Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 28. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 968  —  28. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um millilandaflug um Ísafjarðarflugvöll.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá Byggðastofnun, Icelandair ehf., innanríkisráðuneyti, Isavia ohf., Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, Norlandair ehf. og Veðurstofu Íslands.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi feli innanríkisráðherra (áður samgönguráðherra) að tryggja að á Ísafjarðarflugvelli sé nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi með flugvélum sem núna hafa heimild til þess að fljúga um völlinn.
    Í greinargerð með tillögunni kemur m.a. fram að um árabil hafi verið allmiklar flugsamgöngur á milli Ísafjarðar og Grænlands. Er á það bent að slík starfsemi hafi skapað umsvif og tekjur og opnað nýja möguleika til samskipta á milli Vestfjarða og Grænlands. Er það mat tillöguhöfunda að slík samskipti séu mikilvæg enda sé landfræðilega stutt á milli Ísafjarðar og Grænlands.
    Margir umsagnaraðila fagna tillögunni, fagna framkomu hennar eða gera ekki athugasemdir við efni hennar. Þá er viðleitni þingmanna til að auka umsvif og hagræði í millilandaflugi fagnað sérstaklega. Byggjast skoðanir framangreindra aðila hvað helst á sjónarmiðum um að efla beri grundvöll flugrekstrar á Íslandi og að auka eigi samstarf milli Íslands og Grænlands. Þá er talið nauðsynlegt að hamla gegn því að flugrekstur þjappist saman á fáa staði landsins. Vakin er athygli á sjónarmiðum sem fram koma í áliti Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins. Þar segir m.a. að samskipti Íslands og Grænlands hafi eflst mjög síðustu ár og að komið hafi fram hugmyndir sem snúa að vöruflutningum og þjónustu við austurströnd Grænlands, þ.m.t. heilbrigðisþjónustu, þjónustu tengdri námavinnslu, rannsóknarleiðöngrum og ferðamennsku auk samvinnu á sviði menningar- og menntamála svo að fátt eitt sé talið. Er það álit Íslandsdeildar að Grænlandsflug frá Ísafjarðarflugvelli mundi stórauka vöruflutninga og þjónustu á milli Íslands og austurstrandar Grænlands og hafa mikla þýðingu fyrir byggðarlögin þar, Vestfirði og vestnorrænt samstarf í heild sinni. Njóta framangreind sjónarmið stuðnings í umsögn Norlandair ehf. sem deilir reynslu sinni af Grænlandsflugi með nefndinni, eins og segir í umsögn flugfélagsins: „Nálægð Ísafjarðarflugvallar er lykilatriði sem gerir flugvélum kleift að fljúga fram og til baka með viðunandi farm, án þess að taka eldsneyti á Grænlandi. Fullyrða má að ekki væri um flugsamgöngur að ræða inn á þessar slóðir ef Ísafjarðarflugvallar nyti ekki við. Vísindaleiðangrar til Grænlands krefjast mikils undirbúnings og er afar mikilvægt að hægt sé að reiða sig á Ísafjarðarflugvöll í því sambandi. Þótt viðkomandi stjórnvöld hafi reynt að verða við óskum um undanþágur er slíkt fyrirkomulag auðvitað alls óviðunandi til frambúðar.“
    Á hinn bóginn ber að geta þess að innanríkisráðuneyti vísar í umsögn sinni um málið til þess að samgöngur á milli Ísafjarðar og Grænlands séu ekki meðal grunnþarfa samfélagsins og því ekki meðal forgangsverkefna. Þá vekur ráðuneytið athygli á því að tillögunni fylgi ekki kostnaðaráætlun, hagkvæmnigreining, fjármagn, upplýsingar um hvaða tiltekin verkefni eigi að ráðast í til að nýta fjárfestinguna og hvaða skuldbindingar liggi að baki henni. Virðist spurningum ráðuneytisins að nokkru svarað í umsögn Isavia ohf. þar sem gerð er tilraun til þess að skilgreina þann kostnað sem framkvæmd tillögunnar hefði í för með sér frá sjónarhóli fyrirtækisins.
    Í einni umsögn kom fram að mögulega væri eðlilegt að gera breytingar á heiti og orðalagi tillögunnar. Er það skilningur nefndarinnar að umsagnaraðilinn telji að slíkar breytingar kunni að undirstrika sérstöðu hennar betur.
    Á fundum nefndarinnar komu fram verulegar efasemdir um að kostnaðarútreikningur sem fylgdi umsögn Isavia ohf. væri að öllu leyti réttur. Var á það bent að Ísafjarðarflugvöllur hefði á árum áður og um langt skeið gegnt hlutverki millilandaflugvallar. Af þeim sökum væri ýmis nauðsynlegur tækjabúnaður, hæft og sveigjanlegt starfsfólk og aðstaða þegar til staðar. Í kjölfar þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu hefði staða flugvallarins breyst en við slíku ætti að vera hægt að bregðast án mikils kostnaðar.
    Nefndin tekur undir framkomin orð þeirra umsagnaraðila sem hvatt hafa til samþykktar tillögunnar. Fagnar nefndin því sérstaklega hve jákvæðum augum flugrekendur og aðrir hagsmunaaðilar líta aukna möguleika í flugrekstri á Íslandi. Bera skoðanir og hvatningarorð margra umsagnaraðila með sér þá einurð sem einkennir íslenskt atvinnulíf. Þá telur nefndin að ekki verði hjá því litið að framkvæmd hugmynda um Grænlandsflug verður að byggja á raunhæfum og gaumgæfðum forsendum. Að auki fellst nefndin á að skerpa megi á heiti og orðalagi tillögunnar.
    Í ljósi þess sem fram hefur komið og þeirra hagsmuna sem tillögunni er ætlað að styðja við leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi:

BREYTINGUM:



     1.      Tillögugreinin orðist svo:
                  Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að gera úttekt á kostnaði og mögulegum leiðum til þess að tryggja að á Ísafjarðarflugvelli verði nægjanlegur búnaður og aðstaða til að unnt verði að sinna þaðan flugi til Grænlands. Úttektin og niðurstöður hennar verði kynntar samgöngunefnd Alþingis eins fljótt og auðið er.
     2.      Heiti tillögunnar verði: Tillaga til þingsályktunar um flug til Grænlands um Ísafjarðarflugvöll.
    
    Ólína Þorvarðardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 7. mars 2011.



Björn Valur Gíslason,


form., frsm.


Róbert Marshall.


Árni Johnsen.



Guðmundur Steingrímsson.


Lilja Rafney Magnúsdóttir.


Ásbjörn Óttarsson.



Mörður Árnason.


Sigmundur Ernir Rúnarsson.