Fundargerð 150. þingi, 125. fundi, boðaður 2020-06-23 19:30, stóð 19:31:25 til 22:13:11 gert 24 8:4
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

125. FUNDUR

þriðjudaginn 23. júní,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:31]

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins. Þingmaður utan flokka fékk fimm mínútur í lok fyrstu umferðar.

Ræðumenn flokkanna voru:

Fyrir Miðflokkinn talaði Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Njáll Trausti Friðbertsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis. Fyrir Samfylkinguna talaði í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í annarri Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð talaði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ari Trausti Guðmundsson, 5. þm. Suðurkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Pírata voru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Viðreisn talaði í fyrstu umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðuvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Flokk fólksins talaði Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.

Þingmaður utan flokka, Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður talaði í lok fyrstu umferðar.

Horfa

Fundi slitið kl. 22:13.

---------------