Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2018. Útgáfa 148c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild ríkissjóðs Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008
2008 nr. 60 7. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 11. júní 2008. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
[Ráðherra], 1) fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að taka á árinu 2008 lán fyrir allt að 500 milljörðum króna eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt og endurlána Seðlabanka Íslands þann hluta sem tekinn verður að láni í erlendri mynt.
Erlendar fjárhæðir skulu miðast við kaupgengi íslensku krónunnar samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands á staðfestingardegi laganna.
Lántökuheimild ríkissjóðs skv. 1. mgr. hefur ekki áhrif á lántökuheimildir ríkissjóðs skv. 5. gr. fjárlaga fyrir árið 2008.
1)L. 126/2011, 480. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.