Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 684. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Nr. 27/139.

Þskj. 1435  —  684. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Serbíu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Lýðveldisins Serbíu.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd annars vegar fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Serbíu sem undirritaður var 17. desember 2009 í Genf og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Lýðveldisins Serbíu sem undirritaður var sama dag.

Samþykkt á Alþingi 17. maí 2011.