Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 334. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1429  —  334. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hönnu S. Gunnsteinsdóttur frá velferðarráðuneyti, Hildi Jónsdóttur frá forsætisráðuneyti, Guðjón Bragason og Önnu Guðrúnu Björnsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Halldóru Gunnarsdóttur frá Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur, Margréti Steinarsdóttur frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, Brynhildi Flóvenz og Þorgerði Einarsdóttur frá Háskóla Íslands, Halldór Grönvold frá Alþýðusambandi Íslands, Sonju Þorbergsdóttur frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og Ingibjörgu Elíasdóttur frá Jafnréttisstofu. Í tengslum við umfjöllun um tillöguna fékk nefndin einnig á sinn fund Evu Bjarnadóttur og Eygló Árnadóttur sem kynntu skýrsluna Konur í kreppu? þar sem greind eru áhrif efnahagshrunsins á velferð kvenna. Þá hélt nefndin fund um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð og fékk á sinn fund af því tilefni Dr. Diane Elson og Dr. Susan Himmelweit, sem hafa m.a. unnið með hópi sérfræðinga sem hafa það að markmiði að stuðla að auknu jafnrétti kynja með því að leggja mat á efnahagsstefnur og áætlanagerð.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Persónuvernd, Tryggingastofnun ríkisins, Reykjanesbæ, Bláskógabyggð, Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, Félagi náms- og starfsráðgjafa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkustofnun, Akureyrarbæ, Kærunefnd jafnréttismála, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Umboðsmanni barna, Kvenréttindafélagi Íslands, landssamtökunum Þroskahjálp, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, félagsmálanefnd Fljótdalshéraðs, Fljótdalshrepps, Djúpavogshrepps, Vopnafjarðarhrepps, Borgarfjarðar eystri og Seyðisfjarðar, Háskólanum á Akureyri, Kvenfélagasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Seðlabanka Íslands, Byggðastofnun, Hagsmunasamtökum heimilanna, Jafnréttisstofu, Landlæknisembættinu, Lýðheilsustöð, ríkislögreglustjóra, Bandalagi háskólamanna, Háskóla Íslands, Hrunamannahreppi og fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar. Þar sem tillagan snertir mörg málefnasvið og gert er ráð fyrir þátttöku allra ráðuneyta sendi nefndin beiðni til annarra fastanefnda Alþingis þar sem óskað var eftir því að þær fjölluðu um þá þætti tillögunnar sem féllu að málefnasviði hverrar nefndar. Nefndirnar skiluðu allar áliti og fylgja þau áliti þessu sem fylgiskjöl.
    Tillagan felur í sér áætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum, flokkaða eftir áherslusviðum á sviði jafnréttismála. Áætlunin hefur þann tilgang að styrkja stöðu jafnréttismála á Íslandi með fjölbreyttum aðgerðum. Með henni er skilgreind stefna stjórnvalda og lýst verkefnum sem ýmist varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10. maí 2009 var mörkuð sú stefna að styrkja skyldi stöðu jafnréttismála í stjórnkerfinu. Samkvæmt yfirlýsingunni hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf. Þannig verði kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar svo að þær gagnist bæði konur og körlum með fjölbreyttan bakgrunn. Einnig verði gripið til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun í samvinnu við hagsmunasamtök og aðila vinnumarkaðarins, lokið við gerð jafnréttisstaðla og starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta eflt auk þess sem unnið verði úr tillögum jafnréttisvaktarinnar. Fyrirliggjandi áætlun er því í samræmi við yfirlýsinguna. Þá er vert að geta þess að í stefnumarkandi áætlun ríkisstjórnarinnar, Ísland 2020, þar sem stefnt er að því að árið 2020 verði Ísland öflugt samfélag sem stendur vörð um velferð á sjálfbæran hátt í þágu allra hópa samfélagsins, er gengið út frá því að öll verkefni sem tengjast Íslandi 2020 taki tillit til kynjasjónarmiða.

1. Jafnréttisáætlun.

    Nefndin fagnar fyrirliggjandi tillögu. Jafnréttisáætlunin er sett fram á greinargóðan hátt, henni er skipt upp eftir málaflokkum og áherslum þar sem koma fram mælanleg markmið fyrir hverja aðgerð. Umsagnaraðilar fagna flestir tillögunni þótt sumir telji þörf á því að ganga lengra í að treysta jafnrétti en gert er. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og leggur til nokkrar breytingar á áætluninni sem gerð verður nánari grein fyrir hér á eftir. Nefndinni bárust ýmsar athugasemdir er varða ný verkefni eða breytingar á þeim verkefnum sem eru í áætluninni. Nefndin áréttar að við endurskoðun áætlunarinnar, sem og við gerð næstu jafnréttisáætlunar, sé rík ástæða til að huga sérstaklega að nýjum verkefnum sem ekki verður við komið að þessu sinni. Brýnt er þá að huga að því hversu vel slík verkefni samrýmast markmiðum jafnréttisáætlunar í heild, hversu mikilvæg, skýr og mælanleg þau eru, hvernig framkvæmd þeirra og eftirfylgni með þeim verður háttað, sem og mati á þeim.
     Nokkur umræða varð um það í nefndinni í hversu ríkum mæli tilteknir liðir áætlunarinnar ganga einfaldlega út á að farið sé að lögum. Þannig miða nokkur verkefni tillögunnar að því að fá mismunandi aðila til að fara að lögum nr. 10/2008, um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla (jafnréttislögum), t.d. verkefni í 7. tölul. um hlut kynja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum stjórnvalda og verkefni í 20. tölul. um hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja og stofnana. Þá leggur nefndin sjálf til nýtt verkefni í þessum anda, sbr. verkefni um kynjagreiningu upplýsinga og breytingu á 10. tölul. áætlunarinnar sem nánar er fjallað um í kafla um vinnumarkað og launamisrétti kynjanna hér á eftir.
    Það er umhugsunarefni að þörf sé á slíkum átaksverkefnum til að minna opinbera aðila, stofnanir og fyrirtæki á að þeim beri skylda til að fara að landslögum. Það er von nefndarinnar að í næstu jafnréttisáætlun verði enn meira pláss fyrir ný og mikilvæg verkefni sem stuðla að jafnrétti kynjanna og ekki verði þá lengur þörf á ítrekuðum áminningum og átaksverkefnum sem snúa að því einu að farið sé að lögum.

2. Markmið, árangursmat og eftirfylgni.
    Nefndin ræddi þónokkuð markmiðssetningu áætlunarinnar og einstakra verkefna hennar en ekki virðist alltaf skýrt hvert markmið einstakra verkefna er. Nefndin leggur til breytingar á stöku stað sem nánar er farið yfir hér á eftir. Nefndin telur ljóst að markmið áætlunar í jafnréttismálum sé að stuðla að jafnrétti kynjanna enda er lögbundið í 11. gr. jafnréttislaga að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum sem ráðherra leggur fyrir Alþingi á fjögurra ára fresti skuli fela í sér verkefni sem ætlað er að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla í íslensku samfélagi, sbr. 1. gr. laganna.
    Nefndin leggur þó ríka áherslu á að einstök verkefni hafi skýr og mælanleg markmið þannig að unnt sé að fylgjast með framgangi þeirra, meta stöðu þeirra og árangur af þeim. Þetta er ekki hvað síst mikilvægt þegar horft er til þess að skv. 38. tölul. tillögunnar er gert ráð fyrir því að áætlunin verði árangursmetin og eftir atvikum endurskoðuð að tveimur árum liðnum. Nefndinni var kynnt að stefnt væri að því að kalla eftir ítarlegri verkefnalýsingu einstakra liða þar sem einnig kæmi fram skýrari markmiðssetning, nánari tímasetningar og skilgreindir væru ábyrgðaraðilar. Telur nefndin mikilvægt að ráðherranefnd um jafnrétti kynja, sbr. 1. tölul. tillögunnar, setji skýrar reglur um þessa verkefnalýsingu þannig að ljóst sé hvert markmið hvers verkefnis er, hver beri ábyrgð á því og hvenær áætlað sé að ljúka því eða einstökum hlutum þess. Nefndin bendir á að þetta samræmist hlutverki ráðherranefndarinnar eins og það er skilgreint í 1. tölul. tillögunnar um að fylgja eftir framkvæmdaáætlun ríkistjórnarinnar í jafnréttismálum.

3. Skipun í nefndir, ráð og stjórnir.
    Allmargir umsagnaraðilar gerðu athugasemdir við verkefni sem lýst er í 7. tölul. áætlunarinnar þar sem kveðið er á um að ráðuneytin stefni að því að ná 40:60 markmiðinu við skipun í nefndir, ráð og stjórnir og viðhalda því, sbr. 15. gr. jafnréttislaga. Nefndin áréttar að greinin felur í sér að við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Það er því skýr lagaskylda að tryggja sem jafnast hlutfall kynjanna og um 40:60 markmiðið. Leggur nefndin því til breytingu á ákvæðinu þessu til samræmis og bendir á mikilvægi þess að ráðuneytin fari að lögum um þetta efni og tryggi sem jafnast hlutfall kynjanna við skipun. Þá telur nefndin óþarft að kveða á um það í áætluninni að Jafnréttisstofa hafi eftirlit með fjölda kvenna og karla í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytanna enda sinnir stofan þessu hlutverki nú þegar og ber skylda til þess, sbr. a-lið 3. mgr. 4. gr. jafnréttislaga þar sem stofunni er falið að hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Nefndin telur mikilvægt að upplýsingar um hlut kynjanna séu aðgengilegar og birtar opinberlega og leggur því til að auk þess að Jafnréttisstofa birti þessar upplýsingar á vef sínum verði ráðuneytunum skylt að gera það einnig fyrir lok hvers árs.
    Nefndinni voru einnig kynnt sjónarmið þess efnis að mikilvægt væri að kynna hlutafélögum og einkahlutafélögum að 1. september 2013 tækju gildi ákvæði laga nr. 13/2010 sem leggja sambærilega skyldu á hlutafélög og einkahlutafélög þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn. Þegar ákvæðið tekur gildi skal hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn slíkra félaga þegar stjórn er skipuð þremur mönnum og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Nefndinni var bent á að á jafnréttisþingi 4. febrúar sl. hafi komið fram að hlutafélög virðist ekki undirbúa sig fyrir þessa breytingu. Nefndin telur kynningu á þessari skyldu fyrirtækjanna falla vel að 20. tölul. áætlunarinnar sem fjallar um hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja og stofnana, en þar er gert ráð fyrir að efnt verði til fræðslu um ábyrgð og skyldur stjórnenda og stjórnarmanna í fyrirtækjum. Þá er í athugasemdum við áætlunina skýrt að eitt af þeim atriðum sem efna skal til fræðslu um er fyrrnefnt ákvæði um hlut kvenna í stjórnum sem fær gildi 2013. Til skýringar leggur nefndin því til breytingar á orðalagi ákvæðisins þannig að skýrt verði að vekja eigi athygli á gildistöku laganna með upplýsingagjöf og kynningarefni.

4. Jafnréttisfulltrúar.
    Í 3. og 4. tölul. tillögunnar er jafnréttisfulltrúum ráðuneyta falið að móta heildstæða áætlun til fjögurra ára um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða inn í stefnumótun og ákvarðanatöku ráðuneyta og opinberra stofnana og að vinna að kynjasamþættingu á málefnasviði hlutaðeigandi ráðuneytis. Þá er þeim skv. 37. tölul. falin eftirfylgni framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum í samstarfi við Jafnréttisstofu og sérfræðinga ráðuneytisins. Jafnréttisfulltrúum er því falið ansi viðamikið hlutverk og ræddi nefndin stöðu þeirra sérstaklega. Fram komu í máli gesta áhyggjur af mismunandi stöðu jafnréttisfulltrúa, þeir væru í mismunandi stöðum innan ráðuneytanna og hefðu mismunandi bakgrunn, menntun og reynslu. Þá væru þeim falin mjög viðamikil verkefni samkvæmt áætluninni en ekki kveðið á um hversu miklum tíma þeir ættu að verja í þau. Þessir starfsmenn væru nú þegar störfum hlaðnir vegna annarra verkefna og óljóst hvort þeir gætu bætt á sig frekari verkefnum er tengjast jafnrétti og fyrirliggjandi jafnréttisáætlun. Nefndinni voru jafnframt kynntar áhyggjur af því að sömu jafnréttisfulltrúum væri falin eftirfylgni og þar með ábyrgð á framgangi jafnréttismála í ráðuneyti sínu. Þá var bent á að það skipti máli fyrir framkvæmd áætlunarinnar að sá aðili sem væri ábyrgur fyrir framkvæmd verkefna væri þannig staðsettur innan stjórnkerfisins að hann ætti auðvelt með að hafa áhrif á framvindu mála.
    Nefndin bendir á að samkvæmt því sem segir hér að framan í kafla um markmið, árangursmat og eftirfylgni stendur til að gera ítarlegri verkefnalýsingar fyrir einstaka liði áætlunarinnar þar sem skýrt verður kveðið á um ábyrgðaraðila hvers verkefnis. Það breytir því ekki að ráðherra ber ábyrgð á því að þau verkefni sem Alþingi felur honum með samþykkt þingsályktunartillögu séu framkvæmd. Ráðuneytisstjóri stýrir svo ráðuneyti, samkvæmt lögum nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, undir yfirstjórn ráðherra. Nefndin telur að verði fyrirliggjandi tillaga samþykkt sé ljóst að hlutaðeigandi ráðherra og ráðuneytisstjóri beri ábyrgð á því að sinna og ljúka þeim verkefnum sem eru í tillögunni. Verkefnalýsing kveður svo nánar á um hvaða starfsmanni eða starfsmönnum eru falin einstök verkefni eða hlutar þeirra. Starfsmanni er skylt að hlýða löglegum fyrirskipunum yfirmanna um starf sitt, skv. 15. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Nefndin telur því ljóst hvar endanleg ábyrgð verkefna liggur.
    Í ljósi athugasemda og umsagna hvað þessi mál varðar leggur nefndin til þá breytingu að við gerð áætlunar skv. 3. tölul. hafi jafnréttisfulltrúar samstarf við Jafnréttisstofu. Jafnréttisstofa býr yfir mikilli þekkingu á málaflokknum og áætlunum af því tagi sem hér um ræðir og getur verið fulltrúunum dýrmætur bakhjarl við þá vinnu. Af sömu ástæðu er lögð til breyting á 8. tölul. tillögunnar þannig að jafnréttisáætlanir Stjórnarráðsins, ráðuneyta og stofnana verði unnar í samráði við Jafnréttisstofu. Þá telur nefndin vert að vekja athygli á því að ekki er til aðgerðamiðuð jafnréttisáætlun fyrir nýtt velferðarráðuneyti, eftir sameiningu félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Heilbrigðisnefnd leggur í áliti sínu ríka áherslu á að slík áætlun verði gerð sem fyrst enda telur hún eðlilegt að ráðuneyti jafnréttismála gangi á undan með góðu fordæmi. Telur nefndin vert að leggja fram tillögu hvað þetta varðar.

5. Kyngreining upplýsinga.
    Nefndin ræddi nokkuð kyngreiningu upplýsinga en í 16. gr. jafnréttislaga er kveðið á um að í opinberri hagskýrslugerð um einstaklinga og í viðtals- og skoðanakönnunum skuli greint á milli kynja við söfnun gagna, úrvinnslu þeirra og birtingu upplýsinga nema sérstakar ástæður, svo sem persónuverndarhagsmunir, mæli gegn því. Kyngreining upplýsinga er m.a. mikilvægur þáttur í kynjaðri fjárlagagerð, sbr. 5. tölul. tillögunnar, en 28. apríl sl. samþykkti ríkisstjórnin þriggja ára áætlun um áframhaldandi innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar. Markmiðið er að gera kynjaáhrif fjárlaga sýnileg í þeim tilgangi að hægt sé að bregðast við og endurmóta stefnu, útgjöld og tekjuöflun í samræmi við jafnréttismarkmið. Í áliti fjárlaganefndar er lögð áhersla á að sem fyrst verði metið hvaða áhrif breytingar í ríkisrekstri eftir hrun hafa haft, greint eftir kynjum. Í áliti efnahags- og skattanefndar kemur fram að innan starfshóps um breytingar og umbætur á skattkerfinu væri skilningur á mikilvægi kynjasjónarmiða við lagasmíð auk þess sem hjá efnahags- og skattanefnd kom fram að skattyfirvöld hefðu yfir að ráða ítarlegum upplýsingum sem unnt væri að nota við kynjagreiningu. Þá vekur nefndin sérstaka athygli á að stefna ríkisstjórnarinnar er að samþætta kynja- og jafnréttismál við stefnumörkun og aðgerðir ríkisstjórnarinnar og bendir á að það verður ekki gert nema fyrir liggi fullnægjandi gögn og upplýsingar.
    Í skýrslunni Konur í kreppu? sem nefndin kynnti sér við umfjöllun málsins kemur fram að ýmis opinber gögn eru ekki kyngreind og það hafi haft áhrif á skýrslugerðina. Benda skýrsluhöfundar á að „skortur á upplýsingum um ólíka stöðu kynjanna eykur hættu á að stjórnvöld dragi rangar ályktanir og grípi til opinberra aðgerða sem ekki hafa tilætluð áhrif“. Nefndin tekur undir þessi orð og bendir á að það er skýr lagaskylda að kyngreina gögn í opinberri hagskýrslugerð. Mikilvægt er að árétta lagaskyldunu til að kyngreina gögn og framfylgja lögum um þetta efni. Leggur nefndin því til nýjan lið í áætlunina sem feli í sér að tryggt verði að farið sé eftir 16. gr. laganna. Nefndin áréttar mikilvægi þess að hið opinbera sinni lögbundinni skyldu sinni og leggur því til að þeir sem ekki sinna þessu lögbundna hlutverki verði áminntir í samræmi við ákvæði laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, enda sé um að ræða brot er varði við 21. og/eða 38. gr. laganna.

6. Jafnréttismat á frumvörpum.
    Nefndinni var kynnt að í fyrri drögum að áætluninni hafi verið gert ráð fyrir því að í henni væri verkefni er lyti að því að unnið yrði mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa á jafnrétti kynjanna sem mundi svo fylgja þeim við framlagningu á Alþingi með svipuðum hætti og kostnaðarumsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins fylgir stjórnarfrumvörpum nú. Telur nefndin um mjög þarft verkefni að ræða sem aukið getur skilning á áhrifum frumvarpa og ýtt undir upplýsta og vel ígrundaða ákvarðanatöku. Ljóst er þó að slíkt mat getur tafið verulega vinnu við frumvörp og seinkað framlagningu þeirra á Alþingi. Þá er ljóst að þróa þarf aðferðafræði að baki slíku mati og því yrði einungis um að ræða jafnréttismat á hluta af frumvörpum. Nefndin telur mikilvægt að jafnréttissjónarmið séu ávallt höfð í huga við framlagningu frumvarpa og að greint sé hvort frumvarp geti haft áhrif á jafnrétti og þá með hvaða hætti. Nefndin telur þó ekki unnt að kveða á um jafnréttismat frumvarpa að þessu sinni en leggur til að í þeirri endurskoðun sem stendur yfir á reglum um undirbúning og meðferð stjórnarfrumvarpa verði tryggt að frumvörpum fylgi ávallt gátlisti um jafnréttismál þar sem farið er yfir hvort og þá hvernig frumvarpið hefur áhrif á jafnrétti.

7. Vinnumarkaður – launamisrétti kynjanna.
    Á íslenskum vinnumarkaði er enn launamisrétti kynja. Nefndin telur mikilvægt að útrýma því og tekur undir með fjárlaganefnd sem segir í áliti sínu að of hægt hafi gengið að uppræta kynbundinn launamun. Í tillögunni eru orðin „kynbundinn launamunur“ notuð yfir það sem í reynd er „launamisrétti kynjanna“ sem er það hugtak sem notað er í jafnréttislögum. Nefndin leggur til breytingu til samræmis við orðalag laganna og áréttar að hér er um misrétti að ræða en ekki einungis mun og skýrt þurfi að vera að markmiðið sé að upprætta misréttið og ná fram launajafnrétti.
    Í 10. tölul. tillögunnar er kveðið á um gerð framkvæmdaáætlunar gegn kynbundnum launamun. Telur nefndin mikilvægt að þar sé kveðið skýrt á um hvert markmið slíkrar áætlunar sé og ljóst að hún skuli hafa það að markmiði að útrýma launamisrétti kynjanna. Nefndin leggur til breytingu þessa efnis. Í 10. tölul. eru talin upp sjö atriði sem framkvæmdaáætlunin skuli m.a. fela í sér og þar er kveðið á um að efnt verði til samstarfs við samtök aðila vinnumarkaðarins um innleiðingu Vegvísis um launajafnrétti. Nefndin telur um mjög þarft verkefni að ræða en bendir jafnframt á að samkvæmt ákvæði til bráðabirgða IV í jafnréttislögum skal ráðherra sjá til þess að þróað verði sérstakt vottunarkefi á framkvæmd stefnu um launajafnrétti og framkvæmd stefnu um jafnrétti við ráðningar og uppsagnir í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Verkefni þessu átti að ljúka fyrir 1. janúar 2010 og samfara því átti að fara fram endurskoðun á lögunum. Nefndin telur brýnt að verkefninu verði lokið og fyrirtækjum gert kleift að fá jafnréttisvottun. Jafnréttisvottun væri staðfesting á því að stefna, framkvæmd eða ferli jafnréttismála fyrirtækis eða stofnunar væri í samræmi við ákveðna staðla eða viðmið sem byggjast á lögum. Jafnréttisvottun ætti því að geta orðið eftirsóknarvert takmark fyrirtækja og stofnana og hluti af ímynd þeirra. Fyrirtækjum og stofnunum væri enn fremur heimilt að geta slíkrar vottunar í auglýsingum, öðru kynningarefni og starfsauglýsingum og þar með yrði ákjósanlegra að starfa hjá slíku fyrirtæki eða stofnun eða eiga við það viðskipti.
    Verkefni þau sem kveðið er á um í 11. og 12. tölul. tillögunnar eru um margt lík. Annars vegar er verkefni um kynbundið launamisrétti á landsbyggðinni þar sem greina á orsakir launamisréttis kynjanna eftir landsvæðum og hins vegar er verkefni sem felur í sér úttekt á launamisrétti kynja í sjávarútvegi og landbúnaði og aðstöðu til náms í greinunum. Mikill munur er þó á þeim fjármunum sem verja á í verkefnin og hljóðar kostnaðaráætlun fyrrnefnda verkefnisins upp á 2 millj. kr. en áætlun þess síðara upp á 5 millj. kr. Nefndin telur mikilvægt að gætt sé að því að kostnaðaráætlanir séu raunhæfar og nægum fjármunum varið til allra verkefna tillögunnar.
    Nefndinni voru kynnt sjónarmið þess efnis að mikilvægt væri að gera sérstaka úttekt á launamisrétti kynja í þeim starfstéttum þar sem annað kynið er ráðandi. Eitt af einkennum íslensks vinnumarkaðar er að hann er mjög kynskiptur eftir starfsgreinum og er það jafnframt mjög afgerandi forsenda fyrir launamisrétti kynjanna. Mikilvægt er því að rannsaka heildstætt launamisrétti kynjanna, rannsaka ástæður þess að annað kynið sæki meira í ákveðin störf og þróa mælitæki sem nýtast við að taka ákvarðanir um laun á vinnumarkaði þar sem sömu mælikvarðar eru notaðir til að ákvarða laun karla og kvenna. Nefndin telur mikilvægt að borin verði saman laun einstaklinga í svokölluðum kvennastéttum og karlastéttum. Þannig verði skilgreint hvaða störf teljist jafnverðmæt og rannsakaðar ástæður þess að annað kynið sæki meira í ákveðin störf. Nefndin bendir á að ýmis verkefni sem þegar eru til staðar hafa það markmið að kanna launamisrétti kynjanna. Nefndin ítrekar hins vegar mikilvægi þess að launamisrétti kynjanna sé rannsakað heildstætt og beinir því til ráðherra og framkvæmdaraðila áætlunarinnar að sjónum verði sérstaklega beint að þessum efnum við endurskoðun áætlunarinnar. Þá verði jafnframt tekin afstaða til þess hvort ekki sé rétt að efna sérstaklega til slíkrar rannsóknar.

8. Fæðingarorlof.
    Nefndin fjallaði þónokkuð um 13. tölul. tillögunnar þar sem lagt er til að gerð verði könnun á töku feðra á fæðingarorlofi o.fl. Þar er m.a. lagt til að könnuð verði sérstaklega áhrif niðurskurðar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á töku feðra á orlofinu. Þessi hluti tillögunnar er í nokkru samræmi við fyrirliggjandi beiðni um skýrslu frá velferðarráðherra sem nefndarmenn félags- og tryggingamálanefndar lögðu fram fyrr á þessu þingi (þskj. 912, 542. mál) en samhljóða skýrslubeiðni var jafnframt flutt á síðasta þingi. Í beiðninni er óskað heildstæðari upplýsinga um áhrif skerðinga á hámarksgreiðslur fæðingarorlofsins þar sem m.a. skuli skoða orlofstöku með tilliti til lengdar orlofs, kyns foreldris og tekna þess. Nokkrir umsagnaraðilar gera athugasemdir við þennan lið tillögunnar og telja könnunina of takmarkaða þar sem hún nái einungis til feðra og áhersla sé lögð á áhrif á verkaskiptingu ungra foreldra á heimilum og atvinnuþátttöku kvenna og karla. Tekur nefndin undir þetta og telur mikilvægt að könnuð sé taka bæði mæðra og feðra á fæðingarorlofi og áhrif þess óháð aldri foreldra. Þá telur nefndin mikilvægt að jafnframt verði staða mæðra og feðra könnuð eftir að fæðingarorlofstímabili lýkur, en vísbendingar eru m.a. um að konur fari síður og þá seinna út á vinnumarkað eftir það. Einnig eru vísbendingar um að fólk gangi ekki endilega að sama starfi eða ábyrgð að loknu fæðingarorlofi og er mikilvægt að slíkt verði einnig skoðað sérstaklega. Nefndin telur mikilvægt að allar upplýsingar könnunarinnar verði kyngreindar en jafnframt greindar eftir aldri og stöðu foreldra.
    Nefndin hefur nú í nokkurn tíma beðið skýrslu um áhrif niðurskurðar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. lög nr. 173/2008, 70/2009 og 120/2009. Nefndin hefur fengið þær upplýsingar að skýrslan sem óskað var eftir frá velferðarráðherra sé í vinnslu. Mikilvægt er að fá heildstæða mynd af fæðingarorlofskerfinu og þeim áhrifum sem niðurskurður hefur haft á töku mæðra og feðra á fæðingarorlofi, sem og áhrif hans á verkaskiptingu foreldra á heimilum og atvinnuþátttöku einstaklinga af báðum kynjum. Nefndin telur að hægt verði að nýta skýrsluna og þá vinnu sem þegar hefur verið unnin í þessum efnum og beinir því til framkvæmdaraðila áætlunarinnar að vinna í framhaldinu heildstæðara mat á þessu sviði.

9. Kærunefnd jafnréttismála og dómar Hæstaréttar Íslands.
    Í 17. tölul. tillögunnar er lagt til að gerð verði lögfræðileg úttekt á málum sem kærð hafa verið til kærunefndar jafnréttismála og þróun á túlkun jafnréttislaga hjá nefndinni verði skoðuð. Kærunefnd jafnréttismála fagnar því að til standi að gera slíka úttekt og telur nefndin vert að taka undir með kærunefndinni og áréttar mikilvægi þess að reglur á þessu sviði séu skýrar. Nefndinni var bent á að til að fá heildstæða mynd af málum væri mikilvægt að kanna einnig dóma Hæstaréttar þar sem jafnréttislög hafa verið túlkuð. Könnun nefndarinnar hefur leitt í ljós að ekki er um ýkja marga dóma að ræða, til að mynda féllu tveir dómar í Hæstarétti í jafnréttismálum á tímabilinu 2008–2010. Mikilvægt er þó að fá heildarmynd af réttarþróun og lagatúlkun á þessu sviði. Nefndin tekur undir þau sjónarmið að með því að útfæra könnunina þannig að hún taki jafnframt til dóma Hæstaréttar gefi hún skarpari mynd af þróun mála og túlkun jafnréttislaga. Telur nefndin að þessi viðbót við verkefnið sé ekki það umfangsmikil að til þurfi viðbótarfjármagn og að hún rúmist því innan fyrirliggjandi kostnaðaráætlunar.

10. Kynbundið ofbeldi.
    Í D-hluta tillögunnar er gerð grein fyrir verkefnum er varða aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og telur nefndin um mjög mikilvæg verkefni að ræða. Nefndin fagnar vinnu við aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem getið er í 21. tölul.
    Þá telur nefndin brýna réttarbót felast í frumvarpi til lögfestingar á „austurrísku leiðinni“, sbr. 22. tölul. tillögunnar, og fagnar því að frumvarpið hefur nú verið lagt fram (þskj. 1225, 706. mál). Nefndinni voru kynnt sjónarmið þess efnis að þessi liður áætlunarinnar væri ekki alls kostar skýr þar sem ekki kæmi fram hver „austurríska leiðin“ væri. Nefndin bendir á að það er útskýrt í tillögutexta þessa liðar þar sem kemur fram að ætlunin sé m.a. að unnt verði að fyrirskipa að einstaklingur sem beitir heimilismenn sína ofbeldi yfirgefi heimilið. Í áliti allsherjarnefndar er tekið undir sjónarmið sem mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar setur fram í umsögn sinni um að heimilin eigi að vera griðastaður og því eðlilegra að sá sem beitir ofbeldi innan veggja heimilisins yfirgefi það í stað þess eða þeirra sem verða fyrir ofbeldinu.
    Nefndin telur jafnframt mikilvægt að opna betur umræðuna um kynbundið ofbeldi. Þannig þurfi að verða vitundarvakning um að ofbeldi getur verið til staðar í öllum samböndum. Í bók Ingólfs V. Gíslasonar Ofbeldi í nánum samböndum – orsakir, afleiðingar, úrræði sem kom út á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis árið 2008 kemur fram að „karlar verða fyrir því að konur beiti þá ofbeldi, ofbeldi milli para getur verið gagnkvæmt, börn verða fyrir ofbeldi foreldra og systkina og aldraðir verða fyrir ofbeldi ættingja sinna. Þá er ofbeldi einnig til staðar í samböndum samkynhneigðra.“ Í bókinni segir auk þess að sænsk rannsókn bendi til þess að ofbeldi sé í reynd álíka algengt í sambúð samkynhneigðra og gagnkynhneigðra. Mikilvægt er að ofbeldi líðist aldrei í samböndum og á heimilum. Ekki má heldur líta fram hjá því að börn sem búa við þær aðstæður að ofbeldi er þáttur í heimilislífi þeirra mótast af því, hvort sem þau eru sjálf beinlínis beitt ofbeldi eða ekki. Hér er því um samfélagslegt vandamál að ræða sem brýnt er að ræða um og leita lausna á.
    Nefndinni voru kynnt sjónarmið þess efnis að mikilvægt væri að kanna sérstaklega stöðu fatlaðra kvenna. Þessar konur eru almennt taldar í áhættuhópi hvað varðar ofbeldi, meiðsli eða misþyrmingar, hirðuleysi eða vanrækslu, illa meðferð eða misnotkun í gróðaskyni. Endurspeglast þetta m.a. í formálsorðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá hafa landssamtökin Þroskahjálp áhyggjur af kynferðislegri misnotkun fatlaðra kvenna og stúlkna og hafa samtökin m.a. staðið ásamt fleirum að fræðslu og útgáfu fræðsluefnis um áhættuþætti. Pottur hefur víða verið brotinn í réttindagæslu fatlaðs fólks og í eftirliti með þjónustu við það. Ríkisendurskoðun gerir m.a. alvarlegar athugasemdir við þessi atriði í skýrslu frá 2010 um þjónustu við fatlað fólk. Ljóst er að verja þarf fjármunum í verkefni sem þetta en nefndin telur mjög brýnt að gera könnun á stöðu fatlaðra kvenna svo að unnt sé að meta hvort eftirlit með þjónustu og réttindagæsla sé viðunandi. Í þessum efnum þarf að kanna hvort grípa þurfi til sértækra aðgerða til að tryggja að mannréttindi og jafnrétti sé virt í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Leggur nefndin því til að nýtt verkefni bætist við tillöguna í samræmi við þetta og telur raunhæft að áætla 1,5 millj. kr. til þess.
    Nefndin áréttar jafnframt að hún telur brýnt að skoðuð verði staða fatlaðra stúlkna og pilta með sömu sjónarmið að leiðarljósi. Slík könnun telst þó fremur barnaverndarmál en jafnréttismál og því leggur nefndin ekki til slíkt verkefni, en beinir því til velferðarráðuneytis að vaka sérstaklega yfir stöðu fatlaðra barna og ungmenna og tryggja að réttindagæslu þeirra, sem og alls fatlaðs fólks, sé sinnt með fullnægjandi hætti. Í þessu samhengi telur nefndin vert að benda á að hún hefur nú til umfjöllunar frumvarp til laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk (þskj. 1252, 728. mál) sem lagt er fram í samræmi við ákvæði til bráðabirgða XI í lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, en það á rætur að rekja til breytingartillögu nefndarinnar í 256. máli á þessu löggjafarþingi.

11. Menntir og jafnrétti.
    Nefndin fjallaði þó nokkuð um E-hluta tillögunnar um menntir og jafnrétti þar sem gert er ráð fyrir sjö verkefnum. Í tengslum við umfjöllunina ræddi nefndin sérstaklega um fræðasamfélagið og sérfræðinga á sviði kynjafræði og jafnréttis. Telur nefndin mikilvægt að sækja þekkingu til fræðasamfélagsins og að verkefni sem varða jafnrétti verði unnin í samráði við sérfræðinga í kynjafræðum. Leggur nefndin því til breytingar þess efnis á 26. tölul., um jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum, en hún telur jafnframt eðlilegt að samráð sé haft við sveitarfélögin þar sem þau fara með málefni leik- og grunnskóla. Þá telur nefndin eðlilegt að við úthlutun fjármuna úr Jafnréttissjóði, sbr. 9. tölul. tillögunnar, verði skipað fagráð sem leggi faglegt mat á umsóknir og í því sitji m.a. sérfræðingar í kynjafræðum.
    Í 27. tölul. tillögunnar er verkefni er lýtur að því að koma áföngum í kynja- og jafnréttisfræðum inn í framhaldsskóla. Nefndin telur um mjög þarft verkefni að ræða sem þar að auki er í samræmi við 23. gr. jafnréttislaga. Í greininni er m.a. kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun í skólastarfi og að á öllum skólastigum skuli nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál. Í tillögunni er þó ekki að finna sérstakt verkefni er varðar jafnrétti í háskólum heldur einungis í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Telur nefndin mikilvægt að jafnframt verði horft til háskólanna hvað þetta varðar og leggur til að við tillöguna bætist verkefni um jafnrétti í háskólum sambærilegt því sem lagt er til um jafnrétti í framhaldsskólum í 27. tölul. Nefndin telur raunhæft að verja til verkefnisins 500 þús. kr. sem er sama fjárhæð og kostnaðaráætlun vegna sambærilegs verkefnis í framhaldsskólum hljóðar upp á.
    Menntamálanefnd mælist til þess í áliti sínu að verkefni 28. tölul., um félagslíf í framhaldsskólum, sé útfært nánar. Tekur nefndin undir þessa athugasemd og telur verkefnalýsingu nokkuð óljósa enda eðlilegt að fyrst verði könnuð þátttaka pilta og stúlkna í félagslífi og öðru starfi í framhaldsskólum áður en gripið er til einstaka aðgerða til að tryggja jafna þátttöku þeirra. Nefndin telur um mikilvægt verkefni að ræða enda nauðsynlegt að stuðla að jöfnum tækifærum pilta og stúlkna og tryggja að einstaklingar fái jöfn tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum, þroskast á eigin forsendum og rækta hæfileika sína til að gegna forystuhlutverki í félagsstarfi. Nefndin leggur til breytingu þess efnis.
    Nefndin leggur til sambærilegar breytingar á 29. tölul. tillögunnar, um starfsgreinar, þar sem hún telur mikilvægt að kannaðar verði ástæður þess að stúlkur leita fremur í starfsgreinar sem skilgreindar hafa verið sem hefðbundnar kvennagreinar og strákar í þær sem hafa verið skilgreindar sem hefðbundnar karlagreinar. Mikilvægt er að nemendur hafi jöfn tækifæri til að velja sér nám og störf óháð kyni. Ef í ljós kemur að aðgangur að ákveðnum greinum sé á einhvern hátt lokaður er lögð áhersla á að kannað verði með hvaða hætti megi opna hann.
    31. tölul. tillögunnar, konur og kvikmyndagerð, felur í sér að hvetja eigi konur til að sækja um styrki í kvikmyndasjóði. Ljóst er að færri konur sækja um styrki úr kvikmyndasjóði en nefndin telur mikilvægt að kannað verði hvers vegna þær sækja síður um. Þá telur nefndin mikilvægt að viðfangsefni með kvenlægum gildum njóti viðurkenningar til jafns við karllæg viðmið í mati á umsóknum og bendir á mikilvægi þess að kynin og hlutverk þeirra fái fjölbreytta birtingarmynd í samfélaginu. Mikilvægt er að stúlkur og piltar hafi frá unga aldri jöfn tækifæri til að sinna hugðarefnum sínum og telur nefndin því jákvætt að skólastúlkur fái hvatningu til stuttmyndagerðar. Nefndin leggur til nokkrar breytingar á ákvæðinu framangreindu til samræmis.
    Nefndinni voru kynnt sjónarmið þess efnis að miklu skipti að faglega sé staðið að verki við úthlutun fjár og að skipting fjármagns til rannsókna nýtist jafnt konum sem körlum. Þá var nefndinni kynnt að jafnréttisnefnd Háskóla Íslands vinni nú að gerð úttektar á hlut kynjanna í styrkjum til vísinda og rannsókna sem úthlutað er úr sjóðum í vörslu háskólans. Nefndin telur mikilvægt að heildarmynd fáist af hlut kynjanna við úthlutun styrkja til vísinda og fræða hér á landi og leggur til að við áætlunina bætist nýtt verkefni sem felur í sér að sjóðir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og starfa á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir haldi kerfisbundið til haga upplýsingum um kynjaskiptingu fagráða, umsækjenda, styrkþega og styrkupphæðir fyrir árið 2012. Þannig verði í kjölfarið hægt að leggja mat á hvernig starfsemi sjóðanna nýtist hvoru kyni fyrir sig og unnt að grípa til aðgerða halli óeðlilega á annað kynið meðal styrkþega.

12. Jafnrétti og fjölmiðlar.
    Í E-hluta tillögunnar er einungis að finna verkefni sem lúta að menntun og jafnrétti en nefndin telur mikilvægt að einnig sé horft til fjölmiðla. Fjölmiðlar gegna lykilhlutverki varðandi jafnréttismál og lýðræðislega umræðu. Í nýlegri grein Eyglóar Arnadóttur, Konur og karlar í fjölmiðlum, kemur m.a. fram að karlar voru 97% viðmælenda í fréttum fjölmiðla um fjármálafyrirtæki í aðdraganda bankahrunsins en konur 3%. Þar er jafnframt vísað til rannsóknar á umfjöllun fjölmiðla um stjórnmálafólk fyrir kosningar til Alþingis 2009 „sem sýndi að stjórnmálakarlar fengu meiri umfjöllun en fjöldi þeirra á framboðslistum gaf tilefni til og stjórnmálakonur fengu minni umfjöllun en fjöldi þeirra og staða á framboðslistum gaf tilefni til“. Í greininni kemur auk þess fram að konur eru viðmælendur eða umfjöllunarefni í 15–38% frétta hér á landi, en þetta hlutfall er misjafnt eftir fréttaflokkum. Við vinnu menntamálanefndar í tengslum við frumvarp til laga um fjölmiðla, 198. mál, sem varð að lögum nr. 38/2011, var rætt nokkuð um jafnrétti í fjölmiðlum og lagði nefndin m.a. til breytingar á frumvarpinu. Í nefndaráliti meiri hluta menntamálanefndar segir m.a. „Meiri hlutinn leggur jafnframt til þá breytingu að fjölmiðlaveitur skuli virða jafnrétti kynjanna sem og að tryggja að mismunandi sjónarmið komi fram í umfjöllun um fréttir og fréttatengt efni, jafnt karla og kvenna. Meiri hlutinn leggur á það þunga áherslu að ákvæði jafnréttislaga verði virt í störfum og umfjöllun fjölmiðla á Íslandi enda er jafnrétti kynjanna einn af hornsteinum lýðræðisins.“ Nefndin tekur heils hugar undir þessa afstöðu og hefði fagnað því að sjá í áætluninni verkefni er lyti að könnun á birtingarmyndum kynjanna í fjölmiðlum. Beinir nefndin því til velferðarráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis að huga að því að gerð verði sérstök úttekt eða könnun á fjölmiðlum og jafnrétti. Nefndin telur mikilvægt að fjölmiðlar hafi skýra jafnréttisáætlun og aðgerðaáætlun um það hvernig eigi að vinna gegn staðalímyndum kynjanna. Bendir nefndin í þessu samhengi á að í nýjum fjölmiðlalögum er gert ráð fyrir því að fjölmiðlaveitur sendi fjölmiðlanefnd skýrslu og í henni verði gerð grein fyrir stöðu jafnréttismála, m.a. um það hvernig tíma og/eða rúmi sé varið eftir kynjum. Telur nefndin að í jafnréttis- og aðgerðaáætlunum geti fjölmiðlar sett sér reglur og viðmið um það hvernig þeir skipta tíma og/eða rúmi eftir kynjum, m.a. til þess að stuðla að jafnari birtingu kynja í fjölmiðlum, gæta jafnréttissjónarmiða og tryggja að birtingarmynd kynjanna í fjölmiðlum verði á þá leið að konur og karlar hafi jöfn áhrif í samfélaginu og jöfn tækifæri. Í þessu samhengi telur nefndin einnig vert að huga að völdum, áhrifum og framgangi kvenna innan fjölmiðlanna sjálfra og hvernig jafnréttismarkmiðum er framfylgt á vinnustöðum á sviði fjölmiðlunar.

13. Karlar og jafnrétti.
    Í F-hluta og 32. tölul. tillögunnar er fjallað um verkefnið Karlar um borð sem hefur það að markmiði að auka náms- og starfsval karla sem og annað hlutverkaval þeirra, vinna gegn staðalímyndum kynjanna og auka þátttöku þeirra í verkefnum fjölskyldunnar. Nefndin telur verkefnið jákvætt enda mikilvægt að virkja alla til þátttöku í umræðum um jafnrétti kynjanna og auka aðild karla að jafnréttisstarfi sem konur hafa sinnt í meira mæli til þessa. Þá sé brýnt að allir taki þátt í að tryggja jafnrétti í samfélaginu.

14. Alþjóðastarf.
    Í G-hluta tillögunnar er að finna fjögur verkefni er varða alþjóðastarf. Í áliti utanríkismálanefndar um 33. tölul., eftirfylgni við aðgerðaáætlun um framkvæmd ályktunar öryggisráðsins nr. 1325 og tengdar ályktanir um konur, frið og öryggi á alþjóðavettvangi, segir: „Eftirfylgni við aðgerðaáætlun frá 8. mars 2008 um framkvæmd ályktunar öryggisráðsins nr. 1325 og tengdra ályktana um konur, frið og öryggi á alþjóðavettvangi er mikilvægt verkefni að mati nefndarinnar. Íslensk stjórnvöld hafa markað sér stöðu og aflað sér virðingar sem málsvari málaflokksins á alþjóðavettvangi, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og innan Atlantshafsbandalagsins þar sem nýlega voru tekin upp jafnréttismarkmið. Nefndin telur að orðalag þessa liðar jafnréttisáætlunarinnar eigi að endurspegla þennan styrkleika og áherslur íslenskra stjórnvalda með skýrari hætti og leggur til viðeigandi breytingar á orðalagi.“ Tekur nefndin undir þessi sjónarmið og leggur til breytingu á liðnum til samræmis við tillögu utanríkismálanefndar.
    Þá telur nefndin vert að fagna því að unnið verði að því að Jafnréttisskóli Háskóla Íslands verði hluti af tengslaneti Sameinuðu þjóðanna. Þær þrjár deildir Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem starfa á Íslandi hafa verið mikilvægt framlag Íslendinga til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og jákvætt væri ef fjórða deild skólans bættist við hér á landi. Mikilvægt er að Íslendingar miðli af reynslu sinni í jafnréttismálum og taki þátt í því að stuðla að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna í þróunarríkjum, á átakasvæðum og í samfélögum þar sem nýlega hefur komist á friður að átökum loknum. Samvinna af þessu tagi heldur jafnframt íslensku samfélagi, þ.m.t. fræðasamfélagi, upplýstu um mikilvægi jafnréttis kynjanna.

15. Fjölþætt jafnrétti.
    Nefndin ræddi nokkuð fjölþætt jafnrétti og tekur undir með menntamálanefnd sem bendir á í áliti sínu að jafnréttishugtakið hefur víðari skírskotun en túlkun þess í jafnréttislögum gefur til kynna. Nefndin telur mikilvægt að gætt sé jafnréttis meðal ýmissa annarra hópa samfélagsins. Áætlun í jafnréttismálum er þó lögð fram í samræmi við framangreind lög og er þar lögbundið að hún skuli fela í sér verkefni sem ætlað er að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Ekki er því talið rétt að setja í áætlunina verkefni er varða fjölþætta mismunun en nefndin bendir á að í velferðarráðuneytinu er unnið að frumvarpi til laga um jafna meðferð fólks á vinnumarkaði án tillits til kynþáttar eða þjóðernis, trúar eða trúarskoðana, fötlunar/örorku, aldurs eða kynhneigðar, sem byggist m.a. á efnisþáttum tilskipana Evrópusambandsins nr. 2000/43/EB, um innleiðingu meginreglunnar um jafna meðferð manna án tillits til kynþáttar eða þjóðernis, og nr. 2000/78/EB, um innleiðingu meginreglunnar um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífi. Nefndin telur mikilvægt að frumvarp þetta komi sem fyrst til þinglegrar meðferðar á Alþingi.

16. Kostnaður.
    Í áætluninni eru lögð til 38 verkefni. Veitt er fjármagn til 23 verkefna en 15 eru talin rúmast innan fjárheimilda ráðuneytanna. Áætlaður heildarkostnaður við tillöguna nemur 168,8 millj. kr. á þeim fjórum árum sem hún er í gildi og munar þar mest um 60 millj. kr. til Lánatryggingasjóðs kvenna (16. tölul.) auk þess sem gert er ráð fyrir að Framkvæmdasjóður jafnréttismála (2. tölul.) og Jafnréttissjóður (9. tölul.) fái 30 millj. kr. hvor. Nefndin leggur til þónokkrar breytingar á þeim verkefnum sem eru í áætluninni en telur þær breytingar þó rúmast innan fyrirliggjandi kostnaðaráætlana. Að auki leggur nefndin til að við áætlunina bætist fimm verkefni. Gert er ráð fyrir að þrjú þeirra rúmist innan fjárheimilda ráðuneyta en tvö þeirra þurfi sérstakt fjármagn og er heildarupphæð þeirrar fjárhæðar sem þar er lögð til 2 millj. kr. Fjárheimildir fylgja ekki þessum verkefnum og leggur nefndin því til að þau hefjist ekki fyrr en á næsta ári enda hefur ekki verið gert ráð fyrir þeim í fjárlögum fyrir árið 2011. Nefndin beinir þeim tilmælum til fjárlaganefndar að verkefnunum verði tryggðar fjárheimildir á fjárlögum áranna 2012–2014.
    Auk þeirra breytinga sem þegar hefur verið gerð grein fyrir leggur nefndin til smávægilegar breytingar á texta. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem gerð er grein fyrir hér að framan og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
    Ásmundur Einar Daðason, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. maí 2011.



Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,


varaform., frsm.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,


form.


Pétur H. Blöndal.



Jónína Rós Guðmundsdóttir.


Guðmundur Steingrímsson.


Íris Róbertsdóttir.




Fylgiskjal I.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar fjallað um tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (þskj. 401, 334. mál), þ.e. sérstaklega þá hluta tillögunnar sem falla undir málefnasvið nefndarinnar.
    Tillagan er kaflaskipt eftir áherslusviðum ríkisstjórnarinnar á sviði jafnréttismála og í greinargerð með henni kemur fram að með þeirri framsetningu sé stefnt að því að áherslur og forgangsröðun stjórnvalda birtist með skýrari hætti í framkvæmdaáætluninni. Þá kemur fram að á síðustu árum hafi verið stigin stór skref í átt til jafnrar stöðu kynjanna en einnig að margt sé óunnið á sviði jafnréttismála og að þessari áætlun sé ætlað að ná utan um brýnustu verkefni ríkisstjórnarinnar á sviði kynjajafnréttis.
    Þeir kaflar sem heyra sérstaklega undir málefnasvið nefndarinnar eru: A. Stjórnsýslan, C. Kyn og völd, D. Kynbundið ofbeldi og H. Eftirfylgni og endurskoðun og fór nefndin yfir þá ásamt því að skoða athugasemdir umsagnaraðila sem falla undir framangreinda kafla en þær eru almennt jákvæðar.
    Nefndin fjallaði um kafla D um kynbundið ofbeldi, þ.e. verkefni 21 um nýja aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi, og telur hana mjög mikilvæga. Í henni er lagt til að tekið verði mið af rannsóknum úr gildandi aðgerðaáætlun frá 2006 auk rannsóknar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði sérstök áhersla lögð á að skoða samhengi kynbundinna ofbeldisbrota, saksóknar vegna þeirra og meðferðar í dómskerfinu. Nefndin telur mjög mikilvægt að við mótun nýrrar aðgerðaáætlunar sé byggt á þeirri vinnu og þeim rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar á þessu sviði og enn fremur samráði við fagfólk.
    Þá fjallaði nefndin einnig sérstaklega um verkefni 22 um úrræði vegna heimilisofbeldis og verkefni 24 um forvarnir gegn vændi. Í tillögunni kemur fram að frumvarp til laga verði lagt fram á Alþingi til þess að leiða í lög heimild fyrir þar til bæra aðila innan réttarvörslukerfisins til að fyrirskipa að einstaklingur, sem beitir heimilismenn sína ofbeldi, yfirgefi heimilið og að svonefnd austurrísk leið, einnig kölluð rauða spjaldið, liggi til grundvallar þeirri vinnu. Í umsögn mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar er vísað í ársskýrslu Kvennaathvarfsins sem nefndin kannaði. Árið 2010 komu 118 konur og 54 börn til dvalar í kvennaathvarfið og árið 2009 komu 118 konur og 60 börn. Árið 2008 komu 130 konur og 77 börn til dvalar í athvarfið og 101 kona og 68 börn árið 2007. Nefndin tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem mannréttindaskrifstofan setur fram í umsögn sinni um að heimilin eiga að vera griðastaður og því eðlilegra að þeir sem beita ofbeldi innan veggja heimilisins yfirgefi það í stað þeirra sem verða fyrir ofbeldinu. Nefndin tekur fram að slík þingmál hafa verið flutt á Alþingi og einnig lá það fyrir í þingmálaskrá forsætisráðherra fyrir 138. löggjafarþing að slíkt frumvarp yrði lagt fram en af því varð ekki. Nefndin leggur því sérstaka áherslu á að vinna við frumvarpið verði sett í forgang og málið lagt fram á Alþingi til þinglegrar meðferðar.
    Nefndin tekur enn fremur undir sjónarmið Mannréttindaskrifstofu Íslands að forvarnir eru öflugasta vopn sem stjórnvöld hafa gegn kynbundnu ofbeldi og annarri óæskilegri hegðun og leggur áherslu á að í áætluninni verði lögð vinna í að skoða hvernig unnt er að auka forvarnir og að þær verði hluti af aðgerðaáætluninni.
    Nefndin telur að með framkvæmdaáætluninni sé stigið mikilvægt skref í þá átt að stuðla að jafnrétti kynjanna á breiðum grunni. Með vísan til framanritaðs leggur nefndin til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.
    Þór Saari, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.

Alþingi, 8. mars 2011.

Róbert Marshall,
Birgir Ármannsson, með fyrirvara,
Atli Gíslason,
Valgerður Bjarnadóttir,
Vigdís Hauksdóttir, með fyrirvara,
Sigurður Kári Kristjánsson.




Fylgiskjal II.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Að beiðni félags- og tryggingamálanefndar hefur efnahags- og skattanefnd fjallað um málið og fengið á sinn fund Maríönnu Jónasdóttur frá fjármálaráðuneytinu og Stefán Kjærnested og Björn Kristjánsson frá Fjársýslu ríkisins.
    Nefndin ræddi vinnubrögð við undirbúning skattalöggjafar og hvernig staðið væri að því að greina áhrif slíkra breytinga á kynin. Einnig var fjallað um hvort upplýsingakerfi hins opinbera gerðu kleift að fylgjast með kynbundnum launamun.
    Fram kom að innan starfshóps um breytingar og umbætur á skattkerfinu væri skilningur á mikilvægi kynjasjónarmiða við lagasmíð en einnig kom fram að á slík sjónarmið reyndi ekki í öllum tilvikum. Sjálfsagt væri að skoða kynjaáhrif í tengslum við breytingar á tekjuskatti einstaklinga sem lúta m.a. að persónuafslætti og tilfærslum milli þrepa samskattaðra aðila. Sama mætti einnig segja um breytingar á barnabótum og vaxtabótum og jafnvel breytingar á neðra og efra þrepi virðisaukaskattsins. Skattahækkanir sem lagðar voru til í áfangaskýrslu hópsins frá september 2010 og snertu m.a. fjármagnstekjuskatt, tekjuskatt lögaðila, auðlegðarskatt, erfðafjárskatt, eldsneyti, áfengi og tóbak og bankaskatt hefðu valdið minni vandkvæðum þar sem þær álögur tækju almennt jafnt til beggja kynja. Þó gætu mismunandi líffræðilegar og lýðfræðilegar aðstæður þurft skoðunar við eins og hærri meðalaldur kvenna og það að konur eru yfirleitt yngri í sambúð og ganga með börn.
    Fram kom að skattyfirvöld hefðu yfir að ráða ítarlegum upplýsingum sem hægt væri að nota við kynjagreiningu. Einnig kom fram það viðhorf að kynjasjónarmið fælu í sér meiri áherslu á að sníða skattkerfið að einstaklingum fremur en fjölskyldu en að ákvörðun um þetta væri af pólitískum toga. Jafnframt réðist það af stefnumótun hvernig hag ætti upplýsingagjöf úr launakerfi ríkisins en hægt væri að láta vinna úr því upplýsingar eftir kynjum.

Alþingi, 8. mars 2011.

Helgi Hjörvar, form.
Tryggvi Þór Herbertsson.
Álfheiður Ingadóttir.
Magnús Orri Schram.
Birkir Jón Jónsson.
Lilja Rafney Jónsdóttir.
Pétur H. Blöndal,
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Þór Saari.




Fylgiskjal III.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá fjárlaganefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál). Nefndin fékk á sinn fund Hildi Jónsdóttur frá forsætisráðuneytinu og Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur frá velferðarráðuneyti.
    Þeir þættir sem nefndin telur einkum á málefnasviði sínu eru þeir sem snúa að stjórnsýslu, fjármálum, mati og eftirliti með áætluninni.
    Nefndin tekur undir þau sjónarmið að enn betur þurfi að vinna innan Stjórnarráðsins að því að sem jöfnust kynjaskipting verði í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins. Jafnréttisáætlanir ráðuneyta gegna mikilvægu hlutverki við að koma á og viðhalda jöfnum tækifærum karla og kvenna. Nefndin er sammála því að fylgja þurfi því eftir að jafnréttisumbætur nái fram að ganga innan stjórnkerfisins. Tryggja þarf að öll störf standi jafnt konum sem körlum til boða og mikilvægt er að gætt sé jafnræðis kynjanna við sértækar aðgerðir stjórnvalda sem ætlað er að stuðla að fjölgun starfa og nýsköpun. Nefndin telur einnig mikilvægt að möguleiki sé á að vinna áfram að verkefnum sem leiða af áætluninni eins og gert er kleift með framkvæmdasjóði jafnréttismála. Þó telur nefndin að setja þurfi reglur um sjóðinn og að nauðsynlegt sé að ráðherranefndin setji viðmið fyrir fram við úthlutun úr sjóðnum.
    Nefndin leggur áherslu á að sem fyrst verði metið hvaða áhrif breytingar í ríkisrekstri eftir hrun hafa haft, greint eftir kynjum. Taka þarf tillit til þess mats við gerð fjárlaga næstu ára ef jafna þarf hlut kynjanna að lokinni aðlögun ríkisrekstrar að breyttu umhverfi. Að sama skapi er þýðingarmikið að þróuð verði mælitæki sem nýtast við að taka ákvarðanir um laun á vinnumarkaði þar sem sömu mælikvarðar eru notaðir til að ákvarða laun karla og kvenna. Of hægt hefur gengið að uppræta kynbundinn launamun og leita þarf allra leiða til að vinna á þeim óréttláta mun sem alls ekki á að líðast.
    Nefndin telur mikilvægt að eftirlit með framkvæmd áætlunarinnar sé virkt og að skýrsla þar um verði send Alþingi og tekin þar til umræðu í kjölfar árlegrar greinargerðar jafnréttisfulltrúa til Jafnréttisstofu. Nefndin lýsir ánægju með að árangursmeta eigi áætlunina en bendir jafnframt á að fyrir hvert verkefni þurfi að setja skýr viðmið fyrir matið. Annars hafi matið lítinn tilgang og óljóst geti verið að því loknu hver árangurinn er.
    Fjárlaganefnd lýsir ánægju sinni með það verklag sem birtist með áætluninni í heild og telur líklegt til árangurs að skipta henni niður í afmörkuð verkefni.


Alþingi, 22. mars 2011.

Oddný G. Harðardóttir, form.
Ásbjörn Óttarsson.
Ásmundur Einar Daðason.
Björgvin G. Sigurðsson.
Höskuldur Þórhallsson.
Kristján Þór Júlíusson.
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þór Saari.
Þuríður Backman.




Fylgiskjal IV.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá heilbrigðisnefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál) og fjallað um þá þætti sem snúa að málefnasviði hennar. Nefndin fékk á sinn fund Guðríði Þorsteinsdóttur frá velferðarráðuneyti og Hildi Jónsdóttur frá forsætisráðuneyti til að kynna efni áætlunarinnar og uppbyggingu hennar.
    Hlutverk áætlunarinnar er að skilgreina stefnu stjórnvalda og lýsa verkefnum sem ýmist varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis. Áætluninni er skipt í kafla eftir áherslusviðum á sviði jafnréttismála, en með því fyrirkomulagi er stefnt að því að áherslur og forgangsröðun stjórnvalda á sviði jafnréttismála birtist skýrar í áætluninni. Að auki er lagður grunnur að því að efla eftirfylgni með áætluninni og aðgang að sérfræðiráðgjöf við framkvæmd einstakra verkefna.
    Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að hún muni beita sér fyrir því að mótuð verði heildstæð atvinnustefna fyrir Ísland, byggð á jafnræði atvinnugreina, jafnrétti kynjanna o.fl. Því er ljóst að málaflokkur jafnréttismála á að fá aukið vægi innan stjórnkerfisins og stefnt er að því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og þau verkefni sem falla undir málefnasvið nefndarinnar. Þó að jafnréttismál heyri undir allar nefndir, er það félags- og tryggingamálanefnd sem fjallar efnislega um þau mál. Heilbrigðisnefnd fjallaði um þá þætti málsins sem heyra undir málefnasvið allra fastanefnda þingsins og varða einkum jafnréttisfulltrúa ráðuneyta, jafnréttisáætlanir, hlut kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum stjórnvalda og eftirfylgni framkvæmdaáætlunarinnar.
    Við umfjöllun nefndarinnar kom í ljós að ekki er tilbúin ný aðgerðamiðuð jafnréttisáætlun fyrir sameinað félags- og tryggingamálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Nefndin leggur ríka áherslu á að slík áætlun verði sett sem fyrst, enda eðlilegt að ráðuneyti jafnréttismála gangi á undan með góðu fordæmi. Einnig bendir nefndin á að mikilvægt sé að efla starf jafnréttisfulltrúa í ráðuneytinu og að grundvallaratriði sé að hlutur hvors kyns í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum stjórnvalda verði ekki minni en 40% eins og kveðið er á um í 15. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna og sjá þurfi til þess að jafnréttisumbætur nái fram að ganga innan stjórnkerfisins.
    Við afgreiðslu fjárlaga síðustu ára hefur mikið verið rætt um sparnaðarkröfur á heilbrigðisstofnanir og áhrif þeirra á heilbrigðisstarfsmenn sem eru að meiri hluta konur. Vinna þarf að því að gera öll störf aðlaðandi fyrir bæði kyn og útrýma staðalímyndum og launamun kynjanna. Tryggja þarf að öll störf standi jafnt konum sem körlum til boða og mikilvægt er að gætt sé jafnræðis kynjanna, ekki eingöngu við sértækar aðgerðir stjórnvalda sem ætlað er að stuðla að fjölgun starfa og nýsköpun heldur einnig þegar draga verður úr umfangi í opinberum rekstri.
    Í athugasemdum við jafnréttisáætlunina kemur fram að margt er óunnið á sviði jafnréttismála og að áætluninni sé ætlað að ná utan um brýnustu verkefni ríkisstjórnarinnar á sviði kynjajafnréttis. Að mati nefndarinnar er mikilvægt að aðgerðir til að ná jafnri stöðu karla og kvenna byggist á skipulagðri áætlun og allar upplýsingar séu kyngreindar og mælanlegar svo auðvelt sé að fylgja eftir einstökum verkefnum og meta árangur áætlunarinnar. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 16. mars 2011.

Þuríður Backman, form.
Jónína Rós Guðmundsdóttir.
Siv Friðleifsdóttir.
Ólafur Þór Gunnarsson.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.




Fylgiskjal V.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334 . mál). Nefndin fékk á sinn fund Hildi Jónsdóttur frá forsætisráðuneytinu og kynnti sér einnig þær umsagnir sem borist hafa vegna þingsályktunartillögunnar og tengjast málefnasviði nefndarinnar. Að mati nefndarinnar gera umsagnaraðilar ekki verulegar athugasemdir við tillöguna og fagna margir henni. Þó ber að geta þess að sumir telja jafnvel þörf á því að ganga lengra í að treysta jafnrétti en gert er.
    Þeir almennu þættir jafnréttisáætlunar sem nefndin telur einkum falla að málefnasviði sínu eru þeir sem snúa að samþættingu, aðgerðum og stefnumörkun á sviði kynja- og jafnréttismála, samhæfingar starfs ríkisstjórnarinnar og eftirfylgni með framkvæmdaáætlun hennar í jafnréttismálum. Þrír þættir áætlunarinnar falla sérstaklega að málefnasviði nefndarinnar, þ.e. kynbundinn launamunur á landsbyggðinni, aðgengi kvenna að fjármagni til stofnunar fyrirtækja og lánatryggingasjóður kvenna.
    Nefndin tekur undir þær tillögur sem fram koma í þingsályktunartillögunni að grípa þurfi til raunhæfra aðgerða til að draga úr kynbundnum launamun á landsbyggðinni með gerð heildstæðrar framkvæmdaáætlunar. Fram kom á fundi nefndarinnar að vísbendingar væru um að kynbundinn launamunur væri á undanhaldi og fagnar nefndin þessari jákvæðu þróun á íslenskum vinnumarkaði en áréttar að nauðsynlegt sé að vera á varðbergi hvað þetta varðar.
Nefndin telur það skipta miklu máli fyrir efnahagslífið í heild að auka þátttöku kvenna í atvinnusköpun og fagnar því að halda eigi til haga upplýsingum um kynjaskiptingu styrkþega hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Byggðastofnun, Orkusjóði og Tækniþróunarsjóði. Nefndin telur það skýrt að ef nýta á kraft kvenna til nýsköpunar og eflingar efnahagslífsins sé afar mikilvægt að þær njóti jafnræðis á við karla. Nátengt þessu á að endurvekja lánatryggingasjóð kvenna en hann hefur legið niðri frá árinu 2003. Nefndin telur að þessi sjóður sé öflugur vettvangur til að styðja konur til nýsköpunar með veitingu ábyrgða fyrir lánum.
    Að öllu framangreindu sögðu leggur nefndin til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Alþingi 9. mars 2011.

Kristján L. Möller.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Jón Gunnarsson.
Magnús Orri Schram.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Lilja Mósesdóttir.
Margrét Tryggvadóttir.




Fylgiskjal VI.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334 . mál). Nefndin fékk á sinn fund Hildi Jónsdóttur frá forsætisráðuneytinu og Jónu Pálsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og kynnti sér einnig þær umsagnir sem borist hafa vegna þingsályktunartillögunnar og tengjast málefnasviði nefndarinnar. Að mati nefndarinnar gera umsagnaraðilar ekki verulegar athugasemdir við tillöguna og fagna margir henni. Þó ber að geta þess að sumir telja jafnvel þörf á því að ganga lengra í að treysta jafnrétti en gert er.
    Þeir almennu þættir jafnréttisáætlunar sem nefndin telur einkum falla að málefnasviði sínu eru þeir sem snúa að samþættingu, aðgerðum og stefnumörkun á sviði kynja- og jafnréttismála, samhæfingar starfs ríkisstjórnarinnar og eftirfylgni með framkvæmdaáætlun hennar í jafnréttismálum. Nokkrir þættir áætlunarinnar falla sérstaklega að málefnasviði nefndarinnar, þ.e. kynungabók, jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum, jafnrétti í framhaldsskólum, félagslíf í framhaldsskólum, starfsgreinar, kennaramenntun, konur og kvikmyndagerð og verkefni um Jafnréttisstofu.
    Nefndin leggur áherslu á að fræðsla um jafnréttismál standi nemendum á öllum skólastigum til boða og fagnar þeirri áherslu á jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum sem kemur fram í áætluninni sem og tillögu þar sem háskólar eru hvattir til að innleiða námskeið í kynjafræði. Nefndin vill vekja athygli á því að í umræðum um jafnréttismál og í verkefninu Jafnrétti í skólum hefur komið fram að kennarar telja sig ekki hafa nóga þekkingu á jafnréttismálum. Því er lagt til í áætluninni að inntak kennaramenntunar verði endurskoðað. Nefndin telur að þar sé stigið mikilvægt skref í rétta átt því menntun kennara í jafnréttismálum er forsenda markvissrar jafnréttisfræðslu í skólum.
    Nefndin bendir á að eitt af einkennum íslensks vinnumarkaðar er að hann er mjög kynskiptur eftir starfsgreinum en það er jafnframt afdrifarík forsenda fyrir kynbundnum launamun. Með samstilltu átaki á að opna aðgang „hins kynsins“ að þeim starfsgreinum sem teljast annaðhvort kvennagreinar eða karlagreinar samkvæmt hefð. Af þessum sökum fagnar nefndin þessu átaki og áréttar mikilvægi kröfunnar um jöfn tækifæri til að velja sér nám og starf óháð kyni. Þessu nátengt vill nefndin benda á að í sumum starfsstéttum hallar á annað kynið og má sem dæmi nefna stétt kennara, en meiri hluti starfandi kennara eru konur. Það er mat nefndarinnar að mikilvægt sé að kennarar af báðum kynjum sinni jafnréttisfræðslu í skólum ef hún á að skila tilætluðum árangri. Fram kemur í jafnréttisáætluninni að hvetja eigi til jafnræðis kynjanna í félagslífi framhaldsskólanna sem og öðru starfi í framhaldsskólum. Nefndin tekur undir athugasemd umsagnaraðila um að ekki sé fyllilega ljóst með hvaða hætti sú hvatning á að fara fram og mælist til þess að það verði útfært nánar.
    Nefndin gagnrýnir að ekki er í áætluninni gert ráð fyrir verkefni sem tengist fjölmiðlum. Það er áhyggjuefni því ljóst er að fullt tilefni er til aðgerða með tilliti til ójafnrar stöðu kynjanna í umfjöllun fjölmiðla. Rannsóknir hafa gefið ótvírætt til kynna að hlutur kvenna sé mjög fyrir borð borinn í umfjöllun fjölmiðla, mun oftar sé leitað til karlkyns álitsgjafa en kvenna, karlar séu í miklum meirihluta viðmælenda í fréttum og fréttatengdum þáttum og svo mætti lengi telja. Nefndin vill m.a. vekja athygli á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið um konur og karla í fjölmiðlum. Gerð var rannsókn á fréttum fjölmiðla um fjármálafyrirtæki í aðdraganda bankahrunsins, en þar kom fram að karlar voru 97% viðmælenda en konur 3%. Einnig var gerð rannsókn á umfjöllun fjölmiðla um stjórnmálamenn fyrir alþingiskosningarnar árið 2009 sem sýndi að karlar fengu meiri umfjöllun en fjöldi þeirra á framboðslistum gaf tilefni til en konur fengu minni umfjöllun en fjöldi þeirra og staða á framboðslistum gaf tilefni til.
    Þessu tengt vill nefndin vekja athygli á fyrirspurnum tveggja alþingismanna er lúta að jafnrétti kynjanna í fjölmiðlum og vísindarannsóknir og kynjahlutfall. Tryggvi Þór Herbertsson beindi fyrirspurn til mennta- og menningarmálaráðherra um viðmælendur í frétta- og þjóðlífsþáttum Ríkisútvarpsins árin 2009–2010. Af svörum ráðherra má sjá að Silfur Egils á Skjá Einum er eini þátturinn þar sem þingkonur og þingkarlar komu jafn oft fram. Hins vegar hallar mjög á kynin á kostnað þingkvenna þegar kemur að aðalfréttatímum útvarps og sjónvarps og fréttaskýringaþáttunum Speglinum og Kastljósti. Eygló Harðardóttir beindi fyrirspurn til mennta- og menningarmálaráðherra um vísindarannsóknir og kynjahlutfall. Af svörum ráðherra má sjá að það er ekki munur á árangri karla og kvenna í úthlutun styrkja í Rannsóknarsjóði en hins vegar sækja færri konur í sjóðinn en karlar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hyggst framkvæma tilraunaverkefni í kynjaðri hagstjórn á þessu sviði, m.a. í þeim tilgangi að greina ástæður þess að konur sækja síður í sjóðina en karlar. Nefndin fagnar þessu verkefni.
    Nefndin vill vekja sérstaka athygli á því að hún hefur til meðferðar frumvarp til laga um fjölmiðla (mál. 198). Þar er í 26. gr. frumvarpsins mælt fyrir um að fjölmiðlaveita skuli í allri starfsemi sinni halda lýðræðislegar grundvallarreglur í heiðri. Meiri hluti nefndarinnar hefur lagt til þá breytingu í nefndaráliti að fjölmiðlaveitur skuli virða jafnrétti kynjanna sem og að tryggt sé að mismunandi sjónarmið komi fram í umfjöllun um fréttir og fréttatengt efni, jafnt kvenna og karla. Jafnframt leggur meirihluti nefndarinnar til að bætt verði við þremur liðum í ákvæði um skýrslugjöf fjölmiðlaveitu, sbr. 23. gr. frumvarpsins er lúta að upplýsingagjöf um stöðu kynjanna í fjölmiðlum.
    Nefndin vill að lokum benda á að hún telur að jafnréttishugtakið sé víðara en túlkun þeirra í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna nr. 10/2008. Í þessu sambandi vísar nefndin til jafnrétti meðal annara hópa samfélagsins. Þetta er sér í lagi mikilvægt í þeim málum er varða menntun og fjölmiðla og telur nefndin að nauðsynlegt sé að löggjöf á sviði jafnréttismála sé víkkuð út með þetta í huga eða að jafnvel ný löggjöf verði sett sem tæki á þessum málum.

Alþingi 29. mars 2011.

Skúli Helgasson.
Þráinn Bertelsson.
Oddný Harðardóttir.
Margrét Tryggvadóttir.
Eygló Harðardóttir.
Ólafur Þór Gunnarsson.




Fylgiskjal VII.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál). Tilgangur tillögunnar er að styrkja stöðu jafnréttismála á Íslandi með fjölbreyttum aðgerðum. Í tillögunni felst að Alþingi samþykki áætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum með ályktun sinni. Áætluninni er skipt í kafla eftir áherslusviðum ríkisstjórnarinnar á sviði jafnréttismála en þar að auki er lagður grunnur að því að efla eftirfylgni með framkvæmd áætlunarinnar og tryggja aðgang að sérfræðiráðgjöf við framkvæmd einstakra verkefna.
    Nefndin hefur farið yfir þær umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar og tengjast málefnasviði samgöngunefndar. Að mati samgöngunefndar gera umsagnaraðilar ekki verulegar athugasemdir við tillöguna og margir þeirra fagna henni. Telja sumir þeirra jafnvel þörf á því að ganga lengra í að treysta jafnrétti en gert er.
    Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur m.a. fram að hún leggi áherslu á mannréttindafræðslu og kvenfrelsi með því m.a. að fá málaflokki jafnréttismála aukið vægi innan stjórnkerfisins. Ríkisstjórnin hyggist beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf. Þannig verði kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar svo þær gagnist bæði körlum og konum með fjölbreyttan bakgrunn. Einnig verði gripið til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun í samvinnu við hagsmunasamtök og aðila vinnumarkaðarins, lokið við gerð jafnréttisstaðla og starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta eflt auk þess sem unnið verði úr tillögum jafnréttisvaktarinnar.
    Þeir almennu þættir jafnréttisáætlunar sem nefndin telur einkum falla að málefnasviði hennar eru þeir sem snúa að samþættingu, aðgerðum og stefnumörkun á sviði kynja- og jafnréttismála, samhæfingar starfs ríkisstjórnarinnar og eftirfylgni með framkvæmdaáætlun hennar. Þá falla tveir sérstakir þættir áætlunarinnar að málefnasviði nefndarinnar, þ.e. skipun starfshóps til að kanna starfsumhverfi og starfskjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum með tilliti til kynjasjónarmiða og áhrifa þeirra í sveitarstjórnarstarfi og uppfærsla og viðhald gagnagrunns Jafnréttisstofu um jafnrétti kynjanna í sveitarstjórnum.
    Í fjárlögum ársins 2011 er í fyrsta sinn unnið að verkefni á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis (nú innanríkisráðuneytis) í kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð. Verkefnið snýr að því að meta áhrif Héðinsfjarðarganga á efnahagslega, félagslega, menningarlega og pólitíska stöðu mismunandi hópa með fjölbreyttum aðferðum. Fylgst verður náið með breytingum í kjölfar opnunar ganganna á árinu 2010 og þróun mála á fyrrgreindum sviðum fylgt fram til ársloka 2012. Rannsóknir á þessu sviði benda til þess að staða kvenna í strjálbýli sé að mörgu leyti lakari en þeirra sem búa í þéttbýli og atvinnumöguleikar og launakjör oft takmarkaðri. Eitt af helstu einkennum fámennra samfélaga á Vesturlöndum er brottflutningur kvenna og það sama á við hér á landi þar sem ungar konur hafa um langt skeið verið líklegri til að flytja á brott úr sveitum og sjávarbyggðum en ungir karlar. Um þetta segir eftirfarandi í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011: „Að hluta til skýrist þetta af því að starfsmöguleikar kvenna í slíkum samfélögum eru oft einhæfir og bundnir við láglaunastörf. Á Íslandi endurspeglast þetta í því að óútskýrður launamunur kvenna á höfuðborgarsvæðinu er tæp 10% en tæp 30% á landsbyggðinni. Þá hefur verið á það bent að sá félagslegi auður sem felist í samhjálp og stuðningi í fámennum samfélögum byggist að verulegu leyti á ólaunaðri vinnu kvenna við umönnunarstörf við börn, aldraða og sjúka sem sinnt sé af launuðu fagfólki í þéttbýlinu. Með Héðinsfjarðargöngum tvöfaldast stærð samfélagsins og margvísleg tengsl við þéttbýli Akureyrar verða auðveldari. Þetta kann að verða til þess að bæta félagslega stöðu kvenna og íbúa af erlendum uppruna og styrkja þar með byggðakjarnana til framtíðar. Fylgst verður með breytingum á stöðu þessara hópa á grundvelli kannana og opinberra gagna. Verkefnið er hluti af stærra verkefni sem hefur það að markmiði að leggja heildstætt mat á breytingar á samfélagi, menningu og lífsháttum á norðanverðum Tröllaskaga, og auka skilning á áhrifum stórframkvæmda í vegagerð almennt.“
    Í inngangsorðum Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum kemur eftirfarandi m.a. fram: „Ef takast á að móta samfélag sem byggir á jafnrétti er nauðsynlegt að sveitar- og héraðsstjórnir taki fullt tillit til kynjasjónarmiða í stefnumótun sinni, skipulagi og framkvæmd. Í nútímasamfélagi og heimi framtíðarinnar er raunverulegt jafnrétti kvenna og karla lykillinn að efnahagslegum og félagslegum árangri okkar, ekki einungis á vettvangi Evrópu eða þjóðríkja heldur einnig í héruðum, borgum og staðbundnum samfélögum.“
    Í nýjustu skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins lenti Ísland í efsta sæti eftir mælingar á muninum á stöðu karla og kvenna annað árið í röð en hafði áður verið í því fjórða. Þá kemur þar fram að bættan árangur megi nær alfarið rekja til landvinninga kvenna í stjórnmálalífi landsins. Í athugasemdum við einstakar greinar þingsályktunartillögunnar kemur m.a. fram að hlutur kvenna í stjórnum og ráðum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi aukist verulega. Þannig hafi hlutur kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum stjórnarráðsins verið 39,6% á árinu 2009 en 36% árið 2007. Að sama skapi hefur hlutur kvenna í sveitarstjórnum á Íslandi aukist í 40% árið 2009 úr 36% árið 2006.
    Nefndin fagnar þeim árangri sem náðst hefur í jafnréttismálum á þeim sviðum sem falla að málefnasviði nefndarinnar og hvetur stjórnvöld til þess að halda áfram á sömu braut enda kann lykillinn að bjartri framtíð íslensks samfélags að felast í að jafnrétti verði náð.
    Í greinargerð með þingsályktunartillögunni kemur fram að atvinnuleysi karla hafi aukist hraðar en atvinnuleysi kvenna á síðustu mánuðum ársins 2008 en þó hafi sú þróun breyst og dregið aftur saman með kynjunum í þeim efnum. Viðvarandi umframeftirspurn eftir vinnuafli á meðan uppgangur ríkti í atvinnulífi þjóðarinnar þrýsti á fólk, sérstaklega á unga karla, að fara beint út á vinnumarkaðinn að loknu grunnskólaprófi án viðkomu í öðrum menntastofnunum. Af þeim sökum hefur menntunarstig karla verið lægra en kvenna sem ekki hafa átt möguleika á jafnháum launum og karlar nema með því að mennta sig. Nefndin vekur athygli á þessari staðreynd en hvetur stjórnvöld um leið til þess að leiðrétta þá slagsíðu sem birtist í framangreindri stöðu menntunarmála karla og launamála kvenna.
    Að öllu framangreindu sögðu leggur nefndin til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Alþingi, 21. febrúar 2011.

Björn Valur Gíslason,form.
Róbert Marshall.
Árni Johnsen.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Ásbjörn Óttarsson.
Mörður Árnason.




Fylgiskjal VIII.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.


    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál). Tilgangur tillögunnar er að styrkja stöðu jafnréttismála á Íslandi með fjölbreyttum aðgerðum. Gerir tillagan ráð fyrir að Alþingi samþykki áætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum með ályktun sinni. Áætluninni er skipt í kafla eftir áherslusviðum ríkisstjórnarinnar á sviði jafnréttismála en þar að auki er lagður grunnur að því að efla eftirfylgni með framkvæmd áætlunarinnar og tryggja aðgang að sérfræðiráðgjöf við framkvæmd einstakra verkefna.
    Nefndin hefur farið yfir þær umsagnir sem borist hafa vegna frumvarpsins og þá sérstaklega þær sem tengjast málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Að mati nefndarinnar gera umsagnaraðilar ekki verulegar athugasemdir við tillöguna, margir þeirra fagna tilvist hennar en sumir telja þörf á því að ganga lengra í að treysta jafnrétti en þar er gert ráð fyrir.
    Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur m.a. fram að hún leggi áherslu á mannréttindafræðslu og kvenfrelsi með því m.a. að fá málaflokki jafnréttismála aukið vægi innan stjórnkerfisins. Hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf. Þannig verði kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar, svo að þær gagnist bæði körlum og konum með fjölbreyttan bakgrunn. Einnig verður gripið til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun í samvinnu við hagsmunasamtök og aðila vinnumarkaðarins, lokið við gerð jafnréttisstaðla og starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta eflt auk þess sem unnið verður úr tillögum jafnréttisvaktarinnar.
    Þeir almennu þættir jafnréttisáætlunar sem nefndin telur einkum falla að málefnasviði hennar snúa að samþættingu, aðgerðum og stefnumörkun á sviði kynja- og jafnréttismála, eftirfylgni siðareglna fyrir ráðherra og ríkisstarfsmenn, markmiða um 40:60 skiptingu í nefndir, ráð og stjórnir, samþykkt nýrrar jafnréttisáætlunar fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og að lokum eftirfylgni framkvæmdaáætlunar um jafnréttismál. Þá fellur einn sérstakur þáttur áætlunarinnar að málefnasviði nefndarinnar, þ.e. úttekt á launamun kynjanna í sjávarútvegi og landbúnaði og aðstöðu til náms í greinunum.
    Hinn 1. janúar 2008 staðfesti þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra jafnréttisáætlun fyrir ráðuneyti sitt. Var markmið þeirrar áætlunar að jafn réttur kynjanna ríki innan ráðuneytisins, jöfn staða og virðing. Þannig njóti bæði kynin jafnra tækifæra og kjara fyrir sambærileg störf. Þá var lögð áhersla á góða líðan starfsmanna á vinnustað þar sem samræming fjölskyldulífs og atvinnu er í heiðri höfð og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum og geti notið sín í starfi. Tryggt verði að mannauður ráðuneytisins nýtist sem best. Var ráð fyrir því gert að áætlunin tæki til allra starfa í ráðuneytinu og voru einstakir þættir hennar útfærðir nánar á greinilegan hátt.
    Árið 2007 gaf nefnd um störf kvenna í stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi út skýrslu um viðfangsefni sitt. Í niðurstöðukafla þeirra skýrslu kom eftirfarandi m.a. fram: „Konur sækja á, á flestum sviðum atvinnulífs og menntunar á Íslandi svo sem annars staðar á Vesturlöndum. Löng hefð er fyrir atvinnuþátttöku kvenna í sjávarútvegi, mestmegnis á sviði vinnslu í landi en þó einnig lítillega í veiðum. Samkvæmt Hagstofunni 2004 eru 860 konur starfandi við fiskveiðar eða 16,6% af starfandi fólki við fiskveiðar. Þó ber að hafa varann á þegar þessi tala er skoðuð þar sem í henni eru starfsmenn útgerðarfyrirtækja hvort sem er í landi eða til sjós, en meiri hluti eru starfandi karlmenn eða 83,4%. Konur eru um 40% starfsmanna í fiskvinnslunni en karlar um 60%. Ef fiskvinnsla og fiskveiðar eru tekin saman þá standa karlmenn fyrir um 70% af störfum í greinunum en konur um 30%. Þrátt fyrir þessar staðreyndir er konur að finna í sjávarútvegi, sem stunda fiskveiðar en fjöldi þeirra er takmarkaður. […] Greinilegt er að konur hafa látið til sín taka í sjávarútvegsfyrirtækjum þótt enn sé langt í land með að þær standi körlum á sporði í helstu stjórnunarstörfum. Það er tilfinning nefndarinnar að fyrir 20-30 árum síðan hafi landslag stjórnenda í greininni, t.d í störfum fjármálastjóra, starfsmannastjóra, gæðastjóra og í rannsóknum og þróun verið nær eingöngu mannað körlum. Engin könnun hefur áður verið gerð á þessu sviði og því er erfitt að finna staðfestingu fyrir þessu í öðrum en munnlegum heimildum frá reynsluríku fólki úr greininni. […] Konur sækjast frekar eftir skrifstofustörfum og störfum við vinnslu og pökkun. […] Spurt var hvort til væri skrifleg jafnréttisáætlun innan fyrirtækisins. Fimm af átján fyrirtækjum svöruðu því játandi eða 28%. Af þeim fimm fyrirtækjum sem voru með skriflega jafnréttisáætlun voru einungis þrjú með aðgerðaáætlun eða virka stefnu í jafnréttismálum. Samkvæmt því hefur yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja í sjávarútvegi ekki skriflega jafnréttisáætlun þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um að það sé skylda fyrirtækja með 25 starfmenn eða fleiri á launaskrá. Það var hins vegar áhugavert að sjá að þau félög sem voru með skriflega jafnréttisáætlun voru jákvæðari gagnvart konum í könnuninni.“
    Nefndin hefur áhyggjur af því að enn sé nokkuð í land til þess að jafnrétti verði náð á sviði sjávarútvegsmála. Af þeim sökum fagnar nefndin því að stefnt sé að frekari úttektum á því sviði og þá sérstaklega hvað nám varðar enda virðist slíkt lykill eflingar sjálfstrausts og metnaðar kvenna á mörgum sviðum. Í sama mund minnir nefndin á mikilvægi þess að karlar séu einnig hvattir til náms þannig að þeir verði ekki menntunarlegir eftirbátar kvenna.
    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur um nokkurra ára skeið sinnt jafnréttismálum á sviði landbúnaðarmála af nokkrum myndugleik. Nefndin telur þó að hægt sé að gera betur og hvetur ráðuneytið til dáða í jafnréttismálum í landbúnaði. Að lokum fagnar nefndin því sérstaklega að stefnt sé að áframhaldandi kynjasamþættingu á málefnasviðum allra ráðuneyta Stjórnarráðsins.
    Að öllu framangreindu sögðu leggur nefndin til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Alþingi 23. febrúar 2011.

Atli Gíslason, form.
Einar K. Guðfinnsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Björn Valur Gíslason.
Jón Gunnarsson.
Valgerður Bjarnadóttir.




Fylgiskjal IX.



Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál). Tilgangur tillögunnar er að ná fram jafnri stöðu og jöfnum rétti kvenna og karla á Íslandi. Jafnréttisáætlun er ætlað það hlutverk að skilgreina stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og lýsa verkefnum sem ýmist varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis. Áætluninni er skipt í kafla eftir áherslusviðum á sviði jafnréttismála og auk þess er lagður grunnur að því að efla eftirfylgni með áætluninni og aðgang að sérfræðiráðgjöf við framkvæmd einstakra verkefna.
    Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að hún leggi áherslu á að málaflokkur jafnréttismála fái aukið vægi innan stjórnkerfisins. Ríkisstjórnin muni enn fremur beita sér fyrir því að jafna hlutfall kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og grípa til sértækra aðgerða sé þess þörf. Kynjasjónarmið verði höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar og áhrif kvenna í endurreisninni tryggð.
    Þær umsagnir sem borist hafa félags- og tryggingamálanefnd vegna tillögunnar eru almennt jákvæðar, ekki eru gerðar verulegar athugasemdir við hana og margir benda á að grípa verði til frekari aðgerða til að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    Þau almennu atriði sem snúa að málefnasviði nefndarinnar eru einkum kynjasamþætting, jafnréttisstarf umhverfisráðuneytis, endurskoðun jafnréttisáætlunar umhverfisráðuneytisins, siðareglur fyrir ráðherra og ríkisstarfsmenn, hlutur kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum stjórnvalda og eftirfylgni áætlunarinnar. Einnig fellur einn sérstakur hluti áætlunarinnar að málefnasviði nefndarinnar og er um að ræða kynjasjónarmið í loftslagsmálum.
    Jafnréttisáætlun umhverfisráðuneytisins var samþykkt 5. apríl 2005. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu er unnið að endurskoðun áætlunarinnar og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki í ár. Í núgildandi áætlun kemur fram að markmið hennar sé að allt starfsfólk ráðuneytisins eigi jafna möguleika á að nýta eigin atorku og þróa hæfileika sína í störfum fyrir ráðuneytið. Jafnræði eigi að vera með störfum karla og kvenna og jafnréttisstarf skuli vera eðlilegur hluti af daglegu starfi ráðuneytisins og jafnréttissjónarmið samþætt ákvarðanatöku innan þess. Nefndin fagnar því að endurskoðun áætlunarinnar sé vel á veg komin og hvetur ráðuneytið til að ljúka þeirri vinnu svo fljótt sem auðið er.
    Á 52. fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem haldinn var 25. febrúar til 7. mars 2008, var mikið fjallað um valdeflingu kvenna, meðal annars á vettvangi umhverfismála í tengslum við loftslagsbreytingar. Ályktaði fundurinn um mikilvægi þess að tryggja þátttöku kvenna í hvers konar stefnumótun og öðrum áætlunum stjórnvalda og að nauðsynlegt væri að kynjasjónarmið væru höfð til hliðsjónar í allri ákvörðunartöku. Nefndin tekur undir þetta og telur skipta miklu að tekið sé mið af aðstæðum, sjónarmiðum og reynsluheimi beggja kynja þegar ákvarðanir um aðgerðir í loftslagsmálum eru teknar. Nefndin telur ljóst að breytingar á loftslagi vegna losunar gróðurhúsalofttegunda af manna völdum séu ein stærsta vá sem mannkynið stendur frammi fyrir og fagnar því að af hálfu íslenskra stjórnvalda verði haldið áfram að halda kynjasjónarmiðum á lofti í samningaviðræðum um loftslagsmál. Einnig telur nefndin að sú könnun sem fram á að fara um áhrif mismunandi hegðunar kynjanna á Íslandi á loftslag sé mikilvægt tæki til að vekja einstaklinga til umhugsunar um áhrif á umhverfi sitt og þá ábyrgð sem hver og einn ber.
    Nefndin telur mikilvægt að aðgerðir til að ná fram jafnri stöðu og jöfnum rétti kynjanna byggist á greinargóðri og skipulagðri áætlun og leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 8. mars 2011.

Mörður Árnason, form.
Ólína Þorvarðardóttir.
Birgir Ármannsson, með fyrirvara.
Álfheiður Ingadóttir.
Siv Friðleifsdóttir.
Ólafur Þór Gunnarsson.
Kristján Þór Júlíusson, með fyrirvara.
Skúli Helgason.





Fylgiskjal X.


Álit


um till. til þál. um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur að beiðni félags- og tryggingamálanefndar, dags. 31. janúar 2010, tekið til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára (334. mál).
Nefndin var einkum beðin um álit á þeim atriðum jafnréttisáætlunarinnar sem varða málefnasvið nefndarinnar, þ.e. í kafla um alþjóðastarf, auk nokkurra verkefna sem heyra til málefnasviða allra fastanefnda Alþingis.
    Eftirfylgni við aðgerðaáætlun frá 8. mars 2008 um framkvæmd ályktunar öryggisráðsins nr. 1325 og tengdra ályktana um konur, frið og öryggi á alþjóðavettvangi er mikilvægt verkefni að mati nefndarinnar. Íslensk stjórnvöld hafa markað sér stöðu og aflað sér virðingar sem málsvari málaflokksins á alþjóðavettvangi, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og innan Atlantshafsbandalagsins þar sem nýlega voru tekin upp jafnréttismarkmið. Nefndin telur að orðalag þessa liðar jafnréttisáætlunarinnar eigi að endurspegla þennan styrkleika og áherslur íslenskra stjórnvalda með skýrari hætti og leggur til viðeigandi breytingar á orðalagi.
Jafnréttisskóli Háskóla Íslands hóf starfsemi sína í október 2009. Um er að ræða afar mikilvægt starf en stefnt er að því að jafnréttisskólinn öðlist á næsta ári stöðu sem hluti af Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Fyrir eru á Íslandi þrjár deildir í Háskóla Sameinuðu þjóðanna: Jarðhitaskólinn frá og með árinu 1978, Sjávarútvegsskólinn frá og með árinu 1998 og Landgræðsluskólinn formlega frá og með árinu 2010. Starfsemi þessara skóla er meðal mikilvægustu framlaga Íslendinga til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og frá árinu 1978 hafa hundruð erlendra sérfræðinga komið hingað til lands og hlotið menntun á viðkomandi sérsviðum. Utanríkismálanefnd telur brýnt að treysta starfsemi Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi og að ekki verði hvikað frá markmiðum um Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi frá árinu 2012.
    Hvað varðar almenn atriði í jafnréttisáætluninni sem heyra til málefnasviða allra fastanefnda vill utanríkismálanefnd koma því á framfæri við félags- og tryggingamálanefnd að utanríkismálanefnd telur þau atriði fyrst og fremst vera á málefnasviði félags- og tryggingamálanefndar og að nefndin treysti því að hún fjalli faglega og ítarlega um málið. Að mati utanríkismálanefndar getur hún ekki gefið efnislega umsögn um þessi verkefni, nema mað því að rannsaka málið á sama hátt og félags- og tryggingamálanefnd mun væntanlega gera.
    Að þessu sögðu vill nefndin þó benda á hvernig orðalag 7. töluliðar jafnréttisáætlunarinnar um að ráðuneytin „stefni að því að ná 40:60 markmiðinu við skipun í nefndir, ráð og stjórnir“ samræmist ekki afdráttarlausu ákvæði 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008: „Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Þetta gildir einnig um stjórnir opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem ríki eða sveitarfélag er aðaleigandi að.“ Ekki verður séð hvernig hið opinbera getur sett sér það markmið að stefna að því að fara eftir ákvæðum laga í þessu tilliti.
    Nefndin hefur fjallað um málið með framangreindum fyrirvörum vegna almennra atriða og tekið afstöðu til þingsályktunartillögunnar. Er niðurstaða nefndarinnar að leggja til að félags- og tryggingamálanefnd samþykki tillöguna með eftirfarandi breytingartillögu:
    33. töluliður í kafla „G. Alþjóðastarf“ orðist svo:
    Áætlun Íslands um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 frá árinu 2000 um konur, frið og öryggi verði endurskoðuð með framsetningu skýrra, tímasettra markmiða. Tekið verði mið af öðrum ályktunum öryggisráðsins sem samþykktar hafa verið með skírskotun til ályktunar 1325 (ályktanir nr. 1820(2008), 1888(2009), 1889(2009) og 1960(2010)). Ísland efli jafnframt stöðu sína sem málsvari málaflokksins á alþjóðavettvangi bæði í marghliða og tvíhliða starfi með frumkvæði, sterkum áherslum og eftirfylgni á grundvelli framkvæmdaáætlunarinnar. Markvisst verði unnið að því að fræða starfsfólk utanríkisráðuneytisins og friðargæsluliða í málefnum öryggisráðsályktunar 1325 og tengdra ályktana.
    Tímaáætlun: 2011–2014.
    Kostnaðaráætlun: 2,5 millj. kr.
    Ábyrgð: Utanríkisráðuneyti í samvinnu við innanríkis- og forsætisráðuneyti.


Alþingi 2. mars 2011.

Árni Þór Sigurðsson, form.
Álfheiður Ingadóttir.
Birgitta Jónsdóttir.
Bjarni Benediktsson.
Helgi Hjörvar.
Ólöf Nordal.
Valgerður Bjarnadóttir.




Fylgiskjal XI.


Álit


um till. til þál. í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá meiri hluta viðskiptanefndar.



    Félags- og tryggingamálanefnd óskaði með tölvupósti 1. febrúar 2011 eftir því að viðskiptanefnd léti í té álit sitt á tillögu velferðarráðherra til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helgu Jónsdóttur og Ingibjörgu Pálsdóttur frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Hildi Jónsdóttur frá velferðarráðuneyti.
    Fram kom við umfjöllun um málið að í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu hefði einn starfsmaður þegar fengið það hlutverk að gegna starfi jafnréttisfulltrúa. Fram kom einnig að ráðuneytið teldi áætlun velferðarráðherra vera gott veganesti við endurskoðun jafnréttisáætlunar ráðuneytisins sem mun fara fram á árinu 2011.
    Það sem helst varðar málefnasvið ráðuneytisins er hlutfall kynja í stjórnum og æðstu stöðum fyrirtækja og stofnana. Í tillögunni kemur orðrétt fram: „Efnt verði til fræðslu um ábyrgð og skyldur stjórnenda og stjórnarmanna í fyrirtækjum. Markmiðið verði að auka hæfni þessara aðila til að gegna stöðum sínum með áherslu á að ná til kvenna. Komið verði upp gagnagrunni með upplýsingum um þá sem hlotið hafa slíka fræðslu til að gera stjórnendum og stjórnarmönnum kleift að mynda með sér tengsl og auðvelda fyrirtækjum að finna hæfa stjórnendur og stjórnarmenn.“
    Meiri hlutinn vekur athygli á því að á 138. löggjafarþingi var samþykkt breytingartillaga viðskiptanefndar við frumvarp til laga um breytingu á lögum um einkahlutafélög og lögum um hlutafélög (71. mál á 138. löggjafarþingi). Í breytingartillögunni fólst breyting á 1. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög og 1. mgr. 39. gr. laga um einkahlutafélög þess efnis að í félögum þar sem starfsmenn eru fleiri en 50 á ársgrundvelli að jafnaði skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Lög þessi munu öðlast gildi 1. september 2013.
    Meiri hlutinn telur að gagnagrunnurinn muni auðvelda innleiðingu þessara lagaákvæða um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Markmið fyrirhugaðs gagnagrunns er hins vegar óljóst orðað í þingsályktunartillögunni. Meiri hlutinn áréttar því mikilvægi þess að upplýsingum verði safnað í grunninn um annars vegar fyrirtæki, þ.m.t. upplýsingum um stjórnir og stjórnendur sem vilja vinna að því að auka hluta kvenna í atvinnulífinu, og hins vegar um konur sem vilja taka að sér ábyrgðarstöður í íslenskum fyrirtækjum. Fram kom á fundinum að með tímanum mundi gagnagrunnur af þessu tagi stækka og þannig yrði auðveldara að finna konur til að taka sæti í stjórn. Stjórnendur í atvinnulífinu kvarta oft yfir því að erfitt sé að finna hæfar konur. Meiri hlutinn telur að markviss fræðsla um ávinninginn af því að fjölga konum í ábyrgðarstöðum og söfnun upplýsinga um hæfar konur séu mikilvæg skref í átt að breyttum viðhorfum til kvenna og fjölgun kvenna í stjórnum og meðal stjórnenda fyrirtækja. Sterkar vísbendingar eru um að konum í stjórnum fyrirtækja hafi ekki fjölgað eftir hrun og ætti gagnagrunnur að bætt úr því.
    Við umfjöllun um málið í nefndinni var þeim sjónarmiðum lýst að áætlunin væri ómarkviss. Ekki eru sett fram skýr töluleg markmið í áætluninni né skýrar leiðir til að tryggja eftirfylgni við markmiðin. Við fyrrgreinda grein mætti því bæta: „Fræðsla um ábyrgð og skyldur stjórnenda og stjórnarmanna, ásamt uppbyggingu gagnagrunnsins mundi þannig stuðla að því að hlutfall hvors kyns yrði ekki lægra en 40% fyrir 1. september 2013.“
    Jafnframt var þeirri spurningu velt upp hvort rétt væri að dreifa fjármunum jafnréttisáætlunar á milli ráðuneyta. Á það var hins vegar bent að unnið væri eftir nýrri aðferðafræði í jafnréttismálum. Í stað þess að nálgast jafnrétti kynjanna sem sértækt viðfangsefni eins ráðuneytis er nú óðum að ryðja sér til rúms sú skoðun að jafnréttismál séu mál allra ráðuneyta. Aðferðafræðin kallast samþætting og markmiðið með henni er að koma jafnréttismálum á dagskrá í öllum ráðuneytum. Því væri jákvætt að til að mynda jafnréttisfulltrúi væri starfandi í hverju ráðuneyti. Á það var jafnframt bent að fleiri hópar en konur ættu undir högg að sækja í íslensku samfélagi, fólk af erlendum uppruna, fatlaðir, öryrkjar o.fl. Í ljósi þessa væri jafnréttishugtakið oft skilgreint of þröngt. Sú áætlun sem hér um ræðir byggist hins vegar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008 þar sem í 11. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára í senn að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta, Jafnréttisstofu og Jafnréttisráðs.

Alþingi, 3. mars 2011.

Lilja Mósesdóttir, form.
Magnús Orri Schram,
Skúli Helgason,
Eygló Harðardóttir,
Atli Gíslason,
Valgerður Bjarnadóttir,
Margrét Tryggvadóttir.