Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 739. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Nr. 38/139.

Þskj. 1724  —  739. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2011 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 18. og 22. febrúar 2011.

Samþykkt á Alþingi 10. júní 2011.