Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 359  —  31. mál.

Síðari umræða.


Breytingartillaga



við tillögu til þingsályktunar um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu.



Frá meiri hluta utanríkismálanefndar (ÁÞS, AT, ÁI, GBS, MÁ, SDG, SER).


    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki innan landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967. Jafnframt skorar Alþingi á Ísraelsmenn og Palestínumenn að leita sátta með friðarsamningum á grundvelli þjóðaréttar og ályktana Sameinuðu þjóðanna sem m.a. feli í sér gagnkvæma viðurkenningu Ísraelsríkis og Palestínuríkis.
    Alþingi áréttar að PLO, Frelsissamtök Palestínu, eru hinn lögmæti fulltrúi allrar palestínsku þjóðarinnar og minnir jafnframt á rétt palestínsks flóttafólks til að snúa aftur til fyrri heimkynna í samræmi við margítrekaðar ályktanir Sameinuðu þjóðanna.
    Alþingi krefst þess af deiluaðilum fyrir botni Miðjarðarhafs að þeir láti þegar í stað af öllum hernaði og ofbeldisverkum og virði mannréttindi og mannúðarlög.