Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. maí 2020. Útgáfa 150b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um notkun raflagna og raffanga í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli
2007 nr. 135 12. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 17. nóvember 2007. Breytt með: L. 39/2014 (tóku gildi 1. sept. 2014). L. 137/2019 (tóku gildi 31. des. 2019).
1. gr.
Heimilt er að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal fyrir 1. október 2007 leggja fram verkáætlun til [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar] 1) um hvernig staðið verði að breytingum til samræmis við íslenskar kröfur fyrir 1. október 2010.
1)L. 137/2019, 19. gr.
2. gr.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal tilnefna umsjónarmann öryggismála á svæðinu sem starfi í samvinnu við [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]. 1) Hann skal uppfylla þær hæfniskröfur sem gerðar eru í reglugerð nr. 264/1971, um raforkuvirki, með síðari breytingum.
1)L. 137/2019, 19. gr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.