Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bátfiski á fjörðum
1888 nr. 6 19. júní
Tóku gildi 15. október 1888. Breytt með l. 46/1926 (tóku gildi 1. jan. 1927).
1. gr.
Rétt er að útilykja aðkomandi fiskimenn frá bátfiski, nema síldveiðar sé, á fjörðum eða tilteknum fjarðasvæðum, sökum fiskiveiða fjarðarbúa, og skal það gjört með samþykkt á þann hátt, er segir í lögum 14. desember 1877 um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum, og skulu að öðru leyti ákvæði téðra laga og laga nr. 23 4. desember 1886 gilda um slíkar samþykktir.
2. gr.
… 1) Að öðru leyti eru og slíkir aðkomumenn háðir landslögum um fiskiveiðar og útflutningstoll af sjávarafla.
1)L. 46/1926, 8.–9. gr.