Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. nóvember 2017. Útgáfa 147. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um samræmda vinnslu sjávarafla og veiðar, sem háðar eru sérstökum leyfum
1975 nr. 12 25. apríl
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 14. maí 1975. Breytt með l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. [Ráðuneytið] 1) getur samkvæmt lögum þessum sett almennar og svæðisbundnar reglur, 2) er stuðli að samræmingu milli veiðiheimilda samkvæmt sérstökum leyfum ráðuneytisins til rækju- og skelfiskveiða og vinnslugetu þessara greina fiskiðnaðarins, meðal annars með skiptingu afla milli vinnslustöðva og/eða þeirra báta, sem veiðileyfi hljóta.
1)L. 126/2011, 64. gr. 2)Rg. 78/1978 (um skelfiskveiðar).
2. gr. Í þeim greinum veiða, sem háðar eru sérstökum leyfum samkvæmt 1. gr., skal leita leyfis [ráðuneytisins] 1) til að koma á fót vinnslustöðvum eða til aukningar á afkastagetu þeirra sem fyrir eru. Ráðuneytið getur synjað um slík leyfi, ef ekki er fyrirsjáanleg aflaaukning á viðkomandi svæði né samdráttur í starfsemi annarra vinnslustöðva á svæðinu.
Opinberum fjárfestingarlánasjóðum skal tilkynnt um synjun slíkra leyfa.
1)L. 126/2011, 64. gr.
3. gr. Ráðherra getur sett nánari fyrirmæli um framkvæmd þessara laga.
4. gr. Hver sá, er sekur gerist um brot á lögum þessum eða fyrirmælum samkvæmt þeim, skal sæta sektum, nema þyngri viðurlögum varði samkvæmt öðrum lögum. Sektir renni í ríkissjóð. … 1)
1)L. 88/2008, 233. gr.