56. FUNDUR
fimmtudaginn 6. apríl,
kl. 10.30 árdegis.
Heimsókn forseta þjóðþings Austurríkis.
Forseti vakti athygli þingheims á að forseti austurríska þjóðþingsins, Doris Bures, væri stödd á þingpöllum ásamt fylgdarliði.
Varamenn taka þingsæti.
Forseti tilkynnti að Jón Ragnar Ríkarðsson tæki sæti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, 1. þm. Reykv. n., og Jóhannes Stefánsson tæki sæti Sigríðar Á. Andersen, 4. þm. Reykv. s.
Jón Ragnar Ríkarðsson, 1. þm. Reykv. n., og Jóhannes Stefánsson, 4. þm. Reykv. s., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.
Lengd þingfundar.
Forseti sagðist líta svo á að þingfundir gæti staðið lengur en þingsköp kvæðu á um.
[10:33]
Óundirbúinn fyrirspurnatími.
Framtíðarsýn í menntamálum.
Spyrjandi var Katrín Jakobsdóttir.
Fjárframlög til Matvælastofnunar og eftirlitshlutverk.
Spyrjandi var Gunnar I. Guðmundsson.
Sala Seðlabankans á hlut sínum í Kaupþingi.
Spyrjandi var Sigurður Ingi Jóhannsson.
Framlög í fjármálaáætlun og kosningaloforð.
Spyrjandi var Logi Einarsson.
Framlög til nýsköpunar.
Spyrjandi var Ari Trausti Guðmundsson.
Fjármálastefna 2017--2022, frh. síðari umr.
Stjtill., 66. mál. --- Þskj. 123, nál. 427, 458, 474, 481 og 485.
Till. afgr. sem ályktun Alþingis (þskj. 594).
Fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Georgíu, frh. síðari umr.
Stjtill., 177. mál. --- Þskj. 248, nál. 400.
Till. afgr. sem ályktun Alþingis (þskj. 595).
Útlendingar, frh. 2. umr.
Stjfrv., 236. mál (frestun réttaráhrifa o.fl.). --- Þskj. 328, nál. 543 og 585.
Frumvarpið gengur til 3. umræðu.
Út af dagskrá voru tekin 5.--7. mál.
Fundi slitið kl. 11:58.
---------------