Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild handa ríkisstjórninni til að banna flutning til landsins á varningi, sem stjórnin telur stafa sýkingarhættu af
1920 nr. 8 18. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. júlí 1920. Breytt með l. 116/1990 (tóku gildi 31. des. 1990) og l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008).
1. gr.
Ríkisstjórninni heimilast að banna flutning til landsins á brúkuðum fatnaði, líni og sængurfatnaði, dulum, brúkuðu vatti, hnökraull, pappírsafklippum, hári, húðum og öðrum þeim varningi, er stjórnin telur stafa sýkingarhættu af.
2. gr.
[Brot gegn ákvæðum laga þessara og fyrirmælum settum samkvæmt þeim varða sektum … 1)] 2)
1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 116/1990, 9. gr.