Tryggvi Þór Herbertsson

Tryggvi Þór Herbertsson

Þingseta

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2009–2013 (Sjálfstæðisflokkur).

Æviágrip

Fæddur í Neskaupstað 17. janúar 1963. Foreldrar: Herbert Jónsson (fæddur 2. mars 1922, dáinn 24. júlí 2000) verkamaður og Ragnheiður Stefánsdóttir (fædd 6. október 1926, dáin 21. september 2014) sjúkraliði. Maki 1: Kristjana Blöndal (fædd 28. desember 1964) uppeldisfræðingur. Þau skildu. Foreldrar: Halldór Blöndal alþingismaður og ráðherra og Renata Brynja Kristjánsdóttir. Maki 2: Sigurveig María Ingvadóttir (fædd 14. apríl 1962). Foreldrar: Ingvi Rafn Albertsson og María Hjálmarsdóttir. Sonur Tryggva og Kristjönu: Halldór Reynir (1990). Dóttir Tryggva og Sigurveigar: Anna Ragnheiður (1997). Stjúpbörn, börn Sigurveigar: Mist Hálfdánardóttir (1988), Veigar Friðgeirsson (1993).

Iðnrekstrarfræðipróf Tækniskóla Íslands 1992. M.Sc.-próf í hagfræði HÍ 1995. Doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla 1998.

Hljóðmaður hjá Stúdíó Mjöt 1981–1986. Klippari á Stöð 2 1986–1989. Starfaði fyrir fjármálaráðuneytið og Iðntæknistofnun sumarið 1991. Sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands 1992–1995, forstöðumaður þar 1995–2006. Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands 2004–2006. Forstjóri Askar Capital 2006–2009. Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra 2008. Prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík frá 2009.

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2009–2013 (Sjálfstæðisflokkur).

Efnahags- og skattanefnd 2009–2011, iðnaðarnefnd 2009–2011, efnahags- og viðskiptanefnd 2011–2012, allsherjar- og menntamálanefnd 2012–2013.

Æviágripi síðast breytt 30. mars 2016.

Áskriftir