Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra
1931 nr. 36 8. september
Tóku gildi 1. janúar 1932. Breytt með l. 141/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. [Þjónandi prestar og prófastar skulu fá greiddan rekstrarkostnað embætta sinna frá biskupsstofu samkvæmt reglum 1) sem kirkjuþing setur.] 2)
1) Augl. 819/1999, sbr. 852/2001 og 291/2004. 2)L. 141/1998, 1. gr.
2. gr. Ráðuneytið leggur sóknarprestinum til löggiltar embættisbækur, svo og eyðublöð undir lögboðnar skýrslur og embættisvottorð.
3. gr. Fyrir aukaverk ber prestum þóknun eftir gjaldskrá, er ráðuneytið setur til 10 ára í senn.