Áform um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003
(1312094)
Efnahags- og viðskiptanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
16.05.2014 | 79. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Áform um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 Á fund nefndarinnar komu Esther Finnbogadóttir og Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sturla Pálsson frá Seðlabanka Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni hugmyndir um breytingu á lögum um tekjuskatt og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
21.12.2013 | 41. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Áform um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 Á fund nefndarinnar kom Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagráðuneytinu. Maríanna kynnti nefndinni hugmyndir um breytingu á lögum um tekjuskatt og svaraði spurningum nefndarmanna. PHB lagði fram bókun þess efnis að hann gerði athugasemdir við hraða málsins og að nefndin hefði í hyggju að leggja fram frumvarp sem samið hefði verið utan Alþingis. |
20.12.2013 | 40. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Áform um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 Nefndin ræddi hugmyndir um að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um tekjuskatt. |