Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um viðauka við lög nr. 39 15. maí 1990, um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins
1994 nr. 88 24. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 3. júní 1994. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 157/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. laganna skal ekki inna af hendi greiðslur til Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins vegna útflutnings frá gildistöku laga þessara. Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. laganna skal ekki inna af hendi greiðslur af verðjöfnunarreikningum sjóðsins vegna útflutnings frá sama tíma. [Ráðherra] 1) getur með reglugerð ákveðið að inn- og útgreiðslur hefjist að nýju þegar leyfilegur árlegur heildarafli af þorski fer yfir 250.000 lestir.
1)L. 126/2011, 195. gr.
2. gr. Þær innstæður, sem standa inni á reikningum á nafni einstakra framleiðenda í Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins, skulu greiddar til viðkomandi framleiðanda sem fyrst eftir gildistöku laga þessara. Aðrar eignir sjóðsins skulu renna til reksturs [Hafrannsóknastofnunar] 1) utan 10 millj. kr. sem skulu renna til Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda.
1)L. 157/2012, 4. gr.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.