Katrín Júlíusdóttir

Katrín Júlíusdóttir

Þingseta

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2003–2016 (Samfylkingin).

Iðnaðarráðherra 2009–2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 2012–2013.

Raddsýnishorn

Æviágrip

Fædd í Reykjavík 23. nóvember 1974. Foreldrar: Júlíus Stefánsson (fæddur 17. nóvember 1939) framkvæmdastjóri og Gerður Lúðvíksdóttir (fædd 19. maí 1942) skrifstofumaður. Maki: Bjarni Bjarnason (fæddur 9. nóvember 1965) rithöfundur. Sonur Katrínar og Flosa Eiríkssonar: Júlíus (1999). Synir Katrínar og Bjarna: Pétur Logi (2012), Kristófer Áki (2012). Stjúpsonur, sonur Bjarna: Snorri (2000).

Stúdent MK 1994. Nám í mannfræði við Háskóla Íslands 1995–1999. Námskeið í verkefnastjórn í hugbúnaðargerð hjá EHÍ 2001.

Innkaupastjóri hjá G. Einarsson & co. ehf. 1994–1998, framkvæmdastjóri þar 1999–2000. Framkvæmdastjóri stúdentaráðs HÍ 1998–1999. Verkefnastjóri og ráðgjafi hjá ráðgjafar- og hugbúnaðarhúsinu Innn hf. 2000–2003. Iðnaðarráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Í fæðingarorlofi 24. febrúar til 1. september 2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 1. október 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013.

Í stjórn Verðandi, ungliðahreyfingar Alþýðubandalagsins, og ritari Alþýðubandalagsins í Kópavogi 1994–1998. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins 1996–2000. Fulltrúi Röskvu í stúdentaráði og háskólaráði HÍ 1997–1999. Í kennslumálanefnd Háskóla Íslands 1997–1999. Í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2000–2003, varaformaður 2001–2003. Í stjórn Evrópusamtakanna 2000–2003. Varaformaður Ungra jafnaðarmanna 2000, formaður 2000–2001. Varaformaður Samfylkingarinnar 2013–2016.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2003–2016 (Samfylkingin).

Iðnaðarráðherra 2009–2012. Fjármála- og efnahagsráðherra 2012–2013.

Allsherjarnefnd 2003–2004, menntamálanefnd 2003–2005 og 2007–2009, félagsmálanefnd 2004–2005, fjárlaganefnd 2005–2007, iðnaðarnefnd 2005–2009 (formaður 2007–2009), umhverfisnefnd 2007–2009, umhverfis- og samgöngunefnd 2013–2016, velferðarnefnd 2013–2014.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2007–2009 (formaður).

Æviágripi síðast breytt 21. febrúar 2020.

Áskriftir