Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um rétt nefndar samkvæmt ályktun Alþingis til aðgangs að opinberum gögnum um öryggismál
2006 nr. 127 9. október
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 13. október 2006.
1. gr. Nefnd, sem skipuð var af forsætisráðherra 22. júní 2006 á grundvelli ályktunar Alþingis frá 3. júní 2006, um aðgang að opinberum gögnum um öryggismál, skal hafa frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslum stjórnvalda sem snerta öryggismál Íslands, innra og ytra öryggi, á árunum 1945–1991 til þess að gera tillögu um tilhögun á frjálsum aðgangi fræðimanna að þeim.
Þrátt fyrir lögmælta þagnarskyldu er öllum opinberum starfsmönnum skylt að svara fyrirspurnum nefndarinnar um verklag við öflun, skráningu og varðveislu upplýsinga um öryggismál Íslands á árunum 1945–1991. Hið sama gildir um opinbera starfsmenn sem látið hafa af störfum.
Nefndarmenn og starfsmaður nefndarinnar skv. 1. mgr. eru bundnir þagnarskyldu um viðkvæmar einkalífsupplýsingar sem þeir komast að í starfi sínu á vegum nefndarinnar. Hið sama gildir um upplýsingar um öryggismál Íslands sem varða enn þá virka öryggis- eða varnarhagsmuni Íslands.
Upplýsingalög, nr. 50/1996, gilda ekki um störf nefndarinnar.
Formaður nefndarinnar, sbr. 1. mgr. þessarar greinar, skal á starfstíma hennar gera forseta Alþingis og formönnum þingflokka grein fyrir framvindu verksins, sbr. síðari málsgrein ályktunar Alþingis frá 3. júní 2006.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.