40. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 20. desember 2013 kl. 15:15


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 15:15
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 15:15
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 15:34
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 15:27
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 15:15
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 15:15
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 15:15
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS) fyrir LínS, kl. 15:15

PHB og JÞÓ voru fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Áform um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 Kl. 15:15
Nefndin ræddi hugmyndir um að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um tekjuskatt.

2) Önnur mál Kl. 15:38
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 15:38