millj. kr.) Ráðstöfunarfé
2006
  Bókfærður kostnnaður 2006
3 Reykjavíkurflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 13,0 2,5
2. Byggingar 98,7 5,7
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 20,6 12,3
Samtals 132,3 20,5
4 Akureyrarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 34,5 9,6
2. Byggingar 0,4 0,2
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 55,7 61,5
Samtals 90,6 71,3
4 Egilsstaðaflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 2,6 1,6
2. Byggingar 1,4 3,9
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 22,0 30,3
Samtals 26,0 35,8
3 Vestmannaeyjaflugvöllur/Bakki
1. Flugbrautir og hlöð 25,8 5,4
2. Byggingar 13,1 12,5
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 26,9 3,9
Samtals 65,8 21,8
3 Ísafjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 30,9 31,4
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 9,1 9,7
Samtals 40,0 41,1
2 Þórshafnarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 47,0 47,0
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0,0 0,0
Samtals 47,0 47,0
2 Bíldudalsflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 0,6 0,6
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0,0 0,0
Samtals 0,6 0,6
2 Hornafjarðarflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 0,0 0,0
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 3,9 3,9
Samtals 3,9 3,9
4 Sauðárkróksflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 0,0 0,0
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 0,0 0,0
Samtals 0,0 0,0
Samtals áætlunarflugvellir í grunnneti 406,2   242,1

    Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Til stóð að setja upp ný PAPI-ljós á báðar flugbrautirnar og eru ljósin nú þegar komin til Vestmannaeyja. Einnig var ráðgert að setja upp eltiljós fyrir braut 31, en uppsetning er háð frágangi öryggissvæðanna sem ekki verður af fyrr en árið 2007. Ráðstöfunarfé á árinu 2006 til þessara verka var 14,1 millj. kr. og flyst það yfir á árið 2007. Nýr fjarlægðarmælir (DME), sem til stóð að setja upp í stað þess gamla sem var úr sér genginn, var settur upp á Egilsstöðum þar sem sá fjarlægðarmælir var í mun verra ástandi.

Í safjarðarflugvöllur/Þingeyri.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var við breikkun á öryggissvæðum Ísafjarðarflugvallar eins og hægt er með tilliti til landfræðilegra aðstæðna. Ráðstöfunarfé á árinu 2006 var 7,6 millj. kr., en kostnaður á árinu 2006 nam 8,5 millj. kr. Á árinu 2005 var hafist handa við gagngerar endurbætur á Þingeyrarflugvelli. Verkið var boðið út um vorið og átti verktaki að skila því 1. nóv. 2005, en ekki tókst að koma klæðingu á brautina vegna óhagstæðs veðurfars um haustið. Ekki tókst því að leggja bundið slitlag fyrr en vorið 2006 og var því flugbrautin ekki nothæf fyrr en að því loknu. Ráðstöfunarfé á árinu 2006 var 31,4 millj kr. Heildarkostnaður við endurbæturnar varð 188 millj. kr., sem er um 10% umfram upphaflega áætlun frá árinu 2004.

Þórshafnarflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Endurbyggja þurfti norðurhluta flugbrautarinnar vegna þess hve miklar frostlyftingar voru á þeim hluta. Þegar niðurstöður skoðana og ákvörðun um hvernig staðið yrði að verkinu lágu fyrir var það langt liðið á árið að ekki var ráðlegt að bjóða verkið út til framkvæmda á árinu 2005. Þess í stað var það boðið út í lok nóvember og jafnframt miðað við að verkið yrði unnið í maí og júní árið 2006. Kostnaður við endurbyggingu brautarinnar varð 41,8 millj. kr. og einnig var í sama verki teknar með endurbætur á öryggissvæðum fyrir 5,2 millj. kr.

Bíldudalsflugvöllur.
     Flugbrautir og hlöð. Lokið var við vatnslögn að bátaskýli björgunarbáts og varð kostnaður 0,6 millj. kr.

Hornafjörður.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Sett var upp ný vararafstöð sem er staðsett í vélageymslunni og lýkur þeirri framkvæmd á árinu 2007. Kostnaður á árinu 2006 varð 3,9 millj. kr., en áætlaðar eftirstöðvar eru 0,2 millj. kr.

2.2.2.2 Áætlunarflugvellir utan grunnnets.
    Áætlunarflugvellir utan grunnnets eru tveir, þ.e. Gjögurs- og Vopnafjarðarflugvellir. Engar fjárveitingar og framkvæmdir voru á Vopnafjarðarflugvelli á árinu 2006.

Gjögur.
     Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Árið 2005 var sett upp ný vararafstöð sem er í sjálfstæðum gámi við hlið flugstöðvarinnar. Lokatengingum lauk ekki fyrr en á árinu 2006. Kostnaður á árinu 2006 varð 1,4 millj. kr.

Tafla 26 Sundurliðun stofnkostnaður utan grunnnets borinn saman við áætlun 2006.
Flokkur Staður/verkefnaflokkur (millj. kr.) Ráðstöfunarfé
2006
  Bókfærður
kostnaður 2006
2 Gjögursflugvöllur
1. Flugbrautir og hlöð 0,0 0,3
2. Byggingar 0,0 0,0
3. Aðflugs- og flugöryggisbúnaður 1,4 1,4
Samtals 1,4 1,7
Samtals áætlunarflugvellir utan grunnnets 1,4 1,7

2.2.2.3 Aðrir flugvellir.
     Aðrir flugvellir og lendingarstaðir. Framkvæmdir á þessum lið hafa beðið eftir niðurstöðu vinnuhóps um svonefnda „sjúkraflugvelli“. Reynt var samhliða að fá upplýsingar um hvaða flugvellir væru mest notaðir af einkafluginu þannig að hægt væri að beina þessu litla fjármagni sem liðnum er ætlað á þá staði sem nýtast sem flestum. Til ráðstöfunar á þessum lið voru á árinu 2006, 22,1 millj. kr. Framkvæmt var fyrir 6,2 millj. kr. á árinu.
     Æfingaflugvöllur. Endurbygging vélflugbrautar á Sandskeiði var boðin út á árinu 2006 og hófust framkvæmdir undir haust þannig að ekki var hægt að ljúka verkinu og eru verklok áætluð í júní árið 2007. Framkvæmt var fyrir 18,7 millj. kr. á árinu 2006.

Tafla 27 Sundurliðun annarra flugvalla borin saman við áætlun 2006.
Flokkur Staður/verkefnaflokkur (millj. kr.) Ráðstöfunarfé
2006
  Bókfærður
kostnaður 2006
1 Aðrir flugvellir og lendingarstaðir 22,2 6,2
2 Æfingaflugvöllur 24,8 18,7
  Samtals 47,0   24,9

2.2.2.4     Ýmis stofnkostnaður, búnaður og verkefni.
     Flugstjórnarmiðstöð. Af þessum lið er greiddur hlutur Íslands í hinum ýmsu framkvæmdum á vegum Alþjóðaflugþjónustunnar hér á landi. Á árinu 2006 var þessi kostnaður 15 millj. kr.
    Eftirfarandi tafla sýnir ýmsan stofnkostnað, búnað og verkefni:

Tafla 28 Sundurliðun búnaðar og verkefna borin saman við áætlun 2006.
Staður/verkefnaflokkur (millj. kr.) Ráðstöfunarfé 2006   Bókfærður kostn. 2006
GPS/AIS/upplýsingaþjónusta 22,7 13,6
Flugprófunarbúnaður 16,0 11,9
Flugvernd og öryggismál 42,1 19,4
Ýmis búnaður 2,0 0,3
Flugleiðsaga, leiðarflug 14,8 14,9
Veðurupplýsingakerfi 3,8 0,3
Stjórnunarkostnaður 28,0 28,0
Þróun og frumáætlanir 15,9 16,2
  Samtals 145,3 104,6

     GPS/AIS/upplýsingaþjónusta. Unnið var á árinu 2006 við endurbætur á gæðakerfi upplýsingaþjónustunnar. Keypt var vinna vegna hindranakorta, GPS-mælinga og þjónustusamningur vegna AIP-útgáfuforrits var endurnýjaður. Einnig voru aðflugshönnuðir sendir á námskeið í PANS-OPS 1 vegna aðflugshönnunar. Kostnaður á árinu 2006 varð 13,6 millj. kr. Á árinu 2006 voru 9,1 millj. kr. til kaupa á aðflugshönnunarforriti „PD-Tool Kit“. Ekki hafa verið fest kaup á forritinu vegna vandamála sem upp hafa komið við gagnagrunn sem nota á. Þegar gagnagrunnsmálin eru komin í lag verða fest kaup á hönnunarforritinu sem kostar um 9 millj. kr.
    Flugprófunarbúnaður. Á árinu 2006 var varið 11,9 millj. kr. til kaupa á nýjum flugprófunarbúnaði.
     Flugvernd og öryggismál. Á árinu 2006 var áfram unnið að ýmsum flugverndar- og öryggismálum á flugvöllunum og til þess varið 19,4 millj. kr. Helstu verkefni voru áframhaldandi innleiðing flugverndarráðstafana á millilandaflugvöllunum í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum, með hliðsjón af breyttum og auknum kröfum reglugerðarverks Evrópusambandsins. Meðal annarra verkefna voru kaup á annarri vopnaleitarvél og breytingar á aðstöðu á Egilsstaðaflugvelli, kaup og uppsetning á aðgangstjórnarkerfi fyrir Akureyrarflugvöll, kaup á þjálfunarbúnaði vegna vopnaleitar, aukin flugverndarlýsing á Egilsstaðarflugvelli, breytingar á aðgangsstjórnarkerfi Reykjavíkurflugvallar og kaup á tækjum og búnaði vegna flugverndarráðstafana.
     Veðurupplýsingakerfi. Flugkerfi ehf. hafa unnið að lagfæringum á miðlæga veðurkerfinu sem safnar öllum veðurgögnum á miðlæga tölvu til framtíðargreiningar. Á árinu 2006 var ráðstafað og framkvæmt fyrir 0,3 millj. kr.
     Flugleiðsaga, leiðarflug. Á árinu 2006 var ráðstafað 2 millj. kr. vegna endurnýjunar talstöðva á Þverfjalli. Talstöðvarnar voru keyptar en eftir er að setja þær upp. Kostnaður á árinu varð 1,8 millj. kr. Á árinu 2006 var 13,6 millj. kr. varið vegna uppsetningar og kaupa á nýjum stefnusendi á Vaðlaheiði. Búið er að kaupa búnaðinn og koma honum fyrir, en aðeins eftir að flugprófa. Kostnaður á árinu varð 13,1 millj. kr.

2.3 Flokkun flugvalla.
    Með þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005–2008 breyttist flokkun flugvalla frá fyrri þingsályktunum um flugmálaáætlun. Flugvellir eru nú flokkaðir á eftirfarandi hátt: 1. Flugvellir í grunnneti. 2. Áætlunarflugvellir utan grunnnets. 3. Aðrir flugvellir utan grunnnets.

2.3.1     Flugvellir í grunnneti.
    Eftirfarandi eru áætlunarflugvellir í grunnneti: Reykjavíkur-, Akureyrar-, Egilsstaða-, Vestmannaeyja/Bakka-, Ísafjarðar/Þingeyrar-, Hornafjarðar-, Sauðárkróks-, Grímseyjar-, Bíldudals- og Þórshafnarflugvöllur.

2.3.2     Áætlunarflugvellir utan grunnnets.
    Eftirfarandi eru áætlunarflugvellir utan grunnnets: Vopnafjarðar- og Gjögursflugvöllur.

2.3.3     Aðrir flugvellir utan grunnnets.
    Eftirfarandi eru aðrir flugvellir utan grunnnets: Húsavíkur-, Norðfjarðar-, Patreksfjarðar-, Raufarhafnar-, Reykjahlíðar-, Rifs-, Siglufjarðar-, Blönduóss-, Sandskeiðs- og Stykkishólmsflugvöllur.
    Aðrir lendingarstaðir eru: Arngerðareyri, Breiðdalsvík, Borgarnes, Dagverðará, Fagurhólsmýri, Fáskrúðsfjörður, Flúðir, Hella, Geysir, Grímsstaðir, Borgarfjörður eystri, Búðardalur, Djúpivogur, Gunnarsholt, Herðubreiðarlindir, Húsafell, Hólmavík, Króksstaðamelar, Hveravellir, Ingjaldssandur, Kaldármelar, Kerlingarfjöll, Kirkjubæjarklaustur, Kópasker, Melgerðismelar, Nýidalur, Reykhólar, Reykjanes, Selfoss, Skálavatn, Skógarsandur, Stóri-Kroppur, Sprengisandur, Vík og Þórsmörk.

2.3.4     Flokkun flugvalla eftir alþjóðlegum staðli.
    Flugvellir eru einnig flokkaðir eftir staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar samkvæmt viðauka 14. Þar er miðað við brautarlengdir og flugvélagerðir eins og sést í eftirfarandi töflu:

Tafla 29 Flokkun flugvalla samkvæmt viðmiðun ICAO, viðauka 14.
  Viðmiðun 1 Viðmiðun 2
Flokkur Flugbrautarlengd Flokkur Vænghaf Breidd milli hjóla
1 Styttri en 800 m A Styttra en 15 m Styttri en 4,5 m
2 800 m að 1.200 m B 15 m að 24 m 4,5 m að 6 m
3 1.200 m að 1.800 m C 24 m að 36 m 6 m að 9 m
4 1.800 m og lengri D 36 m að 52 m 9 m að 14 m
    E 52 m að 65 m 9 m að 14 m

2.4 Þróun flutninga.
    Á undanförnum árum hefur farþegum í innanlandsflugi fjölgað jafnt og þétt og náði fjölgunin hámarki árið 1999, en hefur síðan farið fækkandi. Á árunum 1982–2006 var aukningin um 60,3%. Á árinu 2006 fjölgaði farþegunum frá árinu áður um 7%. Þróunin hefur orðið sú að farþegum sem fara um stærri flugvellina hefur fjölgað verulega enda ferðatíðni meiri að undanskildum Ísafjarðarflugvelli, en þar hefur farþegum sem fara um flugvöllinn fækkað töluvert, eða um 17,7% frá árinu 1999. Á móti hefur farþegum fækkað sem notuðu minni flugvellina, en það hefur leitt til þess að áætlunarflugi hefur verið hætt til margra áfangastaða undanfarin ár.
    Myndin hér að neðan sýnir þróun farþegaflutninga í innanlandsflugi 1982–2006:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Betri vegir út frá Reykjavík um Vesturland og norður í land hafa fyrst og fremst gert það að verkum að áætlunarflugi til flugvallanna á Snæfellsnesi, Hólmavík og Blönduósi var hætt þar sem flugið gat ekki keppt við einkabílinn. Þá hefur einnig bætt vegakerfi milli byggða í einstökum landshlutum stuðlað að þessari þróun, t.d. á Vestfjörðum og Austurlandi. Aðallega hefur arðsemiskrafa flugrekenda nú á allra síðustu árum leitt til þessarar þróunar, sbr. að hætt hefur verið áætlunarflugi til Húsavíkur og Siglufjarðar.
    Þegar borin eru saman árin 1999 þegar farþegaflutningar voru mestir og árið 2006 hefur farþegum sem fóru um áætlunarflugvelli í grunnneti fækkað um 2,1%. Þó hefur farþegum sem fóru um Egilsstaða- og Bakkaflugvelli fjölgað gríðarlega á þessu tímabili og lítils háttar fjölgun hefur orðið á farþegum til og frá Akureyri. Virkjana- og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi eiga verulegan þátt í fjölgun farþega um Egilsstaðaflugvöll, en fjölgun farþega sem fóru um Bakkaflugvöll er að nokkru leyti vegna minna framboðs á flugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja undanfarin ár.
    Eftirfarandi töflur sýna fjölda farþega sem fóru um áætlunarflugvelli í grunnneti og utan grunnnets árin 1999 annars vegar og 2006 hins vegar:

Tafla 30 Áætlunarflugvellir í grunnneti, farþegaflutningar 1999 og 2006.
Flugvellir 1999 Hlutfall 2006 Hlutfall Breyting
Reykjavík 454.469 48,5% 420.047 45,8% -7,6%
Akureyri 194.404 20,8% 201.957 22,0% 3,9%
Vestmannaeyjar 89.013 9,5% 47.523 5,2% -46,6%
Egilsstaðir 76.910 8,2% 150.748 16,5% 96,0%
Ísafjörður 54.171 5,8% 44.604 4,9% -17,7%
Hornafjörður 19.823 2,1% 8.873 1,0% -55,2%
Sauðárkrókur 14.726 1,6% 5.644 0,6% -61,7%
Bíldudalur 7.553 0,8% 3.418 0,4% -54,7%
Grímsey 3.845 0,4% 3.385 0,4% -12,0%
Þórshöfn 1.912 0,2% 1.076 0,1% -43,7%
Þingeyri 2.532 0,3% 832 0,1% -67,1%
Bakki 16.975 1,8% 28.222 3,1% 66,3%
Samtals 936.333 100,0% 916.329 100,0% -2,1%

Tafla 31 Áætlunarflugvellir utan grunnnets, farþegaflutningar 1999 og 2006.
Flugvellir 1999 Hlutfall 2006 Hlutfall Breyting
Vopnafjörður 2.904 85,5% 1.870 82,7% -35,6%
Gjögur 492 14,5% 392 17,3% -20,3%
Samtals 3.396 100,0% 2.262 100,0% -33,4%

    Þegar þróun farþegaflutninga með flugi frá árinu 1999 er skoðuð eftir landshlutum kemur eftirfarandi í ljós:

Tafla 32 Farþegaflutningar eftir landshlutum.
Flugvellir 1999 Hlutfall 2006 Hlutfall Breyting
Vestfirðir 66.271 6,9% 49.246 5,3% -25,7%
Norðurland 233.035 24,3% 214.289 23,3% -8,0%
Austurland 99.752 10,4% 161.554 17,5% 62,0%
Suðurland 105.988 11,0% 75.745 8,2% -28,5%
Reykjavík 454.469 47,4% 420.047 45,6% -7,6%
Samtals 959.515 100,0% 920.881 100,0% -4,0%

    Eins og taflan sýnir er fækkun farþega með flugi á þessu tímabili 4%, en eins og áður er getið, veruleg fjölgun farþega til Austurlands um Egilsstaðaflugvöll.
    Vöru- og póstflutningar með flugi hafa verið á stöðugu undanhaldi á undanförnum árum, eins og sést á myndinni hér að neðan og töluverð fækkun varð á milli áranna 2005 og 2006 eða um 13,6%.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Á töflunni hér að neðan sést hvernig þróunin hefur verið frá árinu 1999 eftir landshlutum:

Tafla 33 Vöru- og póstflutningar í tonnum eftir landshlutum.          
Flugvellir 1999 Hlutfall 2006 Hlutfall Breyting
Vestfirðir 415 11,6% 345 12,0% -16,9%
Norðurland 778 21,8% 537 18,7% -31,0%
Austurland 429 12,0% 484 16,9% 12,8%
Suðurland 183 5,1% 137 4,8% -25,1%
Reykjavík 1.768 49,5% 1.367 47,6% -22,7%
Samtals 3.573 100,0% 2.870 100,0% -19,7%



Fylgiskjal I.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Fylgiskjal II.

    Eftirfarandi tafla sýnir stofnkostnað einstakra flugvalla árin 1988–2006:
Stofnkostnaður flugvalla 1988–2006 (þús. kr.).
Flugvellir í grunnneti og utan grunnnets eru áætlunarflugvellir.
Framreiknað til núvirðis samkvæmt byggingarvísitölu (368,2 í mars 2007).  
Staður 1988–2002 2003–2005 2006 Samtals Hlutfall
Reykjavík 3.282.999 181.659 21.629 3.486.287 30,3%
Akureyri 1.074.157 162.171 75.105 1.311.433 11,4%
Egilsstaðir 2.124.813 11.739 37.648 2.174.200 18,9%
Vestmannaeyjar 636.333 15.648 18.809 670.790 5,8%
Bakki 127.130 56.600 4.195 187.925 1,6%
Ísafjörður 509.884 123.329 12.661 645.874 5,6%
Þingeyri 69.646 181.387 33.826 284.859 2,5%
Hornafjörður 302.669 1.987 4.158 308.814 2,7%
Sauðárkrókur 286.553 0 0 286.553 2,5%
Grímsey 126.142 179.818 0 305.960 2,7%
Bíldudalur 210.605 3.308 632 214.545 1,9%
Þórshöfn 325.837 633 49.453 375.923 3,3%
Flugvellir í grunnneti 9.076.768 918.279 258.115 10.253.162 89,0%
Vopnafjörður 90.291 0 0 90.291 0,8%
Gjögur 83.350 6.103 1.790 91.243 0,8%
Flugvellir utan grunnnets 173.641 6.103 1.790 181.534 1,6%
Aðrir flugvellir 980.045 1.485 0 981.530 8,5%
Lendingarstaðir 58.043 14.626 26.231 98.900 0,9%
Aðrir flugvellir og lendingarstaðir 1.038.088 16.111 26.231 1.080.430 9,4%

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Samtals
10.288.497 940.493 286.135 11.515.125 100,0%
Fylgiskjal III.

    Eftirfarandi tafla sýnir heildarfjárfestingar til einstakra flugvalla 1988–2006,ásamt fjölda farþega sem fóru um flugvellina á sama tíma:

Fjárfestingar á flugvöllum 1988–2006.
Fjöldi farþega sem fóru um flugvellina 1988–2006.
Framreiknað til núvirðis samkvæmt byggingarvísitölu (368,2 í mars 2007).
Staður

Fjárhæð í þús. kr.

Fjöldi farþega

Fjárfesting miðuð
við farþega
Reykjavík 3.486.287 6.834.948 510
Akureyri 1.311.433 2.903.489 452
Egilsstaðir 2.174.200 1.341.435 1.621
Vestmannaeyjar 670.790 1.301.711 515
Bakki 187.925 206.091 912
Ísafjörður 645.874 918.822 703
Þingeyri 284.859 35.204 8.092
Hornafjörður 308.814 280.466 1.101
Sauðárkrókur 286.553 210.646 1.360
Grímsey 305.960 68.824 4.446
Bíldudalur 214.545 105.880 2.026
Þórshöfn 375.923 34.762 10.814
Vopnafjörður 90.291 54.191 1.666
Gjögur 83.350 11.812 7.056
Húsavík 276.162 183.021 1.509
Patreksfjörður 102.971 59.549 1.729
Norðfjörður 86.780 31.558 2.750
Siglufjörður 79.277 44.470 1.783
Hólmavík 102.017 10.062 10.139
Raufarhöfn 23.486 9.176 2.560
Kópasker 41.618 4.507 9.234
Flateyri 25.065 30.741 815
Mývatn 89.772 38.799 2.314
Borgarfjörður eystri 30.628 1.491 20.542
Ólafsfjörður 517 6.012 86
Breiðdalsvík 9.476 3.068 3.089
Blönduós 26.106 11.247 2.321
Stykkishólmur 821 6.885 119
Rif 70.911 14.024 5.056
Samtals 11.392.410   14.762.891 772




Fylgiskjal IV.


Eftirfarandi tafla og mynd sýna rekstrarframlag á hvern farþega sem fóru um áætlunar flugvellina á árunum 2005 og 2006:
Rekstrarframlag á hvern farþega árin 2005 og 2006.    
Staður 2005 2006

Breyting

Reykjavík 529 597 12,8%
Akureyri 753 779 3,5%
Egilsstaðir 573 630 10,0%
Vestmannaeyjar 1.167 1.370 17,4%
Bakki 490 517 5,4%
Ísafjörður 925 1.064 15,0%
Þingeyri 7.690 7.845 2,0%
Hornafjörður 1.969 2.549 29,5%
Sauðárkrókur 2.025 2.265 11,9%
Bíldudalur 3.231 4.141 28,2%
Grímsey 1.371 1.845 34,6%
Þórshöfn 4.553 7.772 70,7%
Vopnafjörður 5.538 4.656 -15,9%
Gjögur   9.520   14.997   57,5%

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal V.


Þróun flutninga 1995–2006.
    Eftirfarandi myndir sýna þróun farþega-, vöru- og póstflutninga milli áranna 1995 og 2006. Mjög mikil breyting hefur átt sér stað í farþegaflutningum í innanlandsflugi á fyrrgreindu tímabili. Flug til margra áfangastaða hefur lagst af, en stóraukist frá Reykjavík til stærri áfangastaða eins og Akureyrar og Egilsstaða.
    Vöru- og póstflutningar með flugi hafa minnkað verulega frá árinu 1982. Póstflutningar milli landshluta eru nú að mestu leyti með bílum og vöruflutningar einnig, nema til staða eins og Vestmannaeyja og Grímseyjar.

Áætlunarflugvellir í grunnneti:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Áætlunarflugvellir utan grunnnets.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Neðanmálsgrein: 1
    1 Procedures for Air Navigation Services – Aircraft Operations.