Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1018, 157. löggjafarþing 265. mál: breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Lög nr. 30 9. apríl 2026.
I. KAFLI
Breyting á orkulögum, nr. 58/1967.
II. KAFLI
Breyting á lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að taka gjald fyrir:
Ráðherra setur, að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar, gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, eftirlit, beitingu þvingunarúrræða og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér samkvæmt lögum þessum. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
III. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Tilkynningarskylda vegna færanlegrar starfsemi.
Rekstraraðili færanlegrar starfsemi sem háð er starfsleyfi Umhverfis- og orkustofnunar, sbr. 3. og 16. tölul. viðauka II, skal tilkynna stofnuninni og hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd um fyrirhugaða starfsemi, staðsetningu hennar og áætlaðan verktíma áður en framkvæmd hefst.
Umhverfis- og orkustofnun skal halda skrá yfir tilkynntar framkvæmdir og tryggja að upplýsingar séu aðgengilegar eftirlitsaðilum.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um form og efni tilkynningar, þar á meðal um tilkynningarfrest og rafræn skil gagna.
Afturköllun.
Útgefandi starfsleyfis getur afturkallað starfsleyfi samkvæmt lögum þessum ef rekstraraðili brýtur gegn ákvæðum laganna eða reglugerða settra samkvæmt þeim eða starfsleyfisskilyrðum. Útgefanda starfsleyfis er jafnframt heimilt að afturkalla starfsleyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings.
Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.
V. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
Leyfisveitanda er jafnframt heimilt að afturkalla leyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.
Ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt slíka undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um skilyrði og málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1. og 2. mgr.
Eftirlit Náttúruverndarstofnunar samkvæmt lögum þessum tekur jafnframt til eftirlits með skilyrðum undanþágu sem Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt skv. 3. mgr. Heimild til breytingar eða afturköllunar leyfis skv. 89. gr. tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
X. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.
Notkun tannsilfurs til viðgerða á tönnum er óheimil nema tannlæknir telji slíka notkun nauðsynlega á læknisfræðilegum grundvelli.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
a. (6. gr. a.)
Málsmeðferð og sameinuð leyfisveiting.
Við afgreiðslu leyfisumsókna fyrir starfsemi sem er leyfisskyld á grundvelli fleiri en einna sérlaga á málefnasviði Umhverfis- og orkustofnunar skal stofnunin, eftir því sem mögulegt er og hagkvæmt, sameina afgreiðsluna í eitt leyfi. Heimilt er að gefa út leyfi eða tiltekna hluta þess til tiltekins tíma.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, óski umsækjandi þess, að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé það heimilt samkvæmt viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds. Breyting eða afturköllun stjórnvalds á bindandi umsögn skal tilkynnt Umhverfis- og orkustofnun sem skal þá eftir atvikum breyta leyfinu eða afturkalla það.
Leyfi, ákvarðanir, tilkynningar og annað sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skal birt á vef stofnunarinnar og telst það til opinberrar birtingar.
b. (6. gr. b.)
Forgangsmeðferð.
Við afgreiðslu umsókna um leyfisskyldar framkvæmdir skal Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Þingskjal 1018, 157. löggjafarþing 265. mál: breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Lög nr. 30 9. apríl 2026.
Lög um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
1. gr.
Í stað orðsins „Ráðherra“ í 1. málsl. 30. gr., 1. mgr. 31. gr. og 2. mgr. 32. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.2. gr.
Orðin „að fengnu áliti Umhverfis- og orkustofnunar“ í 2. mgr. 32. gr. laganna falla brott.3. gr.
26. gr. laganna orðast svo:Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að taka gjald fyrir:
- Vinnslu og útgáfu leyfa, sem og endurskoðun, breytingu eða afturköllun leyfa, sbr. 5., 11., 16., 19. og 22. gr.
- Endurgreiðslu alls kostnaðar sem fellur til við sérstakar rannsóknir, úttektir eða kynningar enda hafi verið haft samráð við umsækjanda um fyrirhugaðar rannsóknir, úttektir eða kynningar og honum gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en til slíks kostnaðar er stofnað.
- Eftirlit, sbr. ákvæði þessa kafla.
- Eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. IX. kafla.
Ráðherra setur, að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar, gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, eftirlit, beitingu þvingunarúrræða og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér samkvæmt lögum þessum. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
4. gr.
Í stað orðanna „í lofthelgi“ í 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: á innsævi, landgrunni, í landhelgi, lofthelgi.5. gr.
Í stað orðanna „Gefa skal“ í 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: Heimilt er að gefa.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé mengandi starfsemi sem er starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka IV jafnframt starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka I og/eða viðauka II skal Umhverfis- og orkustofnun gefa starfsleyfið út sem eitt leyfi og þarf þá ekki sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- Á eftir orðinu „viðauka“ í 1. mgr. kemur: II og.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skráningarskylda og almennar bindandi reglur.
8. gr.
Á eftir 14. gr. laganna kemur ný grein, 14. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Umhverfis- og orkustofnun skal halda skrá yfir tilkynntar framkvæmdir og tryggja að upplýsingar séu aðgengilegar eftirlitsaðilum.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um form og efni tilkynningar, þar á meðal um tilkynningarfrest og rafræn skil gagna.
9. gr.
Á eftir 63. gr. a laganna kemur ný grein, 63. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.
10. gr.
Við 1. mgr. 67. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi, sbr. 1. mgr. 14. gr. a.11. gr.
Við viðauka II við lögin bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:- Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
- Jarðbor.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka IV við lögin:- 55. tölul. fellur brott.
- Á eftir 76. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Osteópati.
- 115. tölul. orðast svo: Brennsluver þar sem nafnvarmaafl er jafnt og eða meira en 1 MW og minna en 50 MW.
13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Í stað orðanna „vatnsafli til raforkuframleiðslu“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: orkulindum til undirbúnings raforkuvinnslu, sbr. 40. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, á íslensku forráðasvæði innan sem utan netlaga.
- Á eftir orðinu „skipulagslög“ í 3. mgr. kemur: lög um skipulag haf- og strandsvæða.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Við 4. mgr. bætist: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
- Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er þó heimilt að falla frá öflun umsagna enda hafi umsækjandi haft gilt rannsóknarleyfi fyrir sömu auðlind á sama svæði og:
- umsókn berst innan 12 mánaða frá því að fyrra rannsóknarleyfi umsækjanda féll úr gildi,
- fyrirhuguð rannsókn er í meginatriðum óbreytt að umfangi og eðli frá því sem var samkvæmt fyrra leyfi,
- rannsóknir á grundvelli fyrra leyfis hafa verið án verulegra athugasemda að mati stofnunarinnar.
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, að fenginni skriflegri og rökstuddri umsókn leyfishafa, að framlengja rannsóknarleyfi til allt að þriggja ára í senn. Skilyrði fyrir framlengingu er að leyfishafi uppfylli skilyrði gildandi leyfis og sýni fram á að framlenging sé nauðsynleg til að ljúka markmiðum rannsóknaráætlunar eða til að rannsaka nánar atriði sem fram hafa komið við rannsóknir á leyfistímanum. Heildargildistími rannsóknarleyfis, að meðtöldum framlengingum, skal þó að jafnaði ekki vera lengri en tíu ár. Umsókn um framlengingu skal berast stofnuninni eigi síðar en 30 dögum áður en gildistími leyfis rennur út.
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:- Í stað „60“ í 2. málsl. kemur: 90.
- Á eftir 3. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu nýtingarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.
17. gr.
Á eftir 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu virkjunarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. a laganna:- 4. mgr. fellur brott.
- Orðin „eða leyfi Raforkueftirlitsins er veitt skv. 4. mgr.“ í 5. mgr. falla brott.
19. gr.
Við 36. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Leyfisveitanda er jafnframt heimilt að afturkalla leyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings.
20. gr.
Í stað orðanna „lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna, sbr. 2. mgr. 9. gr.“ í 1. málsl. 4. mgr. 28. gr. laganna kemur: varpi efna og lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna, sbr. 9. gr.21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. laganna:- Á eftir orðunum „skv. 1. málsl. 1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: eða veitingu bindandi umsagnar skv. 5. mgr.
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Úrræði Fiskistofu skv. 33. gr. a eiga jafnframt við um eftirlit með framkvæmdum sem hlotið hafa leyfi Umhverfis- og orkustofnunar skv. 5. mgr. Heimild til afturköllunar leyfis skv. 3. mgr. 33. gr. a tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
22. gr.
Í stað orðanna „í dagblaði sem er í almennri dreifingu“ í 2. mgr. 28. gr. og „í blaði sem er í almennri dreifingu“ í 2. málsl. 29. gr. laganna kemur: á vef Umhverfis- og orkustofnunar.23. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á II. viðauka við lögin:- 1. tölul. orðast svo: Starfsleyfisskyldur atvinnurekstur sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út leyfi fyrir á grundvelli 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. viðauka I og II. Einnig starfsleyfisskyldur atvinnurekstur um meðhöndlun úrgangs, sbr. 5. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
- 3. tölul. orðast svo: Framleiðsla efna og efnablandna sem flokkast sem hættuleg efni, eiturefni, plöntuverndarvörur eða sæfivörur, sbr. efnalög, notkun þeirra, geymsla, vinnsla, urðun, losun og flutningur.
- Orðin „nr. 50/1987“ í 4. tölul. falla brott.
24. gr.
Við 41. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt slíka undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um skilyrði og málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1. og 2. mgr.
Eftirlit Náttúruverndarstofnunar samkvæmt lögum þessum tekur jafnframt til eftirlits með skilyrðum undanþágu sem Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt skv. 3. mgr. Heimild til breytingar eða afturköllunar leyfis skv. 89. gr. tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
25. gr.
Á eftir orðinu „undanþágur“ í 1. málsl. 1. mgr. 92. gr. laganna kemur: og bindandi umsagnir.26. gr.
Við 7. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: hafa, í samræmi við áherslur eftirlitsáætlunar, sbr. 52. gr., eftirlit með notkun plöntuverndarvara í starfsemi annarri en þeirri sem um getur í 2. tölul. 6. gr.; við framkvæmd eftirlitsins hefur Vinnueftirlit ríkisins sömu heimildir til skoðunar og eftirlits og Umhverfis- og orkustofnun, sbr. 49. gr., og til prófunar og rannsókna, sbr. 50. og 51. gr.27. gr.
2. mgr. 47. gr. s laganna orðast svo:Notkun tannsilfurs til viðgerða á tönnum er óheimil nema tannlæknir telji slíka notkun nauðsynlega á læknisfræðilegum grundvelli.
28. gr.
Við 1. mgr. 54. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Eftirlit með brennisteinsinnihaldi skipaeldsneytis.29. gr.
Við 12. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra stafliða samkvæmt því:- gerð matslýsingar fyrir umhverfismat áætlunar.
30. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:- Við 2. málsl. 2. mgr. bætist: m.a. um hvort framkvæmd er líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
31. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 22. gr. laganna:- Á eftir d-lið kemur nýr stafliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra stafliða samkvæmt því: upplýsingar um áhrif framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
- Í stað tilvísunarinnar „a–d-lið“ í e-lið kemur: a–e-lið.
32. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. viðauka við lögin:- Í stað tölunnar „200“ í tölul. 1.04 kemur: 100.
- Tölul. 1.10 fellur brott.
- Í stað tölunnar „50“ í 2. málsl. tölul. 3.02 kemur: 83.
- Í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 kemur: eða.
- Á eftir orðunum „flokk A“ í tölul. 3.19 kemur: að frátöldum jarðvarmavirkjunum.
- Tölul. 7.02 orðast svo: Pökkun og niðursuða á dýraafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 75 tonnum á dag. Pökkun og niðursuða á jurtaafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 300 tonn á dag.
- Tölul. 7.03 orðast svo: Framleiðsla á mjólkurvörum þar sem tekið er á móti meira en 200 tonnum af mjólk á dag.
- Orðin „3 km 2/ lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falla brott.
- Í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 kemur: 220.
- Í stað orðanna „500 tonn af úrgangi á ári“ í tölul. 11.02 kemur: 100 tonn af úrgangi á dag.
- Í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 kemur: eða.
- Við tölulið 11.12 bætist: að undanskildum jarðvegi.
- Við tölul. 12.02 bætist: að því undanskildu þegar komið er upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.
33. gr.
Á eftir „(verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu)“ í e-lið iii. liðar 2. tölul. 2. viðauka við lögin kemur: svæða sem njóta verndar vegna.34. gr.
Á eftir 6. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 6. gr. a og 6. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:a. (6. gr. a.)
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, óski umsækjandi þess, að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé það heimilt samkvæmt viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds. Breyting eða afturköllun stjórnvalds á bindandi umsögn skal tilkynnt Umhverfis- og orkustofnun sem skal þá eftir atvikum breyta leyfinu eða afturkalla það.
Leyfi, ákvarðanir, tilkynningar og annað sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skal birt á vef stofnunarinnar og telst það til opinberrar birtingar.
b. (6. gr. b.)
35. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 27. mars 2026.